Fréttablaðið - 13.02.2020, Blaðsíða 32
S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 19F I M M T U D A G U R 1 3 . F E B R Ú A R 2 0 2 0
Stoppuðu
stutt við
Jürgen Klinsman entist ekki lengi hjá
Hertha Berlin. Hann er þó ekki eini stjór-
inn sem hefur stoppað stutt í starfi.
Marcelo Bielsa
Lazio
Litríki Argentínumaðurinn Marcelo Bielsa var kynntur með
pomp og prakt þann 6. júlí árið 2016 sem nýr stjóri Lazio
á Ítalíu. Aðeins tveimur dögum síðar var hann hættur og
sagði að forráðamenn Lazio hefðu svikið loforð um félaga-
skipti. Lazio ætlaði að stefna Bielsa en hætti við.
Brian Clough
Leeds
Tími Cloughs hjá Leeds kom fyrir í bestu fótboltamynd allra
tíma, The Damned United. Clough hafði gert Derby að stór-
veldi og tók við risaliðinu Leeds. 44 dögum síðar var hann
farinn eftir einn sigur í fyrstu sjö leikjunum. Clough endur-
heimti æru sína með því að gera Nott. Forest að stórveldi.
Leroy Rosenior
Torquay United
Leroy Rosenior á að hafa verið rekinn eftir 10 mínútur í
starfi. Skrifaði undir samning en 10 mínútum síðar og blekið
varla orðið þurrt komu fjárfestar og keyptu Torquay. Þeir
vildu Colin Lee sem stjóra og þurfti Rosenior því að fjúka.
Hann hefur þó ávallt haft mikinn húmor fyrir sögunni.
Steve Coppell
Manchester City
Coppell sem lék á sínum tíma með Man. United mætti hress
og kátur á Maine Road árið 1996. Þetta var fyrir olíupen-
ingana og saga City ekki jafn glæst og hún er í dag. Coppell
stýrði þó liðinu aðeins í 33 daga og náði sex leikjum, tveir
þeirra unnust. Það var þó ekki nóg og hann gekk frá borði.
Paul Scholes
Oldham
Fyrsta stjórastarfið hans Scholes varði aðeins í 31 dag. Hann
tók við Oldham, liðinu sem hann studdi í æsku, í 14. sæti
og hætti þegar liðið var á sama stað mánuði síðar. Hann
byrjaði á sigri en svo komu tvö jafntefli og tvö töp. Það var
nóg fyrir gamla miðjusnillinginn og hann sagði upp.
Gian Piero Gasperini
Inter
Gasperini mætti á San Siro í júní 2011 með sínar hugmyndir
um hvernig fótbolta Inter ætti að spila. Hann hafði verið
fjögur tímabil hjá Genoa og gert vel. En fyrstu fjórir leikirnir
hans fóru allir í vaskinn. Það hló enginn á skrifstofu Inter og
Massimo Moratti rak hann eftir tap gegn nýliðum Novara.
Luigi Delneri
Porto
Hver átti að leysa sjálfan Mourinho af hólmi hjá Porto? Liðið
var jú stórkostlegt og stjórinn ekkert minna en sá besti –
allavega á þeim tíma. Porto leitaði til Delneri sem hafði gert
Chievo að stöðugu Serie A liði. En hann var rekinn áður en
tímabilið byrjaði. Hann mætti víst lítið og illa til vinnu.
Jürgen Klinsmann
Hertha Berlin
Fyrrverandi landsliðsþjálfari Þýskalands og Bandaríkjanna
lofaði gulli og grænum skógum þegar hann tók við Berl-
ínarliðinu. Hann fékk úr nægu að moða við að styrkja liðið
í janúar en hætti eftir tíu vikur í starfi og þrjá sigra í tíu
leikjum.
kristinnpall@frettabladid.is