Fréttablaðið - 13.02.2020, Qupperneq 27
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Eins og þekkt er orðið skartaði leikkonan og leikstjórinn Natalie Portman svartri
Dior-skikkju á nýliðinni Óskars-
verðlaunahátíð. Í skikkjuna var
búið að sauma nöfn kvikmynda-
gerðarkvenna sem henni fannst
hafa verið litið fram hjá við
Óskarsverðlauna-tilnefningarnar
í ár. Portman sagði að með því að
láta sauma nöfnin í skikkjuna hafi
hún viljað minna á það á látlausan
hátt hvernig oft er horft fram hjá
verkum kvenna við tilnefning-
arnar.
Leikkonan Jane Fonda hefur
barist ötullega fyrir hinum
ýmsum málefnum í áratugi. Árið
1972 mætti hún í svartri dragt á
Óskarsverðlaunahátíðina til að
mótmæla Víetnamstríðinu. En
það ár vann hún Óskarinn sem
besta leikkona í aðalhlutverki
fyrir frammistöðu sína í kvik-
myndinni Klute. Undanfarið
hefur Jane Fonda haldið regluleg
mótmæli gegn aðgerðaleysi
stjórnvalda í loftslagsmálum. Hún
segist hafa fengið innblástur fyrir
mótmælin frá Gretu Thunberg.
Á föstudaginn, tveimur dögum
fyrir Óskarsverðlaunahátíð-
ina var Jane Fonda handtekin í
fimmta sinn fyrir þátttöku sína í
mótmælunum. Við handtökuna
klæddist hún rauðri kápu sem
hún hefur lýst yfir að sé síðasta
f líkin sem hún muni nokkurn
tíma kaupa sér. Með því vill hún
hvetja fólk til að kaupa minna af
fötum og endurnýta þau frekar
í þágu umhverfisins. Tveimur
dögum eftir handtökuna mætti
hún á Óskarsverðlaunahátíðina
klædd rauðum kjól sem hún
keypti árið 2014 og kápunni
frægu, sem hún hélt á þegar
hún tilkynnti hvaða kvikmynd
hreppti Óskarinn sem besta
myndin.
Sýna samstöðu með því að
klæðast samlitum fötum
Á Golden Globe-verðlaunahátíð-
inni árið 2018 klæddust f lestar
Hollywood-stjörnurnar svörtu,
til að styðja #MeToo-baráttuna
og sýna samstöðu með þeim
sem höfðu stigið fram og sagt
frá kynferðislegri áreitni innan
kvikmyndabransans. En það eru
ekki bara Hollywood-stjörnur
sem hafa nýtt tísku til að koma
skilaboðum á framfæri. Að nota
föt í ákveðnum lit sem tákn um
samstöðu eða til að vekja athygli á
málefnum á sér langa sögu á f leiri
vígstöðvum.
Á tímum súffragettanna
snemma á síðustu öld var hvítur
litur tákn um samstöðu kvenna.
Þegar bandaríska þingkonan
Alexandra Ocasio-Cortez sór
embættiseið í fyrra, yngst allra
kvenna í stjórnmálasögu Banda-
ríkjanna, klæddist hún hvítri
buxnadragt í anda súffragettanna
til að heiðra baráttukonur fyrir
jafnrétti. Þingkonur Demókrata-
f lokksins í Bandaríkjunum hafa
einnig notað hvítan klæðnað til
að sýna samstöðu. Á dögunum
tóku þær sig saman annað árið
í röð og klæddust hvítu þegar
Donald Trump Bandaríkjaforseti
hélt stefnuræðu sína.
Eliza Reid, forsetafrú Íslands,
klæddist hvítri dragt í haust þegar
hún tók á móti Mike Pence,
varaforseta Bandaríkjanna, og
varaforsetafrúnni Karen Pence
en margir hafa velt fyrir sér hvort
pólitísk skilaboð hafi búið þar
á bak við. En það er ljóst að vilji
fólk í áberandi stöðum koma
skilaboðum á framfæri og ná til
fjöldans, hvort sem það er á var-
færinn hátt eða ágengan, þá eru
fötin sem það velur tilvalin til
slíkra gjörða.
Áhrifamáttur tískunnar
Stjörnurnar á rauða dreglinum vekja mikla athygli. Því er kjörið að nýta sér það til að koma pólit-
ískum málefnum á framfæri. Það er vinsælt að stjörnurnar komi skilaboðum áleiðis með tísku.
Jane Fonda hefur lýst því yfir að
rauða kápan sé síðasta flíkin sem
hún kaupi sér. MYNDIR/GETTY
Á skikkjunni sem Natalie Portman
ber á herðunum eru ísaumuð nöfn
kvikmyndagerðarkvenna.
Að nota föt í
ákveðnum lit sem
tákn um samstöðu eða
til að vekja athygli á
málefnum á sér langa
sögu á fleiri vígstöðvum.
Notkun: 2 hylki tvisvar á dag við vægum gigtarverkjum. Notist ekki ef ofnæmi fyrir jarðhnetum eða soja, eða sár í maga eða þörmum er þekkt. Ekki ráðlagt ungmennum undir 18 ára aldri, þunguðum konum eða konum með barn á brjósti.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á serlyfjaskra.is.
Haltu þínu striki!
Harpatinum er eina viðurkennda jurtalyfið á Íslandi
til að draga úr gigtarverkjum
Fæst án lyfseðils í næsta apóteki www.florealis.is
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 3 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R