Fréttablaðið - 13.02.2020, Síða 37
BÍLAR
Að sögn tímaritsins AutoExpress er ekki von á nýjum Corolla í GRútgáfu fyrr en
2023. GR Corolla mun nota sömu
vél og í nýkynntum GR Yaris. Vélin
er þriggja strokka 1,6 lítra vél sem
skilar 268 hestöflum hvorki meira
né minna. Að öllum líkindum
verður GR Corolla einnig í boði með
fjórhjóladrifinu sem þróað er í sam
vinnu við Makinen Racing. Líkt og í
GR Yaris má búast við að GR Corolla
verði með alveg nýja yfirbygg
ingu þótt bíllinn verði smíðaður
á TNGAundirvagninum. Þó má
búast við fjölliða fjöðrun og f leiri
breytingum. Þessi bíll mun fá harða
samkeppni frá nýjum Honda Civic
Type R, Ford Focus RS og Hyundai
i30 N þegar hann kemur á markað.
Þar sem Corolla er stærri bíll en
Yaris má jafnvel búast við tengil
tvinnútgáfu en það er þó bara spá
dómur eins og stendur.
Öflugri Toyota GR Corolla kemur ekki fyrr en árið 2023
Toyota sýndi
frumútgáfu
af Corollu GR
á ráðstefnu í
Amsterdam
fyrir skömmu.
Á þriðjudag gaf nefnd á vegum umferðaröryggisstofnunarinnar NTSB út skýrslu vegna
banaslyss sem varð á Tesla Model X í
mars 2018. Þar lést Walter Huang, 38
ára gamall starfsmaður Apple, þegar
Model X bíll hans keyrði á vegrið á
113 km hraða. Huang hafði áður
tilkynnt að Autopilotkerfi bílsins
hefði ekki virkað í nokkrum tilfell
um, þar sem bíllinn hefði leitað út á
vegöxlina. Gögn frá bílnum sýndu
að Huang hafði í þau skipti notað
hendurnar til að forðast óhapp en í
árekstrinum hefðu þær ekki verið á
stýrinu síðustu 6 sekúndurnar fyrir
slysið. Enn fremur sýndu gögnin að
bremsurnar voru ekki heldur not
aðar rétt fyrir slysið.
Farsímagögn sýndu að Huang
hefði verið að nota Applesnjallsíma
sinn til að spila tölvuleikinn Three
Kingdoms meðan á akstrinum
stóð, og gögn frá bílnum sýndu að
hendur Huang voru annars staðar
en á stýrinu í alls 18 mínútur. NTSB
ætlar með málið fyrir rétt þann 25.
febrúar næstkomandi til að skera
úr um orsök slyssins, en Tesla hefur
ekki látið hafa neitt eftir sér ennþá
vegna málsins.
Lést með Autopilot
virkan segir
rannsókn NTSB
Eins og sést var Model X bíll Huang
gjörónýtur eftir slysið. REUTERS
Skoda hefur t i l k y n n t hvaða nafn
nýr rafdrif inn
jepplingur frá
þeim mun bera en það er Enyaq.
Hann verður annar bíll Skoda til
að vera 100% rafdrifinn en fyrir var
Citigoe. Enyaq er byggður á MEB
undirvagninum sem er hinn sami
og er undir nýjum VW ID.3 fólks
bíl. Tilraunaútgáfa Enyaq var sýnd
á bílasýningunni í Genf í fyrra og
hét þá Vision iV en sá bíll var með
sportlegu yfirbragði og fjórhjóla
drifi með tveimur rafmótorum.
Hvort Enyak verði í svipuðum stíl
hefur þó ekki verið gefið upp enn.
Enyaq kemur úr gelísku og þýðir
innihald en allir raf bílar Skoda
munu byrja með stafinn E í nafni
sínu. Þar sem allir jepplingar Skoda
enda á Q er auðvelt að sjá að um
jeppling er að ræða. Skoda áætlar
að hafa tíu rafdrifin ökutæki á boð
stólum árið 2022.
Skoda-rafjeppinn
fær nafnið Enyaq
Á sýningarsvæði 7 er búið að setja upp 456 metra langa prófunarbraut. Brautin er með af líðandi beygjum, kröppum
ubeygjum og langan beinan kafla
og fyrir innan brautina er fundar
svæði fyrir 300 gesti. Hægt verður
að prófa 48 gerðir bíla sem sýndir
eru í Genf á þessari braut.
Nokkrar njósnamyndir hafa
verið að birtast af Hyundai i20 að
undanförnu og kannski þess vegna
birti Hyundai hönnunarmynd
af bílnum um leið og staðfest var
að hann yrði frumsýndur á bíla
sýningunni í Genf. Þótt myndin sé
ýkt sýnir hún að bíllinn er hvass
ari í hönnun og framendinn líkari
i10. Framljósin minna þó meira á
i30 sem og heildarsvipur bílsins.
Annars er ekki mikið vitað um
nýja Hyundaibílinn en forvitni
legt verður að sjá hvort einhver
rafdrifin útgáfa leynist á sýningar
svæði Hyundai í Genf. Eins er óljóst
hvort þriggja dyra Coupéútgáfan
haldi áfram. Flestir framleiðendur
hafa hætt við heitari þriggja dyra
útgáfur nema aðal samkeppnisaðil
inn Toyota, sem nýlega kynnti GR
Yaris.
Fimm dyra Audi A3
Í kjölfar áttundu kynslóðar VW
Golf kemur náfrændi hans Audi A3
í fimm dyra útfærslu. Líkt og í Golf
verður rafmagnsútgáfa ekki í boði
þar sem Audi er einnig að þróa sinn
eigin raf bíl í svipuðum stærðar
flokki sem kynntur verður á næsta
ári. Nýr Audi A3 verður samt með
fjölda véla og tvinnútgáfa í boði líkt
og í VW Golf og búast má við ennþá
öflugri S3 og RS3útgáfum í fram
haldinu.
Nýr rafdrifinn Fiat 500
Fiat mun kynna rafútgáfu hins vin
sæla Fiat 500 en njósnamyndir hafa
sýnt að hann líkist mjög núverandi
útgáfu hans. Hann verður samt
á nýjum undirvagni og líklega
er öf lug, rafdrifin Abarthútgáfa
í kortunum líka. Honda kynnti
nýlega andlitslyftingu á Civic og í
Genf verður uppfærð útgáfa Type R
kynnt til sögunnar. Sem betur fer er
316 hestafla forþjöppuvélin ennþá
í boði með þreföldu pústkerfinu
en bíllinn hefur fengið nýjan fram
enda auk uppfærslu á upplýsinga
kerfi. Mercedes mun kynna tengil
tvinnútgáfur CLA og GLA í Genf.
Báðir bílarnir verða í boði með 1,3
lítra bensínvél ásamt 101 hestaf ls
rafmótor. Samtals skilar það 215
hestöflum og rafhlaðan mun duga
fyrir allt að 58 km akstur.
911 Turbo frumsýndur
Margir bíða ef laust spenntir eftir
nýjum Porsche 911 Turbo sem
kynntur verður í Genf að öllum lík
indum. Birst hafa nokkrar myndir
af honum að undanförnu sem gefa
til kynna að stutt sé í kynningu á
honum. Nýr 911 Turbo fær nýjan
loftdreifi undir bílnum og endur
hönnuð loftinntök ásamt léttari
álfelgum. Það sem skiptir þó mestu
er að 3,8 lítra boxervélin fær nýjar
forþjöppur sem mun skila honum
meira afli og hámarkshraða.
Prufubraut verður innandyra
á bílasýningunni í Genf
Fyrstu myndir af sportlegum Audi A3 eru komnar fram á sjónarsviðið og
vænta má enn kraftmeiri S3- og RS3-útgáfa innan skamms.
Andlitslyfting Civic Type R verður Evrópufrumsýnd i Genf.
Á sýningarsvæði 7 er búið að gera stóra prófunarbraut innanhúss fyrir rafdrifnar útgáfur fimmtán bílategunda.
Við höldum áfram
að segja frá því sem
sýnt verður á bíla-
sýningunni í Genf
í mars. Meðal nýj-
unga á sýningunni
er prófunarbraut
fyrir rafdrifna bíla.
TOYOTA GR COROLLA
VERÐUR VÆNTANLEGA MEÐ
SÖMU VÉL OG FJÓRHJÓLADRIF
OG GR YARIS EN HÚN SKILAR 268
HESTÖFLUM
Njáll
Gunnlaugsson
njall@frettabladid.is
1 3 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R24 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð