Fréttablaðið - 13.02.2020, Page 23
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Oscar de la Renta sýndi hausttísku sína á tískuviku í New York á mánudag. Það
var eitt allsherjar partí því kjól-
arnir voru glæsilegir, sannarlega
glimmer og glys. Hönnuðir tísku-
hússins, Laura Kim og Fernandi
Garcia, lögðu metnað í fagurlega
skreytta kjóla. Þau voru líka
hönnuðir fyrir Scarlett Johans-
son sem var tilnefnd til tvennra
Óskarsverðlauna. Kjóllinn hennar
var einmitt skreyttur glitrandi,
silfruðum böndum.
Á sýningunni í New York sýndu
Laura Kin og Fernando Garcia að
glamúrinn mun halda velli. Að
þessu sinni kom innblásturinn að
sýningunni frá Suður-Ameríku
eða öllu heldur heimaslóðum
Oscars de la Renta í Dóminíska
lýðveldinu. Þar fæddist sá virti
hönnuður árið 1932 en hann lést
í október 2014. Oscar var heims-
þekktur um 1960 þegar
hann byrjaði að hanna
fyrir Jacqueline Kenn-
edy. Hann var virtur
í Hvíta húsinu og
hannaði sömuleiðis
fyrir Nancy Regan,
Lauru Bush og Hilary
Clinton. Tísku-
hús hans eru
staðsett um
allan heim,
meðal
annars í
Harrods í
London og
á Madison
Avenue í
New York.
Oscar de la Renta flutti frá Karíba-
hafinu til Spánar þar sem hann
nam tískuhönnun en leiðin lá
síðan til Parísar. Í upphafi starfaði
hann fyrir þekkt tískuhús en
stofnaði eigið fyrirtæki árið
1965. Stíll hans þótti hafa blöndu
af spænskum og karabískum
áhrifum.
Núverandi hönnuðir tísku-
merkisins, Kim og Garcia, hafa
þótt horfa til hönnunar Oscars
og virt það sem hann var að gera
á sínum ferli. Tísku-
sérfræðingar
telja að Oscar
de la Renta
hefði verið
ánægður
með glæsi-
kjólana sem
sýndir voru
á tískuvik-
unni í New
York. Hér á
myndunum
má sjá nokkra
þeirra.
Glit og glimmer í hausttískunni
Þær voru glæsilegar leikkonurnar á Óskarsverðlaunahátíðinni. Margar þeirra voru í kjólum sem
skreyttir voru alls kyns glitskarti. Glit og glimmer er einmitt það sem koma skal haustið 2020.
Blái
liturinn virðist
sterkur þegar
líður á árið. Ekki
sakar að í kjólnum
sé svolítill
glamúr.
Stuttu
kjólarnir voru
einnig skreyttir.
Það þarf enga
skartgripi við
svona kjól.
Glæsi-
leikinn er
allsráðandi hjá
Oscar de la
Renta.
Glit og
glimmer
alla leið.
Glitrandi
buxna-
dragt. Þessi
er vel partí-
hæf.
Elegant
árshátíðar-
dress frá Oscar
de la Renta.
Ísaumað
glitrandi blóma-
mynstur verður
áberandi í hausttísku
Oscar de la Renta.
MYNDIR/GETTY
Verðhrun á útsöluvörum
Kr. 6.900.-
Str. S-XXL
Fleiri litir
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
MEÐ BETRI
BUXUM Í BÆNUM
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 3 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R