Fréttablaðið - 13.02.2020, Page 6
BANDARÍKIN Bernie Sanders lýsti
yfir sigri í forvali Demókrataflokks-
ins í New Hampshire, sem fram fór
á þriðjudag. Þegar talningunni var
nær lokið hafði hann fengið 25,9
prósent atkvæða og níu fulltrúa á
landsþingið í sumar.
Sama fjölda fékk sigurvegarinn
úr Iowa-forvalinu, Pete Buttigieg,
og gekk honum betur í New Hamp-
shire en búist var við. Enungis eitt
og hálft prósent skyldi þá Sanders
og Buttigieg að.
Þriðji sigurvegarinn í New Hamp-
shire var Amy Klouchar sem hlaut
tæplega 19,8 prósent og sex fulltrúa.
Hvorki Elizabeth Warren né Joe
Biden náðu 10 prósentum og hvor-
ugt þeirra fær fulltrúa frá fylkinu.
Rætt hefur verið um að það sé að
fjara undan framboðum þeirra og
þau ættu að draga sig út. Biden fór
hins vegar beint til Suður-Karólínu
þar sem kosið verður í mánuðinum.
Frambjóðendurnir Andrew Yang
og Michael Bennett, hafa dregið
framboð sín til baka. – khg
ÞÝSKALAND Kristilegir demókratar
(CDU), sem leiða ríkisstjórn Þýska-
lands, þurfa að velja nýjan formann
í sumar eftir að Annegret Kramp-
Karrenbauer tilkynnti að hún hygð-
ist hætta. Embættistíð hennar hefur
markast af stórum kosningaósigrum
í einstökum fylkjum og til Evrópu-
þingsins. Margir f lokksmenn eru
óánægðir með andstöðu hennar
við að hefja samstarf við þjóðernis-
popúlíska f lokkinn AFD. Þrír eru
taldir langlíklegustu arftakarnir
hennar.
Fyrrverandi þingmaður, Fried-
riech Merz vill til æðstu metorða í
CDU og nýtur stuðnings íhaldsarms
flokksins. Hann tapaði naumlega í
leiðtogakjöri fyrir Kramp-Karren-
bauer í desember árið 2018 með 482
atkvæðum gegn 517. Merz sem vill
„endurnýja f lokkinn“, hefur verið
opinn fyrir samstarfi við alla hægri-
flokka. Merz sagði starfi sínu lausu
hjá bandaríska fjárfestingarbankan-
um BlackRock fyrr í þessum mánuði
til að einbeita sér að stjórnmálum.
Heilbr igðisráðher rann Jens
Spahn er talinn líklegasti arftakinn
af þeim sem nú starfa í ríkisstjórn-
inni. Hann er sagður vera frjáls-
hyggjumaður í efnahagslegum og
félagslegum skilningi. Spahn er sam-
kynhneigður og barðist hvað harð-
ast CDU-þingmanna fyrir því að
leyfa giftingar hinsegin fólks. Hann
er einnig þekktur fyrir að skylda for-
eldra til að bólusetja börn sín gegn
mislingum. Þrátt fyrir frjálslyndar
skoðanir sínar hefur hann gagn-
rýnt stefnu Merkel hvað flóttamenn
varðar og telur að Þýskaland taki nú
við of mörgum í nafni mannúðar.
Armin Laschet á að baki langa
reynslu í stjórnmálum. Hann hefur
setið sem þingmaður í Þýskalandi,
Evrópuþingmaður og ráðherra en er
nú ríkisstjóri í Norðurrín-Vestfalíu,
stærsta fylki Þýskalands. Laschet
er einna þekktastur fyrir að taka
hart á skipulagðri glæpastarfsemi
í fylkinu. Innan flokksins er hann
talinn miðjumaður og líklegur til
að geta sameinað bæði íhaldsmenn
og frjálslynda.
Þó að þessir þrír séu taldir lang-
líklegustu arftakarnir koma aðrir
einnig til greina. Má til dæmis
nefna Markus Söder, ríkisstjóra
Bæjaralands sem situr fyrir CSU,
systurflokk CDU, og þingmanninn
Ralph Brinkhaus. Þeir tilheyra báðir
íhaldsarminum og Söder hefur verið
mjög gagnrýninn á innf lytjenda-
stefnu Merkel. Einnig má nefna
Daniel Gunther, ríkisstjóra Slés-
víkur-Holtsetalands, sem er mun
hófsamari og var einn helstu stuðn-
ingsmanna Kramp-Karrenbauer.
Ljóst er að átakalínurnar verða á
milli íhaldsmanna og frjálslyndra,
hvort samstarf við AFD sé fýsi-
legt eða yfir höfuð forsvaranlegt.
Ákvörðun flokksstjórnar CDU í Þýr-
ingalandi nýverið, um samstarf við
AFD til að fá Thomas Kemmerich
kjörinn ríkisstjóra, hafa hrist upp
í þýskum stjórnmálunum og ríkis-
stjórnarsamstarfinu. Hafa nýir, og
mun róttækari, leiðtogar Sósíal-
demókrata, Saskia Esken og Norbert
Walter-Borjans, kallað eftir kosn-
ingum í Þýringalandi út af þessu. Ef
íhaldsmaður, opinn fyrir samstarfi
við AFD, kemst til valda í CDU gæti
ríkisstjórnarsamstarfinu verið sjálf-
hætt. kristinnhaukur@frettabladid.is
Formannskosningar
Kristilegra demókrata
Kristilegir demókratar í Þýskalandi þurfa að velja nýjan formann eftir að
Kramp-Karrenbauer tilkynnti um afsögn. Í valinu, sem fer líklega fram í
sumar, takast íhaldssamir og frjálslyndir á. Þrír þykja líklegastir í embættið.
Heilbrigðisráðherrann Jens Spahn vill leiða CDU. NORDICPHOTOS/GETTY
Mjótt á milli
Sanders og
Buttigiegs
Pete Buttigieg og eiginmaður hans
Chasten fagna. NORDICPHOTOS/GETTY
Pi
zza
fyrir ástina
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Pizza
fyrir ástina
Þú finnur allt
á einum stað
í öllum okkar
verslunum!
Sögulegt brúðkaup á Norður-Írlandi
Það var söguleg hátíðarstund þegar þær Robyn Peoples og Sharni Edwards urðu fyrsta samkynhneigða parið til að ganga í hjónaband
á Norður-Írlandi. Lög sem heimila hjónaband hinsegin fólks tóku gildi á Norður-Írlandi í vikunni. Hinar nýgiftu Peoples og Edwards,
sem eru 26 og 27 ára, hafa verið saman í sex ár. Athöfnin fór fram í bænum Carrickfergus á Norður-Írlandi. NORDICPHOTOS/GETTY +PLÚS
Armin Laschet, ríkis-
stjóri í Norðurrín-Vestfalíu,
ert talinn líklegur til að
sameina íhaldsmenn og
frjálslynda.
1 3 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð