Fréttablaðið - 13.02.2020, Side 45
Hönnuðurinn Tom Ford sýndi nýjustu línu sína í Los Ange-les þrátt fyrir að sýningin væri part-ur af Tískuvikunni
í New York. Tom Ford stofnaði sam-
nefnt merki árið 2006 en áður hafði
hann starfað sem listrænn stjórn-
andi hjá Gucci og Yves Saint Laurent
við góðan orðstír. Það var þétt setið
á sýningunni, enda flest stórstirnin
mætt til borgarinnar vegna Óskars-
verðlaunanna. Jeff Bezos, ríkasti
maður heims, mætti með kærustu
sinni Lauren Sanchez og sátu þau á
fremsta bekk ásamt ritstýru banda-
ríska Vogue, Önnu Wintour. Ofur-
fyrirsæturnar Bella Hadid og Kendall
Jenner tóku þátt í sýningunni.
steingerdur@frettabladid.is
Tom Ford sýndi nýjustu línu sína í Los Angeles við góðar viðtök-
ur. Allar helstu stórstjörnurnar voru mættar, þar á meðal ríkasti
maður heims, Jeff Bezos, og Anne Wintour, ritstýra Vogue.
Sýningar Tom
eru alltaf vel
sóttar af fræga
fólkinu enda er
hönnuðurinn
vinmargur og
vinsæll.
Jeff
Bezos,
ríkasti maður
heims, mætti gal
vaskur á sýninguna
með kærustu sinni
Lauren Sanchez.
Ritstýra
virtasta tísku
tímarits heims,
Vogue, gerði sér
ferð til Los Angeles
í miðri tískuviku í
New York.
Renée Zell
weger heilsar
hjónakorn
unum Jason
Momoa og Lisu
Bonet og leik
konunni Kate
Hudson.
Ef spár Tom
rætast verða
áberandi og
stórir eyrna
lokkar áfram
í tísku.
Ofurfyrirsætan Kendall
Jenner var ein þeirra
sem gengu pallana fyrir
Tom Ford.
Margar
af þekktustu
fyrirsætum heims
gerðu sér ferð til Los
Angeles í miðri tísku
vikunni í New York til
að geta sýnt fyrir
Tom.
Joe
Alwyn,
kærasti söng
konunnar Taylor
Swift, er ekki mikið
fyrir sviðljósið en
lét sig þó ekki
vanta. Eftir sýn
inguna þurfti
söngkonan Ciara að fá
eiginmann sinn Russell
Wilson til að klippa sig úr
kjólnum því rennilásinn
bilaði, samkvæmt
innleggi hennar á
Instagram.
Vart þverfótað fyrir stjörnum
á nýjustu sýningu Tom Ford
1 3 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R32 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ