Fréttablaðið - 13.02.2020, Side 33
Fallega sálin, hún móðir okkar,
tengdamóðir, dóttir, systir,
mágkona og amma,
María Lovísa Jack
lést á heimili sínu í Åseda,
Svíþjóð, þann 17. janúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Hlýhugur og þakkir til fjölskyldu, ættingja og vina sem
kvöddu þessa fallegu sál í kyrrþey.
Rut Finney Timothy Finney
Sigurlín Bjarney Gísladóttir Lárus St. Guðmundsson
Sigtryggur Jón Gíslason Pranee Kaewsri
Vigdís Jack
Bergdís Ósk Sigmarsdóttir
Róbert Jón Jack Sigrún Jóna Baldursdóttir
Elín Guðmundsdóttir
Ella Kristín Jack Skúli Torfason
Anna Josefin Jack Guðmundur Sigþórsson
Jónína Guðrún Jack
Sigurður Tómas Jack Anna G. Gunnarsdóttir
Berglind Jack Birgir Birgisson
og barnabörn.
Ástkær eiginkona,
móðir, tengdamóðir og amma,
Sigrún Bjarkar
Valdimarsdóttir
ferðaþjónustubóndi, Dæli Víðidal,
verður jarðsungin frá
Hvammstangakirkju laugardaginn
15. febrúar kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunarinnar á
Hvammstanga. Kt. 711006-2140. Rnr: 0159-15-200135.
Víglundur Gunnþórsson
Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir Davíð Stefán Hanssen
Vilmar Þór Víglundsson Anna Nordberg
Kristinn Rúnar Víglundsson Hallfríður Sigurbjörg
Óladóttir
Eva Rún, Óskar Freyr, Gabríel Þór og Víglundur Bolli
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Sigríður Ólafsdóttir
Hringbraut 2a, Hafnarfirði,
lést þriðjudaginn 4. febrúar á
hjúkrunarheimili Hrafnistu í Hafnarfirði.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
fimmtudaginn 27. febrúar kl. 13.00.
Ólafur Arason Agnes Arthúrsdóttir
Ingibjörg Þ. Aradóttir Guðmundur Sigurjónsson
Draumey Aradóttir
Jóhannes Harðarson
ömmu- og langömmubörn.
Elsku besti pabbi okkar,
tengdapabbi, afi og langafi,
Kristinn Jón Reynir
Kristinsson
sem lést á Landspítalanum 7. febrúar sl.
verður jarðsunginn frá Stokkseyrarkirkju
laugardaginn 15. febrúar kl. 13.00.
Katrín Helga Reynisdóttir Sigtryggur Harðarson
Árni Sverrir Reynisson
Guðmundur Andrés Reynisson
Kristján Páll Rafnsson Magdalena Szczotka
Kristinn Þór Sigtryggsson
Hlynur Þór Sigtryggsson
Sumarrós Lilja Kristjánsdóttir
Hólmfríður Katla Kristjánsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og systir,
Ragnheiður Ásgeirsdóttir
andaðist á hjúkrunarheimilinu
Sólvangi, Hafnarfirði, þann 8. febrúar.
Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju,
þriðjudaginn 18. febrúar klukkan 13.00.
Blóm vinsamlega afþökkuð en þeir sem vilja
minnast hennar láti minningar- og styrktarsjóð
Sólvangs njóta þess.
Ágústa Hinriksdóttir
Ásdís Hinriksdóttir Ásgeir Jónasson
Ása Hinriksdóttir Þröstur Laxdal Hjartarson
Þór Hinriksson
Ásdís Ásgeirsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Hjálmar Freysteinsson
læknir,
Duggufjöru 4, Akureyri,
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 6. febrúar.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 21. febrúar kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast
hans er bent á Heimahlynningu á Akureyri.
Sigríður Jórunn Þórðardóttir
Guðbjörg Helga Hjálmarsdóttir
Anna Þórunn Hjálmarsdóttir Bergsveinn Þórsson
Þórður Örn Hjálmarsson
Aldís, Baldur, Birkir, Kári og Sigríður Anna
Þökkum innilega auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför
okkar ástkæra föður, tengdaföður,
afa og langafa,
Þorgeirs Guðmundssonar
Strikinu 2,
Garðabæ.
Innilegar þakkir til starfsfólks deildar A-6 í Fossvogi og
deildar L-2 á Landakoti fyrir alúðlega umönnun.
Herborg Þorgeirsdóttir Sigurður I. Guðmundsson
Ragnhildur Þorgeirsdóttir Jóhannes Árnason
Kristín Þorgeirsdóttir Einar F. Hjartarson
Óli V. Þorgeirsson Bodil W. Vestergaard
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar og afi,
Geir Þórðarson
matreiðslumeistari,
Sæviðarsundi 50, Reykjavík,
lést 30. janúar 2020. Útförin fer fram í
kyrrþey að ósk hins látna.
Þórarinn Örn Geirsson
Geir Ingi Geirsson
Guðmundur Geir Þórarinsson
Sólveig Þórólfsdóttir
Robina Courtin er athyglis-verður farandkennari í búddafræðum sem hefur miklu að miðla og hreyfir við hlustendum. Ég tala af reynslu,“ segir Þórhalla
Björnsdóttir sem bauð Courtin að verða
með námskeið hér í borginni nú um
helgina, 15. og 16. febrúar.
Þórhalla kveðst hafa verið nemandi í
búddískum fræðum síðan árið 1975, er
hún var í Nepal á námskeiði sem átti að
vara í mánuð en teygðist upp í þrjá, fyrir
þrábeiðni þátttakenda. „Við vorum yfir
200 manns þarna og bjuggum við mjög
frumstæðar aðstæður, lítil sem engin
þægindi og vorum oft veik. Þrátt fyrir
það virtust f lestir svipað þenkjandi og
vildu halda áfram til að auka við skiln-
inginn og það var látið eftir okkur. Til
gamans má nefna að ég fór í fimm vikna
hlédrag í Frakklandi í maí síðastliðnum
og þar hitti ég aftur marga af þeim sem
voru á þessu sama þriggja mánaða nám-
skeiði fyrir 44 árum. Þarna var Robina
Courtin sem er í dag mikils metinn
kennari og fer víða. Ég spurði hana hvort
hún væri ekki til í að koma við á Íslandi
einn daginn og nú er hún á leiðinni.“
Þetta er alls ekki í fyrsta sinn sem Þór-
halla hefur forgöngu um að fá hingað
fólk til að miðla búddafræðum. Hún
hefur áður staðið fyrir komu kennara
og stórra meistara, meira að segja Dalai
Lama. „Robina ætlaði bara að koma til
mín í vinkonuheimsókn núna en er
líka til í að halda námskeið sem hún
nefnir Hugrakkt hjarta, vitur hugur.
Þar útskýrir hún hvernig við getum
unnið með okkar eigin huga á jákvæðan
og uppbyggilegan hátt, bæði gagnvart
sjálfum okkur og öðrum. Það leiðir til
aukinnar visku og getu til að láta gott af
okkur leiða.“
Þórhalla segir Robinu Courtin hafa
unga orðið andlega sinnaða og mikla
baráttukonu gegn ríkjandi óréttlæti
sem svart fólk, konur og fátækir urðu
fyrir. „Hún er fædd í Ástralíu, er önnur
í sjö barna fjölskyldu. Fór ung að vinna
í prentsmiðju sem fjölskyldan rak og
það varð fyrsti vísirinn að starfi hennar
síðar við útgáfu rita, meðal annars eigin
skrifum. Hún starfaði sem ritstjóri hjá
Wisdom Publication frá 1978 til 1987
og frá 1994 til 2000 ritstýrði hún Man-
dala Magazine,“ lýsir hún og tekur
fram að námskeiðið um helgina verði
í húsakynnum Hugleiðslu-og friðar-
miðstöðvarinnar á Grensásvegi 8 frá
klukkan 10-16 og sé öllum opið svo lengi
sem húsrúm leyfir. Framlög eru frjáls.
gun@frettabladid.is
Hreyfir við hlustendum
Þórhalla Björnsdóttir hefur staðið fyrir komu búddakennara og -meistara til landsins,
jafnvel Dalai Lama. Hún býður upp á námskeið um helgina með Robinu Courtin.
Þórhalla fór á fyrsta búddanámskeiðið árið 1975. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Robina Cortin hefur miklu að miðla.
1693 Heklugos hefst sem spillti gróðri og olli hallæri og
hungursneyð, ekki bara hér á landi heldur einnig í Svíþjóð,
að talið er.
1942 Átján breskir hermenn drukkna í Hrútafirði þegar
tveir prammar sem þeir eru á sökkva. Sex bjargast naum-
lega.
1982 Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar er formlega
tekin í notkun. Aðveituæðarnar eru þær lengstu á Íslandi,
um 75 kílómetrar.
1983 Víða birtir um austanvert landið þegar loftsteinn
þýtur með miklum hraða um himinhvolfið á níunda tím-
anum um kvöld. Hann fellur í sjóinn austur af landinu.
Merkisatburðir
1 3 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R20 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT