Fréttablaðið - 13.02.2020, Blaðsíða 18
Það er á hreinu að sýningar
fyrir grunnskólabörn og
framhaldsskólanema eru
brýn nauðsyn svo þau geti
kynnst kvikmyndinni sem
listgrein.
Hagar hf. birta lýsingar í tengslum við umsóknir um töku
verðbréfa til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.
Auglýsing þessi er birt í tengslum við umsóknir um töku skuldabréfaflokka HAGA 181021 og
HAGA 021029 til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf.
HAGA 181021
Höfuðstólsfjárhæð útgefinna skuldabréfa í flokknum nam kr. 2.500.000.000 og voru þau öll
seld þann 15. október 2019 eftir að Hagar samþykktu tilboð hæfra fjárfesta í framhaldi að
lokuðu útboði félagsins þann 30. september 2019 þar sem Hagar höfnuðu öllum tilboðum í
óverðtryggðan flokk skuldabréfa. Skuldabréfin voru seld á genginu 1,0 og bera skuldabréfin
fasta 4,65% óverðtryggða vexti.
HAGA 021029
Upphafleg höfuðstólsfjárhæð skuldabréfa í flokknum nam kr. 5.500.000.000 og voru þau öll
seld í lokuðu útboði þann 30. september 2019. Skuldabréfin voru gefin út og afhent þann
2. október 2019. Skuldabréfin voru seld á genginu 1,0 og bera skuldabréfin fasta 2,8% verð-
tryggða vexti. Heildarheimild til útgáfu skuldabréfa í þessum flokki er kr. 15.000.000.000.
Markmiðið með skráningu skuldabréfanna á Aðalmarkað Nasdaq Iceland hf. er að stuðla að
auknum seljanleika og markaðshæfi skuldabréfanna, sem og að tryggja fjárfestum að starfs-
hættir og upplýsingagjöf um fjárhagsstöðu útgefanda séu í samræmi við reglur fyrir útgef-
endur fjármálagerninga, sem gefnar eru út af Nasdaq Iceland hf., eins og þær eru á hverjum
tíma.
Hagar hafa komið á fót tryggingafyrirkomulagi með útgáfu tryggingarbréfs, veðhafa- og
veðgæslusamnings, umboðssamnings og samnings við staðfestingaraðila. Framangreindir
samningar eru birtir á heimasíðu Haga, www.hagar.is/fjarfestaupplysingar/skuldabrefautbod/
og eru fjárfestar hvattir til þess að kynna sér efni skjalanna í heild sinni.
Á grundvelli veðhafa- og veðgæslusamkomulags hafa Hagar lagt fram tryggingar til greiðslu
skuldabréfanna sem eigendur skuldabréfanna á hverjum tíma gerast sjálfkrafa aðilar að.
Tryggingar Haga eru tilgreindar í viðauka við veðhafa- og veðgæslusamkomulagið og
tryggingarbréfi sem Hagar hafa gefið út.
Lýsingarnar eru útbúnar með hliðsjón af þeim reglum Nasdaq Iceland hf. sem gilda um töku
verðbréfa til viðskipta. Lýsingarnar eru gefnar út á íslensku og birtar af Högum þann
12. febrúar 2020. Hvor lýsing fyrir sig samanstendur af þremur skjölum, þ.e. verðbréfalýs-
ingu, útgefandalýsingu og samantekt. Lýsingarnar hafa verið staðfestar af Fjármálaeftirlitinu
og eru almenningi aðgengilegar á heimasíðu þess.
Minnt er á að fjárfesting í skuldabréfum felur í sér áhættu og eru fjárfestar hvattir til þess að
kynna sér lýsingarnar í heild sinni og er sérstaklega bent á kafla um áhættuþætti.
Nánari upplýsingar
Útgefandi lýsinga eru Hagar hf., kt. 670203-2120, Hagasmára 1, 201 Kópavogi.
Nánari upplýsingar um Haga og skilmála skuldabréfanna má finna í lýsingum félagsins sem
dagsettar eru 12. febrúar 2020 og er birt á www.hagar.is/fjarfestaupplysingar/skuldabrefautbod/
Þar má nálgast lýsingarnar næstu 12 mánuði.
Stjórn Haga hf.
Kennarar við hjúkrunar-fræðideild hafa sett sér það markmið að bjóða upp á framúrskarandi nám í hjúkrunar- og
ljósmóður fræðum sem mætir
alþjóðlegum kröfum og þjónar
íslensku samfélagi.
Nám við hjúkrunarfræðideild
Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla
Íslands raðast í 100.-150. sæti á
lista um gæði náms í hjúkrunar-
og ljósmóðurfræðum á heimsvísu
samkvæmt f lokkun Shanghai Aca-
demic Ranking of World Universi-
ties (ARWU) (shanghairanking.
com/index.html). Af greinum við
Háskóla Íslands hefur nám við
deildina náð einna hæst á þeim
lista.
Nám í hjúkrunarfræði hefur
verið eftirsótt, enda er hjúkrunar-
starfið krefjandi og fjölbreytt og
námið felur í sér mikla mögu-
leika að því loknu. Gæði námsins,
fræðilegar og klínískar kröfur, eru
vel varin með íslenskum lögum
(reglugerð 512/2013) og tilskipun
Evrópusambandsins (2005/36/
EB) um viðurkenningu á faglegri
menntun og hæfi. Haustið 2019
kepptu rúmlega 300 nemendur
um samtals 175 námspláss við
báða háskólana, 120 pláss við
Háskóla Íslands (að ári verða þau
130) og 55 við Háskólann á Akur-
eyri.
Nú á vormisseri sitja tæplega 60
nemendur námskeið við hjúkr-
unarfræðideild HÍ til að uppfylla
skilyrði til að geta sótt um nám
í hjúkrunarfræði fyrir fólk með
annað háskólapróf. Skilyrðin eru
meðal annars að umsækjendur
hafi lokið 40 einingum í undir-
stöðugreinum hjúkrunar, það er
aðferðafræði/tölfræði, félagsfræði,
sálfræði og líffræðigreinum.
Í Evróputilskipuninni stendur
meðal annars að klínísk þjálfun
skuli fara fram á sjúkrahúsum,
í heilsugæslu eða á öðrum vett-
vangi þar sem nemandinn á bein
samskipti við sjúklinga. Á vett-
vangi lærir hann í samstarfi við
aðra að skipuleggja, veita og meta
heildstæða hjúkrun með hlið-
sjón af þeirri þekkingu og hæfni
sem hann hefur öðlast í fræðilegu
námi.
Klíníska kennslan er á ábyrgð
hjúkrunarkennara og er veitt
í samstarfi við og með aðstoð
hjúkrunarfræðinga á vettvangi.
Nemandinn skal ekki einungis
læra að vinna í teymi heldur jafn-
framt að stýra teyminu og skipu-
leggja hjúkrunarmeðferð, þar með
talið heilbrigðisfræðslu fyrir ein-
staklinga og hópa.
Þá stendur í t ilsk ipuninni
að nemendur skuli fá klíníska
kennslu í hjúk r un á ý msum
sviðum hjúkrunar, meðal annars
bráðahjúkrun, nýbura- og barna-
hjúkrun, mæðravernd, heilsu-
gæslu, hjúkrun sjúklinga sem fara
í almennar eða sérhæfðar skurðað-
gerðir og sjúklinga sem þarfnast
almennrar eða sérhæfðrar hjúkr-
unar vegna sjúkdóma sinna.
Skipulag náms í hjúkrunarfræði
tekur mið af ofangreindu. Það
sem takmarkar fjölda nemenda
er námspláss og þá sérstaklega á
þeim vettvangi sem nefndur er að
ofan. Hjúkrunarfræðideild hefur
samstarf og samning um klínísk
námspláss við Landspítala gegnum
Háskóla Íslands og allar ákvarð-
anir um nemendafjölda eru teknar
í samráði við spítalann. Auk þess
eru samningar eða samstarf um
klínísk námspláss við heilsugæslu-
stöðvar og hjúkrunarheimili á
höfuðborgarsvæðinu og á öllum
heilbrigðisstofnunum landsins
fyrir t.d. heimahjúkrun.
Klíníska námið dreif ist yf ir
allan veturinn en prófatímabil og
upphaf missera eru þó minna nýtt
til klínískrar kennslu. Tímann yfir
hásumarið er lítið hægt að nýta í
klínískt nám sökum sumarleyfa
starfsmanna og þar með vöntunar
á klínískum kennurum. Á þessum
tímabilum er þó rými og vilji sam-
starfsstofnana er til að taka á móti
20 nemendum í nýju námsleiðina.
Ljóst er hins vegar að til þess að
nemendur öðlist þá klínísku færni
sem nútímasamfélag krefst þurfa
þeir miklar og góðar leiðbeiningar
á vettvangi. Sem kallar aftur á full-
nægjandi mönnun hjúkrunarfræð-
inga á heilbrigðisstofnunum til að
sinna klínískri kennslu.
Hjúkrunarfræðideild er undir-
fjármögnuð. Í deildinni eru nú
773 nemendur, stöðugildi fastráð-
inna kennara eru 24 auk þess sem
hópur fólks frá öðrum deildum
Heilbrigðisvísindasviðs og víðar í
Háskóla Íslands og frá samstarfs-
stofnunum koma að kennslunni.
Deildin hefur þó aldrei skorast
undan því að leita allra leiða til að
fjölga nemendum og taka við raun-
hæfum verkefnum sem skipta máli
fyrir samfélagið.
Nám í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands
Fyrir 10 árum síðan hélt ég fyrsta pallborðið fyrir skólabörn í Bíó Paradís. Ég sýndi myndina The
Kid eftir Charles Chaplin og var með
kynningu á listamanninum, mynd-
um hans á löngum ferli og ekki síst
um æsku hans og hversu mikið
afrek það var að komast áfram
þrátt fyrir sára fátækt og skelfi-
legar fjölskyldu aðstæður. Verða
einn af áhrifamestu kvikmynda-
leikstjórum kvikmyndasögunnar.
Börnin voru svo áhugasöm að það
var mér hvatning að þróa verkefnið
frekar í samstarfi við Bíó Paradís.
Brátt hófst kvikmyndafræðsla í Bíó
Paradís þar sem skólabörn fengu að
sjá myndir frá ýmsum þjóðlöndum
sem þau hefðu annars ekki aðgang
að og fengu tækifæri til að skoða
kvikmyndir með gagnrýnum huga.
Þar er meðal annars haldin kvik-
myndasmiðja þar sem saga kvik-
myndanna er kynnt með mynd-
brotum úr helstu meistaraverkum
kvikmyndasögunnar. Við það má
bæta að skólabörn fá viðunandi
aðstöðu til að sjá myndir í bestu
gæðum sem þau fá ekki að öðrum
kosti í skólastofu.
Þessu verkefni hef ég veitt for-
stöðu í níu ár í Bíó Paradís og við
höfum nú þjónustað hátt í 90.000
börn. Þetta er á margan hátt krefj-
andi starf en alltaf skemmtilegt og
gífurlega gefandi, kannski af því að
í fyrstu var það tilraunaverkefni.
Hvernig átti að kenna börnum að
nálgast kvikmyndina? Hvernig átti
að kenna þeim að horfa á myndir
með gagnrýni? Kenna þeim að
horfa á bíóklassík í von um að þau
kunni að meta ýmsar perlur kvik-
myndasögunnar, alla vega vita af
þeim og kannast við áhrif þeirra
á kvikmyndir samtímans? Næstu
skref voru í startholunum til að gera
kennsluna mun markvissari.
Árið 2013 fékk bíóið styrk til að
vera með kvikmyndafræðslu fyrir
framhaldsskóla. Það gekk hægt í
fyrstu að byggja þá starfsemi upp,
en með tímanum blómstraði hún
og ungmenni komu úr f lestum
framhaldsskólum í Reykjavík og
nágrenni til að hlýða á fyrirlestra
um þær kvikmyndir sem hafa
markað spor í sögu kvikmyndanna,
ræða um þær á eftir og greina þær
ofan í kjölinn. Það var einstaklega
gaman að sjá nemendurna fá aukið
sjálfstraust eftir því sem leið á
hverja önn með því að greina kvik-
myndir ásamt nemendum úr öðrum
skólum. Það er engin spurning að
slík viðbótarfræðsla er bráðnauð-
synleg. Þeirri starfsemi var því
miður hætt vegna fjárskorts árið
2019, einmitt þegar mikil ásókn var
í fræðsluna og margir skólar vildu
setja námskeiðið inn í námsáætlun
þeirra.
Það er á hreinu að sýningar fyrir
grunnskólabörn og framhalds-
skólanema eru brýn nauðsyn svo
þau geti kynnst kvikmyndinni sem
listgrein, ekki aðeins notið hennar
sem af þreyingar þar sem tækni-
brellur og hraði eru í fyrsta sæti. Ég
hef sjálf mjög gaman af ofurtækni-
væddum hasarmyndum; enda er
ekkert að því, en ég tel sem kvik-
myndafræðingur að nauðsynlegt
sé að sýna kvikmyndir sem hafa
önnur markmið að leiðarljósi.
Í Bíó Paradís fá grunnskólabörn
tækifæri til að sjá nýjar íslenskar
kvikmyndir með leikstjóra og
framleiðendur viðstadda sem svara
spurningum þeirra og útskýra
hvernig staðið var að gerð og fram-
leiðslu kvikmyndarinnar. Þau fá
líka tækifæri til að sjá myndir um
erfið samfélagsleg málefni, einelti,
fíkn og kvíðaraskanir með full-
trúum SÁÁ, Geðhjálpar og Sam-
takanna 78, svo eitthvað sé nefnt,
þar sem þau fá að ræða við þessa
fulltrúa eftir áhorf og fá stuðning og
hjálp ef svo ber undir. Þessi úrræði
þurfa líka að vera til staðar.
Þar sem allt útlit er fyrir að starf-
semi Bíó Paradísar verði hætt í vor,
fá börn ekki lengur að njóta þess
aðbúnaðar sem bíóið hefur upp á
að bjóða sem menningarmiðstöð
kvikmyndanna. Það er einlæg von
mín að þeir sem hafa aðstöðu til að
bjarga Bíó Paradís láti til sín taka og
láta þá einstöku starfsemi sem þar
er stunduð ekki hverfa úr menn-
ingarlífinu.
Opið bréf vegna lokunar
Bíó Paradísar
Oddný Sen
kvikmynda-
fræðingur
og verk-
efnastjóri
kvikmynda-
fræðslu í
Bíó Paradís
Herdís
Sveinsdóttir
deildarforseti
Hjúkrunar-
fræðideildar HÍ
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17F I M M T U D A G U R 1 3 . F E B R Ú A R 2 0 2 0