Fréttablaðið - 13.02.2020, Síða 19
Þetta er stórt stökk
fyrir okkur, í fyrsta
lagi að flytja að heiman og
einnig að fara í nýtt land og
tala annað tungumál. Það
verður margt nýtt fyrir
okkur sem verður krefjandi
en á sama tíma erum við
mjög spennt að takast á við
það.
Haukur Þrastarson
1 3 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
HANDBOLTI „Mér fannst ekkert
mikill munur á mér fyrir og eftir
EM. Ekki þannig en við höfum
verið að spila betur,“ segir Haukur
Þrastarson, leikmaður Íslands-
meistara Hauka, en eftir EM hefur
hann skorað 32 mörk og gefið 22
stoðsendingar í þremur leikjum.
Það gera 10,7 mörk að meðaltali og
7,3 stoðsendingar.
„Maður hefur þurft að stíga
aðeins upp því við erum búnir að
vera í miklu veseni með meiðsli. En
það hefur gengið vel persónulega
eftir EM,“ bætir hann við af sinni
stóísku ró. Það er ekki æsingurinn
í guttanum sem er 18 ára og af
mörgum talinn einn efnilegasti
leikmaður Evrópu. Hann verður
ekki 19 ára fyrr en 14. apríl.
Haukur var í herbergi með Vikt-
ori Gísla Hallgrímssyni á EM en
þeir voru yngstu leikmenn hóps-
ins. Hann segir að tíminn á EM hafi
verið svolítið langur en landsliðið
var á sama hóteli allan tímann í
rúmar þrjár vikur. „Við sýndum
góða frammistöðu en duttum líka
niður. Allur sá tími sem ég fékk var
dýrmætur og maður reynir að nýta
hvert tækifæri sem maður fær til að
stimpla sig betur inn. Þetta var dýr-
mæt reynsla og þegar leið á mótið
fékk maður aðeins að spreyta sig
meira.
Þetta var orðið svolítið langt á
sama stað og á sama hóteli. Sama
pastað og einhvern veginn allt það
sama en góð upplifun.“
Eftir að Olísdeildin hófst að nýju
hafa Íslandsmeistararnir unnið KA
og HK en tapað fyrir ÍBV. Þeir sitja
sem stendur í sjötta sæti, fjórum
stigum frá toppliði Hauka. Spennan
á toppnum er mikil og stutt á milli.
„Þetta er ólík staða sem við erum í
núna miðað við í fyrra. Sérstaklega
eftir þessi meiðsli sem við erum
búnir að lenda í. Þó að við misstum
leikmenn eftir tímabilið í fyrra þá
fannst mér það ekki skipta öllu. Mér
fannst við vera enn með topplið en
meiðslin hafa sett strik í reikning-
inn.
Við erum búnir að vera að spila á
ungum strákum sem eru að taka sín
fyrstu skref og þurfa tíma. Það sést
á okkar leik að við erum að spila vel
inn á milli en dettum síðan niður.
Ég vil samt meina að við séum með
gott lið og getum gert góða hluti –
ekki spurning.“
Pollrólegur yfir fáheyrðum tölum
Haukur Þrastarson, leikmaður Íslandsmeistara Selfoss, hefur verið í banastuði eftir að EM í handbolta lauk og skilar tölum sem
hafa varla sést á handboltagólfinu. Hann er þó sem fyrr pollrólegur og ætlar að klára tímabilið með Selfossi með miklum stæl.
Haukur spilaði þó nokkuð á EM í handbolta. Hér að negla inn einu marki gegn Noregi í milliriðlinum en Ísland endaði í 11. sæti. NORDICPHOTOS/GETTY
Gegn HK
Mörk 11
Stoðsendingar 10
Gegn ÍBV
Mörk 10
Stoðsendingar 8
Gegn KA
Mörk 11
Stoðsendingar 4
✿ Leikir eftir EM
✿ Tímabilið í heild
Leikir 17
Mörk 8,3
Skotnýting 62,1%
Stoðsendingar 6,0
KÖ R F U B O LTI „Þett a er eng in
draumastaða fyrir þjálfarateymið,
það er alveg á hreinu, en þeir fá
tvo heila daga úti þar sem allir eru
saman,“ sagði Hannes S. Jónsson,
formaður KKÍ, spurður út í undir-
búningstíma íslenska karlalands-
liðsins fyrir komandi verkefni. Ekki
er búið að tilkynna leikmannahóp-
inn fyrir leiki Íslands gegn Kósóvó
og Slóvakíu en það verður gert á
morgun, degi fyrir bikarúrslita-
leikina í karla- og kvennaflokki og
þremur dögum áður en landsliðs-
verkefnið hefst.
Ísland er í riðli með Slóvakíu,
Kósóvó og Lúxemborg á fyrsta stigi
undankeppninnar fyrir HM í körfu-
bolta árið 2023 sem fer fram í Indó-
nesíu, Japan og á Filippseyjum.
Landsliðsverkefnið hefst á mánu-
daginn og fá leikmenn sem leika
með erlendum liðum ekki að koma
til móts við liðið fyrr en eftir helgi.
Það var því tekin ákvörðun um að
liðið kæmi saman í Kósóvó og allur
undirbúningurinn færi fram þar
í stað þess að leikmenn sem leiki
erlendis komi til Íslands í stutt
stopp. Það verður því engin æfing
á Íslandi fyrir leikinn gegn Kósóvó.
„Við tókum ákvörðun um að fara
beint út og hittast þar í staðinn fyrir
að koma hingað, okkur fannst það
betri hugmynd. Minnka niður í
einn ferðadag hjá leikmönnum sem
eru að koma frá liðum erlendis,“
sagði Craig Pederson, þjálfari lands-
liðsins, aðspurður hvernig hann
myndi leysa þetta vandamál.
„Það verða leikmenn í hópnum
sem hafa ekki verið mikið með
okkur undanfarin ár og það er
okkar að koma þeim inn í hlutina og
það með flýti. Þetta breytir aðeins
undirbúningnum en við munum
reyna að gera okkar besta til að vera
tilbúnir,“ sagði Craig og hélt áfram:
„Við höfum ekki mikinn tíma
saman til undirbúnings og þurfum
því að nýta hverja einustu mínútu
vel. Við setjum upp ákveðna leik-
áætlun en þeir þurfa að einhverju
leyti að láta tilfinninguna ráða
þegar komið er inn á völlinn.“ – kpt
Engin draumastaða fyrir þjálfarateymið
Viðureign Íslands og
Kósóvó í Tristine næsta
fimmtudag er fyrsta viður-
eign liðanna á körfubolta-
vellinum.
Craig Pederson hefur stýrt landsliðinu í sex ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Haukur samdi við pólska stór-
liðið Vive Kielce fyrir skemmstu
og heldur á vit ævintýranna ásamt
kærustu sinni eftir tímabilið. Kielce
hefur orðið pólskur meistari síðustu
átta ár og vann Meistaradeild Evr-
ópu árið 2016. Í liðinu eru margir
af betri handboltamönnum heims
eins og Þjóðverjinn Andreas Wolff
sem stendur í markinu, bræðurnir
Daniel og Alex Dujshebaev sem
eru einmitt synir þjálfarans Tal-
ant Dujshebaev. Þá samdi annar
íslenskur landsliðsmaður, Sigvaldi
Björn Guðjónsson, við liðið og
munu því tveir Íslendingar leika
með þessu stórliði. Þegar rætt er
um það við Hauk er ekki laust við að
það sé kominn fiðringur í hann og
kærustuna. „Hún er spennt eins og
ég. Þetta er stórt stökk fyrir okkur,
í fyrsta lagi að f lytja að heiman og
einnig að fara í nýtt land og tala
annað tungumál. Það verður margt
nýtt fyrir okkur sem verður krefj-
andi en á sama tíma erum við mjög
spennt að takast á við það.
Ég er ekki kominn með íbúð og
hef svo sem litlar áhyggjur af því.
Það er ekkert stress. Ég stefni á að
klára tímabilið hér með stæl og læt
Kielce ekkert trufla mig á meðan. Ég
er allavega ekkert að spá í því.“
benediktboas@frettabladid.is