Fréttablaðið - 13.02.2020, Síða 46
Kj ö r d æ m a d ö g u m lýkur í dag en þing-fólk nýtir þá til þess að fara um kjördæmi sín og hitta sveitar-stjórnarfólk, fulltrúa
fyrirtækja og þá kjósendur sem
hugsanlega hafa áhuga á að eiga
við þau orðastað. Framsóknar-
flokknum tókst að skyggja á hina
þingflokkana sjö með mjög óvæntri
og mögulega djúpsálfræðilegri
auglýsingu byggðri á plakati Little
Miss Sun shine og mun líklega halda
stjórnmála- og bókmenntafræðing-
um við efnið um ókomin ár. Hvað
var það minn kæri sem þú vildir
okkur segja, þú frægi skrítni XB?
Þetta virkaði óháð því hvort
þetta var útpælt eða klassískur
klaufaskapur. Ráðgátur heilla og
upplagt fyrir hina að elta í næstu
umferð þar sem enginn skortur
er á margræðum vegamyndum
með pólitískar skírskotanir og
síðast en ekki síst áhrifarík plaköt.
toti@frettabladid.is
Þingmenn úti að aka…
Framsóknarflokkurinn stal senunni með vísun í kvikmynd um
fólk á barmi taugaáfalls með slíkum árangri að andstæðingarnir
hljóta að íhuga sömu fjallabaksleið í næstu hringferð.
The Hills Have Eyes
Miðflokkurinn
Endurgerð hinnar sígildu hryll
ingsmyndar getur ekki klikkað
hjá flokki sem gæti talist endur
gerð Framsóknarflokksins bara
með aðeins djarfari leikstjóra.
Vænisýki fjölskyldunnar sem er
á leið til fyrirheitna landsins Kali
forníu er ekki ástæðulaus þar sem
í ljós kemur að fjöllin hafa vakað
og haft ill augu á henni þegar
hópurinn ekur í flasið á snældu
klikkuðum og stökkbreyttum
mannætum með alvarlegan hegð
unarvanda vegna toxoplasma
sýkingar eftir ofneyslu stera og
hormóna í innfluttu kjöti.
Into The Wild
VG
Sönn saga um hóp sem segir
skilið við allar hugmyndafræði
legar eignir sínar og heldur út í
óvissuna í því sem reynist slíkt
feigðarflan að örlagasagan er
rakin í minningarleiftrum og
endurliti í stórkostlegu landslagi.
Á þessum hættuslóðum verða
ýmsar uppákomur sem valda
verulegum breytingum á flakkar
anum sem bíður þess seint bætur
þegar út úr þokunni líður kynja
mynd með helblátt járn.
Smultronstället
Sjálfstæðisflokkurinn
Þegar maður er orðinn svo gamall
að helstu afrekin hafa fengið á sig
þjóðsagnablæ og vöðvamassinn
rýrnað úr 48% niður í rétt rúm 20%
er ekki furða að bergmanískur
drungi og þunglyndi hellist yfir
þegar fornrar frægðar er leitað á
órannsakanlegum vegum kjós
enda. Villt jarðarber og jafnvel
humarhalar bragðast ósköp
sænskt eitthvað þegar fortíðar
draugur Bergmans horfir fýldur,
þrjóskur og sjálfhverfur um öxl.
The Grapes of Wrath
Flokkur fólksins
Þrúgur reiðinnar spretta og dafna
í frjóum jarðveginum sem Flokkur
fólksins vökvar með tárum leið
togans sem, eins og Tom Joad, má
ekkert aumt sjá og snöggreiðist
þegar hungrað fólk slæst um
brauð og löggan lemur á mótmæl
endum. Einurðin í baráttunni jafn
ast líka á við hörkuna í öreigum
Steinbecks sem héldu áfram þótt
einhverjir heltust úr lestinni.
Eurotrip
Viðreisn
Eftir erfið og dramatísk sam
bandsslit er upplagt að tékka
aðeins á þýsku pennavinkon
unni og draga vini sína með sér í
óvissuferð um Evrópu í leit að ást,
hamingju og tilgangi.
Deliverance
Samfylkingin
Vel haldnir háskólaborgarar og
hálaunalið sem nýtur alls þess
besta sem höfuðborg latté
lepjandi jafnaðarelítunnar sem
hefur gleymt því að hún stendur
á ójafnlaunavottuðum og signum
herðum verkalýðsins bregður sér
af bæ. Rómantíkin snarrennur af
kalli óbyggðanna þegar kratarnir
sigla inn í sína verstu martröð:
Fund með sauðsvörtum almúg
anum.
Pirates of the Caribbean
Píratar
Yarrr! Píratarnir voru brakandi
ferskir og jafnvel flippaðir þegar
þeir lögðu á pólitískt öldurótið en
veltingur áhafnarinnar á strúktúr
flötu þilfarinu fer að vekja álíka
velgju og Johnny Depp þegar
hann reynir að halda sjó eftir að
hinar upprunalegu stjörnurnar
eru stokknar frá borði. Áttavitinn
góði sem vísaði alltaf í rétta átt og
beint á rommið hringsnýst nú á
milli siðareglna og mislitra sokka
hásetans sem líður illa í skóm.
Teitur Guðmundsson
læknir
Slík mein eru annað-hvort annað eða þriðja algengasta
mein karla og kvenna
hérlendis og eru í meiri-
hluta tilfella tengd
reykingasögu einstaklings.
Það liggja nú fyrir óyggjandi
gögn um að það sé bæði
skynsamlegt og þjóð-
hagslega hagkvæmt
að skima fyrir
lungnakrabba-
meini. Á Íslandi
greinast að
meðaltali síðustu
árin um 170 ein-
staklingar með
slík mein og er það
svo að í talsverðum
hluta þeirra finnst
meinið seint, sem
skapar verulega mikið
meiri líkur á því að
meðferð geti reynst
erfið eða jafnvel
ómöguleg.
Einkenni lungnameins
geta á byrjunarstigi
verið lítil sem engin, en
í meirihuta tilvika er
hósti sem er þrálátur
og ekki endilega með
uppgangi. Þeir sem hósta
upp blóði eru oftar en
ekki með lengra genginn
sjúkdóm eða undir-
liggjandi sýkingu
eða bólgu. Hæsi
eða radd-
breyting og
síðan svo-
kölluð
B-einkenni sem eru lystarleysi,
þyngdartap og hiti eru alvarlegri
einkenni sem geta bent til sjúk-
dóms sem er orðinn þróaðri.
Áhættan á lungnameini
minnkar stórkostlega við það að
hætta að reykja og eru til tölur um
það að hún geti allt að helmingast
10 árum frá því viðkomandi
hætti. Það er því aldrei, eða
nánast aldrei, of seint að hætta og
ætti að vinna öllum árum að því.
Okkur hefur gengið vel á Íslandi
að draga úr reykingum en betur
má ef duga skal. Ýmsir þættir til
viðbótar við reykingar hafa áhrif
á þróun meina og má nefna að
efni eins og asbest sem var alræmt
á árum áður en er í lítilli notkun
í dag, mengun og álag á lungu og
svo Radon eru áhættuþættir til
viðbótar við erfðir.
Þeir sem eru einkennalausir
einstaklingar í dag en eru orðnir
55 ára eða eldri og hafa reykt í
að minnsta kosti 30 pakkár, en
það jafngildir einum pakka á
dag í 30 ár og þeir sem hafa náð
55 ára aldrinum en hafa hætt
að reykja fyrir 15 árum eða
skemur eru sá hópur sem ætti
að skima fyrir lungnameini. Það
er enginn staður í dag sem gerir
slíka skoðun og framkvæmir með
reglubundnu eftirliti en það mun
breytast. Það má ekki gleyma því
samt að þeir sem reykja og eru
með einkenni ættu að huga að því
að láta fylgjast vel með lungunum
og jafnvel fá skoðun, það er ekkert
lögmál að þurfa að vera orðinn 55
ára eða eldri til þess að greinast
með lungnakrabbamein. Það er
hægt að greinast mun yngri, en
skilgreiningin á skimun byggir á
þessum aldri og til 75 ára.
Skimunin fer fram með tölvu-
sneiðmyndatækni sem er af lágu
geislunarálagi og er endurtekin
reglulega eða á eins til tveggja
ára fresti eftir því hvaða leið-
beiningar eru skoðaðar. Ef það
finnast hnútar eða breytingar
á mynd er viðkomandi vísað til
sérfræðiteymis sem gerir frekari
rannsóknir til að átta sig á því um
hvaða tegund meins ræðir. Þá er
líka hægt að átta sig á meðferðar-
möguleikum og næstu skrefum.
Í f lestum tilvikum er um að
ræða skurðaðgerð sem er beitt
ef á að reyna læknandi meðferð,
lyfja- og geislameðferð er einn-
ig hluti í mörgum tilvikum og í
þeim verstu þar sem ekki er um
læknandi nálgun að ræða er veitt
stuðningsmeðferð til viðbótar við
þá meðferð sem talin er fýsileg
hverju sinni.
Látum ekki koma aftan að
okkur með slíkan vanda, við
ættum að koma á skimun á
þessum meinum og utanumhaldi
öllum til góða.
Skimun fyrir lungnakrabbameini
capacent.is
Við finnum rétta
einstaklinginn í starfið
Ráðgjafar okkar búa
yfir víðtækri þekkingu
á atvinnulífinu og
veita trausta og
persónulega ráðgjöf.
L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 33F I M M T U D A G U R 1 3 . F E B R Ú A R 2 0 2 0