Fréttablaðið - 13.02.2020, Blaðsíða 29
Ein af glæsiverslunum Gucci í Kína.
Kórónavírusinn Covid-19 hefur sett lúxusmerki innan tískugeirans í uppnám.
Helstu verslunargötur og verslana-
miðstöðvar Kína eru svo gott sem
auðar og það hefur mikil áhrif á
afkomu verslana með hátísku-
og lúxusvarning. Þannig hefur
franski tískurisinn Gucci nú lokað
helmingi verslana sinna í Kína, en
fyrirtækið á líka tískumerkin Saint
Laurent og Balenciaga. Þá hefur
nýjum auglýsingaherferðum og
fyrirhuguðum opnunum á nýjum
verslunum Gucci í Kína verið
frestað um óákveðinn tíma.
Heilu borgunum í öðru stærsta
efnahagsveldi heims hefur nú
verið lokað vegna veirunnar með
tilheyrandi hruni á sölu og hefur
Gucci sömuleiðis stytt opnunar-
tíma verslana sem enn eru opnar
í Kína og Hong Kong, þar sem
langvinn alda mótmæla hefur haft
slæm áhrif á sölu tískurisanna.
Ítalski tískuvöruframleiðandinn
Moncler hefur upplýst að sala hans
í Kína hafi hrapað um 80 prósent
eftir að Covid-19 veiran breiddist
út og skartgripasalinn Pandora ber
sig ekki heldur vel.
Að öðru leyti er rífandi gangur
hjá Gucci sem hefur stóraukið
hlutdeild sína hjá bandarískum
kaupendum í kjölfar vel heppn-
aðra auglýsingaherferða vestra og
hefur merkið orðið eitt af vin-
sælustu lúxusmerkjum heims á
undanförnum árum.
Gucci lokar helmingi verslana í Kína
Audrey í kjólnum með Óskar 1954.
Óskarsverðlaunahátíðin er eins og konfektkassi fyrir tískuunnendur sem njóta
þess að dást að galakjólum fræg-
ustu tískuhönnuða heimsins þegar
þeir klæða kvikmyndastjörnurnar
í sitt fínasta púss.
Einn allra fegursti Óskarsverð-
launakjóll sögunnar þykir vera
hönnun Huberts de Givency sem
hann saumaði fyrir leikkonuna
Audrey Hepurn sem var honum
mikil andagift. Audrey klædd-
ist kjólnum þegar hún vann til
Óskarsverðlauna fyrir bestan leik
í aðalhlutverki í myndinni Roman
Holiday árið 1953. Kjóllinn sigraði
hjörtu allra innan tískuheimsins,
hann var sakleysislegur en um
leið sláandi kvenlegur og kyn-
þokkafullur, fölur
með fínlegum
blóma-
blúndum
sem þótti
tóna vel við
álfakropp
leikkon-
unnar.
Fegursti kjóllinn
í sögu Óskars
Vatn er besta fegurðarleyndarmálið.
Vatn er tísku- og fegrunar-drykkur allra tíma. Vatn er vitaskuld heilnæmur
drykkur fyrir líkamann og líf-
færin en hefur auk þess mikil áhrif
á frískandi útlit og fegurð. Að
drekka nóg vatn heldur húðinni
hreinni, unglegt útlit hennar
helst lengur og rakinn kemur í veg
fyrir að hún þorni um of. Það hefur
svo mikið að segja því þurr húð
er viðkvæmari fyrir húðkvillum
og flýtir fyrir hrukkumyndun.
Munum því eftir vatninu og
höldum heilsu og útliti sem lengst.
Lindin fegurðar
Kjóll Givency, sem Audrey Hepurn
klæddist á Óskarnum árið 1954, var
boðinn upp í Lundúnum 2011.
GRUNNUR AÐ GÓÐU LÍFI
ER MEÐ KAUP-
ENDUR VÍÐA AÐ
YAN PING LI
866 6897
FJÖLSKYLDAN
AÐ STÆKKA?
MATTHILDUR SUNNA ÞORLÁKSDÓTTIR
690 4966
VILT ÞÚ SELJA
HÚSIÐ ÞITT?
ÞORLÁKUR ÓMAR EINARSSON
820 2399
ÁVALLT SKREFI
FRAMAR
JÓN G. SANDHOLT jr.
777 2288
VILT ÞÚ
STÆRRI ÍBÚÐ?
ERLA DRÖFN MAGNÚSDÓTTIR
692 0149
SÉRFRÆÐINGUR
Í ATVINNU EIGNUM
JÓN G. SANDHOLT sr.
896 6558
ER MEÐ KAUP-
ENDUR Á SKRÁ
JÓHANN ÍRIS GÍGJA
662 1166
FRAMTÍÐ Í
FASTEIGNAVIÐSKIPTUM
HALLDÓR KRISTJÁN SIGURÐSSON
618 9999
ER HÚSIÐ VAXIÐ
YKKUR YFIR HÖFUÐ?
STEFÁN HRAFN STEFÁNSSON
895 2049
10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 3 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R