Fréttablaðið - 13.02.2020, Side 47
Tónlistar- og baráttu-konan Sólborg Guð-brandsdóttir hefur vakið verðskuldaða athygli landsmanna f y r i r djör f u ng og
dugnað í baráttunni gegn kyn-
ferðisof beldi. Hún heldur úti síð-
unni Fávitar á samskiptamiðlinum
Instagram þar sem hún er með
rúmlega 25 þúsund fylgjendur. Á
síðunni birtir Sólborg skjáskot af
dæmum um stafrænt ofbeldi, ásamt
því að birta hughreystandi orð til
þolenda. Hún hefur verið forkólfur
í baráttunni hérlendis gegn kyn-
bundnu of beldi, en hún mun setja
viðburðinn Milljarður rís sem fram
fer í Hörpu á morgun.
„Hugmyndin kemur frá sænskri
Instagram-síðu sem heitir Assholes
Online sem Linnéa Claeson heldur
úti. Vinur minn benti mér á hana og
saman fórum við af stað með þetta
verkefni. Við vorum bara orðin
svo þreytt á normalíseringunni á
kynferðislegri áreitni í samfélag-
inu okkar og þá sérstaklega staf-
ræna of beldinu. Ég hélt svo áfram
með þetta og síðan hefur stækkað
gríðarlega síðustu ár,“ segir Sólborg.
Tímafrekt en mikilvægt
Sólborg gerði sér engan veginn
í hugarlund hve hratt verkefnið
myndi vinda upp á sig.
„Nei, ég gerði mér engan veginn
grein fyrir því. Þetta hefur gjör-
breytt lífinu mínu. Þetta byrjaði
sem nokkur skjáskot á Instagram
en í dag er þetta vinnan mín og það
sem ég ver stærstum hluta af lífinu
mínu í. Ég hef reynt að taka þetta
einn dag í einu. Fyrir einu og hálfu
ári síðan voru sex þúsund fylgjend-
ur á síðunni. Í dag eru þeir rúmlega
26 þúsund. En ég má líka eiga það að
ég er búin að vera hörkudugleg við
það að gera síðuna sem sýnilegasta
í samfélaginu okkar. Ég ver tíma
á hverjum einasta degi í að svara
skilaboðum þar inn á eða skrifa
færslur, mæta í viðtöl til fjölmiðla og
svo hef ég síðastliðið ár ferðast um
landið og rætt kynferðisof beldi við
þúsundir Íslendinga. Þetta gerðist
ekki af sjálfu sér en ég er aftur á móti
virkilega þakklát fyrir samstöðuna.
Hún skiptir máli,“ segir hún.
Allt þess virði
Sólborg segir jákvæðu viðbrögðin
algjörlega gera það þess virði að
standa í þessu, þrátt fyrir fyrir allt
mótlætið.
„Alveg hundrað prósent. Ég fæ
miklu meiri ást heldur en nokkurn
tímann hatur og það er það sem
skiptir mestu máli. Fylgjendurnir
mínir standa algjörlega við bakið
á mér og peppa mig áfram og þau
vita það líka að á móti er ég til
staðar fyrir þau. Fólk er oft hrætt
við breytingar en staðnað samfélag
er eitthvað sem við ættum ekki að
sætta okkur við, þó óvissan um það
hvað taki við geti oft verið stress-
andi. Við getum stöðugt verið að
bæta okkur. Þetta snýst ekki um að
vera fullkominn, heldur að átta sig á
þeim mistökum við sem gerum sem
manneskjur, reyna að læra af þeim
og gera þá betur næst,“ segir hún.
Sólborg viðurkennir þó að það
geti tekið á andlega að helga sig mál-
staðnum á þennan hátt.
„Það getur gert það en ég er að
læra það að setja sjálfri mér skýrari
mörk, bæði varðandi það hversu
miklum tíma ég ver í þetta á hverj-
um degi og hvenær ég geri það. Ég
get ekki hjálpað öðrum þegar ég er
ekki á góðum stað andlega sjálf. Það
er því mikilvægt að bakka frá þegar
maður treystir sér ekki til að standa
í baráttunni, hlúa vel að sjálfum sér
og koma svo aftur til baka þegar
maður hefur safnað kröftum. Svo
mæli ég hiklaust með því að hafa
góðan sálfræðing á kantinum og
gott fólk sem grípur mann og kemur
manni aftur á jörðina,“ segir hún.
Mikill heiður
Milljarður rís fer fram í áttunda
sinn í Hörpu á morgun. Sólborg seg-
ist upplifa það sem mikinn heiður
að vera fengin til að opna hátíðina.
„Það er algjör heiður. UN Women
hefur gert svo ólýsanlega mikilvæga
hluti til að valdefla konur um allan
heim og ég er glöð að fá tækifæri til
að gera þetta með þeim. Ég er þeim
virkilega þakklát.
Viðburðurinn snýst náttúrulega
fyrst og fremst um að sýna sam-
stöðu með brotaþolum of beldis.
Þriðja hver kona í heiminum í
dag verður fyrir of beldi og það
er óásættanleg staða. Ég ætla að
mæta til að einmitt gera það, sýna
konum að ég sé með þeim í liði, ég
f lyt svo ræðu og set hátíðina. Ætli
ég endi svo ekki á dansgólfinu að
sýna nokkur misgóð dansspor og
gleðjast yfir kraftinum sem á eftir
að myndast í Hörpu. Þegar sterkar
konur með markmið koma saman
geta magnaðir hlutir gerst,“ segir
Sólborg.
Hverju má fólk búast við á við-
burðinum?
„Samstöðu, krafti, alls konar til-
finningum, rassadilli, góðri tónlist
og drottningarstælum. Allt eins og
það á að vera.“
Milljarður rís hefst í Hörpu á
morgun klukkan 12.15 og eru allir
velkomnir til að dansa gegn ofbeldi.
Ókeypis aðgangur og leggja má
gjaldfrjálst á meðan húsrúm leyfir.
steingerdur@frettabladid.is
FÓLK ER OFT HRÆTT
VIÐ BREYTINGAR EN
STAÐNAÐ SAMFÉLAG ER
EITTHVAÐ SEM VIÐ ÆTTUM
EKKI AÐ SÆTTA OKKUR VIÐ.
04
03
20
Silfurberg, HarpaBEIN ÚTSENDING // OPIN DAGSKRÁ
HLUSTENDa
VERÐLAUNIN
2020
TAKTU ÞÁTT Í VALINU
Þetta hefur gjörbreytt lífi mínu
Sólborg setur viðburðinn Milljarður rís í Hörpu á morgun. Hún er í fremstu víglínu í baráttunni gegn kynbundnu
ofbeldi og heldur úti síðunni Fávitar. Þar birtir hún dæmi um stafrænt ofbeldi og sýnir þolendum stuðning.
Sólborg setur viðburðinn Milljarður rís í hádeginu á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Milljarður rís
Tónlistarstjóri Milljarður rís
er DJ Margeir en fram koma
Elísabet Ormslev, Ellen Krist-
jánsdóttir, Hera Björk, Matt-
hildur, Sigga Beinteins, Sigríður
Thor lacius, Sísí Ey, Sólborg
Guðbrands og Tara Mobee.
1 3 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R34 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð