Fréttablaðið - 13.02.2020, Page 39
1 3 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R26 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
ÞETTA MUN ALLT
SMELLA OG SVO
VERÐUR MAÐUR AÐ TREYSTA
MÓTLEIKARANUM EF MAÐUR
VILLIST EITTHVAÐ. ÞAÐ MÁ
LÍKA SEGJA STOPP.
Þetta er hausverkur en ótrúlega gaman, segir Ebba Katrín Finnsdóttir sem fer með nokkur hlutverk í Þitt eigið leikrit II – Tímaferðalag sem sýnt verður í Þjóðleikhúsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ebba Katrín Finnsdóttir er meðal leikara í Þitt eigið leikrit II – Tíma-ferðalag, sem frumsýnt verðu r f öst ud ag inn 14. febrúar í Kúlunni á
Lindargötu. Sýningin kemur í kjöl-
farið á sýningunni Þitt eigið leikrit I
– Goðsaga. Líkt og í fyrri sýningunni
kjósa áhorfendur nú um framvind-
una, leikritið getur því farið í mjög
margar áttir og engin sýning er eins.
Þetta er vitaskuld mjög krefjandi
fyrir leikara, sem vita ekki fyrirfram
hvaða framvindu áhorfendur munu
velja. Þitt eigið leikrit II – Tímaferða-
lag er enn lengra og viðameira en
Þitt eigið leikrit I – Goðsaga og búið
er að þróa bæði tæknikerfi og kosn-
ingakerfi frá fyrri sýningunni.
Söguþráðurinn er á þá leið að
Anna Hönnudóttir f lakkar um á
ólíkum tímum, ýmist í fortíð eða
framtíð, í þeirri von að geta bjargað
mömmu sinni. Hún lendir í alls
konar hættum á leiðinni.
Þarf að bregðast hratt við
„Ég leik Hönnu Önnudóttur sem
er mamma Önnu Hönnudóttur,
en einnig risarottu, frumkonu I,
barþjón í villta vestrinu og hjúkr-
unarfræðing. Það fer eftir því hvaða
framvindu áhorfendur velja í hvaða
hlutverk við dembum okkur,“ segir
Ebba Katrín.
Leikararnir þurfa að læra heil-
mikinn texta sem nýtist ekki allur.
„Þetta krefst þess að leikstjórinn
sé skipulagður og við erum búin
að vinna eins og hestar undir
stjórn hins skipulagða Stefán Halls
Stefánssonar. Þetta er engu líkt,
við erum að æfa atriði sem verða
kannski í sýningunni og kannski
ekki. Leikari sem er utan sviðs
fær 30 sekúndur til að fara í þann
búning sem hentar atburðarásinni
sem áhorfendur velja og leikari á
sviðinu þarf að bregðast hratt við
í hvert sinn sem áhorfendur velja
nýja framvindu. Þetta er haus-
verkur en ótrúlega gaman. Maður er
svo sannarlega á tánum. Þetta mun
allt smella og svo verður maður að
treysta mótleikaranum ef maður
villist eitthvað. Það má líka segja
stopp. Það gerðist víst í fyrra að leik-
arar vissu ekki í einu atriði hvaða
framvindu áhorfendur hefðu valið
en það leystist farsællega.“
Smá hræðilegt
Ebba Katrín lék í barnasýning-
unum Matthildi og Hamlet litla
og er spurð hvort hún finni mun á
því að leika fyrir börn og fullorðna.
„Maður þarf stundum að berjast
fyrir athyglinni þegar maður leikur
fyrir börn. Samt er þetta svipað. Við
vanmetum stundum krakkana, þau
eru svo klár og eiga skilið drama og
grín og spennu alveg eins og full-
orðið fólk.“
Undir lok æfinga voru krakkar í
salnum. „Þá var mikill spenningur
og stemning í salnum. Leikritið
er fyrir áhorfendur á öllum aldri,
það er spennandi og skemmtilegt
en smá hræðilegt á köflum og þess
vegna getur verið betra fyrir unga
áhorfendur að koma í fylgd með
fullorðnum,“ segir Ebba Katrín.
Þetta er engu líkt
Þitt eigið leikrit II – Tímaferðalag eftir
Ævar Þór Benediktsson verður frumsýnt
á föstudag. Áhorfendur velja framvind-
una. Spennandi og skemmtilegt, segir
Ebba Katrín Finnsdóttir leikkona.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Sigurbjörn Bernharðsson, pró-fessor í fiðluleik við Oberlin Conservatory í Bandaríkjun-
um, hefur tekið við stöðu listræns
stjórnanda Alþjóðlegu tónlistar-
akademíunnar í Hörpu (HIMA).
„Ég hef kennt á námskeiðum
HIMA síðan 2016 og það er mér
mikill heiður að taka við stjórnar-
taumunum á þessari frábæru tón-
listarhátíð. Ég hef kennt og spilað á
námskeiðum úti um allan heim í 20
ár og hlakka til að miðla af reynslu
minni og kynna eigin hugmyndir.
Markmið mitt er að styrkja stoðir
hins öfluga tónlistarlífs og efla þá
þjálfun sem ungir hljóðfæraleik-
arar fá nú þegar á Íslandi,“ segir
Sigurbjörn.
Á ellefu dögum verða haldin tvö
námskeið fyrir nemendur á fiðlu,
víólu og selló: yngri deild fyrir nem-
endur á aldrinum 7 til 12 ára og eldri
deild fyrir nema á aldrinum 13 ára
og eldri. Blásturshljóðfæraleikurum
býðst einnig að taka þátt í kammer-
tónlist eldri deildar. Í báðum deild-
um munu nemendur fá einkatíma
daglega, kammerþjálfun daglega,
masterklassa, meðleikstíma, spila
á einleiks- og kammertónleikum, og
fyrirlestra í markmiðasetningu og
æfingatækni. Einnig verður boðið
upp á námskeið fyrir píanónem-
endur.
HIMA, í samstarfi við Sinfóníu-
hljómsveit Íslands, ætlar að bjóða
einum nemanda í eldri deild að
leika einleik á Tónsprotatónleikum
Sinfóníuhljómsveitar Íslands í sept-
ember. Þetta er nýjung í starfsemi
HIMA og verður prufuspil haldið
9. júní.
Fráfarandi listrænn stjórnandi
Hinnar alþjóðlegu tónlistaraka-
demíu, Lin Wei, verður áfram for-
maður stjórnar og gegnir ráðgjafa-
hlutverki.
Alþjóðlega tónlistarakademían
verður haldin í sumar, dagana 9. til
20. júní, 2020. Umsóknarfrestur er
til 1. mars. – kb
Sigurbjörn listrænn stjórnandi HIMA
Sigurbjörn Bernharðsson, prófessor
í fiðluleik. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
Búningar
www.hókuspókus.is
Verslun og vefverslun
Laugavegi 69 S. 551-7955