Fréttablaðið - 13.02.2020, Page 21
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga
Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
Brynhildur Bolladóttir, upplýsingafulltrúi Rauða krossins, lýsir sér meðal
annars sem glamúrgellu á sam-
félagsmiðlum en segist þó vera
mjög hefðbundin í fatastíl og velta
tískunni lítið fyrir sér.
Hún segist hafa verið í ýmsum
hlutverkum gegnum tíðina, sem
systir hans Atla, kærastan hans
Krumma og mamma hennar Yrsu.
„En fyrst og fremst er ég bara ég,
Brynhildur, 31 árs, hamingjusöm
og sæl. Ég starfa sem upplýsinga-
fulltrúi Rauða krossins og ætli
helstu áhugamálin mín séu ekki
að stunda Víkingaþrek í Mjölni,
spila með spilavinum mínum
og drekka vín með góðum vin-
konum,“ segir hún.
Brynhildur býr í Hlíðunum með
kærasta sínum, Hrafni Jónssyni,
og dóttur þeirra, Yrsu, sem er
rúmlega eins árs og að sögn Bryn-
hildar skemmtilegust í heimi.
Elskar allt sem glitrar
Brynhildur segist hafa mjög
einfaldan fatastíl. „Ég er yfir-
leitt í gallabuxum og bol, en nota
glimmer þegar ég get,“ segir hún.
„Ég fylgist eiginlega nákvæm-
lega ekkert með tísku og á mér
enga fyrirmynd í þeim efnum. Í
raun hefur tískuáhuginn minn
minnkað undanfarin ár og ég fylgi
engum tískuskvísum á Instagram
eða neitt þannig.“
Þegar Brynhildur er spurð út
Uppáhalds
litur Brynhildar er
glimmer og hún
elskar allt sem
glitrar en líka það
sem er röndótt og
litríkt.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
í uppáhaldslitinn nefnir hún
glimmer. „Ég elska allt sem
glitrar,“ segir hún. „Mér finnst
líka gaman að vera í röndóttu og
litum, ég er ekki þessi týpíska
kona sem er alltaf í svörtu.
Ég gekk alltaf með mjög einfalt
úr með hvítri skífu og svartri leð-
uról sem foreldrar mínir gáfu mér
og mér finnst ótrúlega fallegt,“
segir Brynhildur. „En mér finnst
svo erfitt að vera með það þegar
ég hamra á lyklaborðið í vinnunni
að ég geng sjaldnar með það en ég
vildi. Stundum er ég svo líka með
eyrnalokka.“
Hún segist aðallega kaupa fötin
sín í útlöndum. „Ég tek svona
rispur þar sem ég kaupi margar
f líkur í einu – og nota þær svo
allar í mörg, mörg ár,“ segir Bryn-
hildur, sem er ekki í nokkrum
minnsta vafa um hverjar eru
uppáhaldsbúðirnar hennar hér á
landi. „Nú, að sjálfsögðu Rauða-
krossbúðirnar!“
Nýtin og nægjusöm
„Ég er þekkt meðal vina minna
fyrir að ganga óendanlega lengi í
sömu fötunum,“ segir Brynhildur.
„Ég á til dæmis einn kjól úr H&M
sem ég keypti þegar ég var 15 ára.
Ég hef því átt hann lengur en hálfa
ævi mína. Ég á enn alveg ein-
hverjar peysur, boli og kjóla sem
ég hef sankað að mér síðastliðin
tíu ár eða svo. Buxur eyðileggjast
töluvert fyrr hjá mér, það kemur
aaaalltaf gat í klofið.“
Uppáhaldsf lík Brynhildar er
sjóarakjóllinn hennar, sem hún
sá Margréti Erlu Maack klæðast
í Kastljósi fyrir mörgum árum.
„Ég sendi henni skilaboð og
fékk að kaupa af henni kjólinn,“
segir Brynhildur. „Þá þykir mér
ótrúlega vænt um peysu úr Geysi
sem kærastinn minn gaf mér í
afmælisgjöf og ég hefði aldrei tímt
að kaupa mér, en nota mjög oft.“
Á gott úrval af kjólum
Brynhildur segir að normcore 90’s
kjaftæði einkenni klæðnað ungs
fólks í dag. „Og ég meina kjaftæði
ekki endilega neikvætt,“ útskýrir
hún.
Hún segist alls ekki eyða miklu
í föt miðað við vini sína. „Ég skil
aldrei þegar fólk segist ekki ætla
að kaupa sér föt í eitt ár,“ segir
Brynhildur. „Ég hef örugglega
sleppt því heilu árin að kaupa mér
föt.
En mér finnst samt gaman að
vera fín í boðum og á þó nokkuð
gott úrval af kjólum,“ segir hún.
„Ég keypti mér einn ótrúlega
fallegan í Rauðakrossbúðinni
við Bergstaðastræti í október
og langar helst að vera í honum
allar helgar. Ég þarf kannski að
djamma meira.“
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Framhald af forsíðu ➛
Brynhildur eyðir ekki miklu í föt og skilur ekki þá sem segjast ekki ætla að
kaupa sér föt í eitt ár, hún hafi sleppt því heilu árin. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
Ég er þekkt meðal
vina minna fyrir
að ganga óendanlega
lengi í sömu fötunum.
Ég á kjól úr H&M sem ég
keypti þegar ég var 15
ára.
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
NETVERSLUN WWW.BELLADONNA.IS
-20% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM BUXUM
OGFRÁ
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 3 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R