Morgunblaðið - 21.11.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2019
Ríkisendurskoðun hefur komistað þeirri niðurstöðu að Rík-
isútvarpið skuli fara að lögum.
Þetta er auðvitað merkileg nið-
urstaða og
óvænt,
enda hefur
Ríkisút-
varpið
lengi talið
sig hafið
yfir lög.
Það lögbrot sem Ríkisendurskoðun
fjallaði um nú er að Ríkisútvarpið
hefur neitað að stofna dótturfélag
fyrir „aðra starfsemi en fjölmiðlun
í almannaþágu,“ eins og það er
orðað.
Tilgangurinn með stofnun slíksdótturfélags væri að reyna að
draga úr skaðsemi af starfsemi
Ríkisútvarpsins fyrir þá sem þurfa
að keppa við þessa ríkisstofnun.
Auðvitað hefði slík aðgerð afar
takmörkuð áhrif en segja má að
allt sé betra en ekkert til að reyna
að draga úr yfirgangi stofnunar-
innar, sem hegðar sér til dæmis
eins og fíll í postulínsbúð á auglýs-
ingamarkaði.
Þar hefur Ríkisútvarpið gengiðfram með þeim hætti að önn-
ur ríkisstofnun, Samkeppniseft-
irlitið, og ekki síður þriðja rík-
isstofnunin, fjölmiðlanefnd, hefðu
gert eitthvað í málinu ef þær væru
ekki uppteknar við að trufla
einkarekna miðla sem reyna af
veikum mætti að keppa við rík-
isrisann.
Ekki er hægt að útiloka að Rík-isútvarpið muni hér eftir fara
að þeim lögum sem fyrirtækið hef-
ur brotið að mati Ríkisendurskoð-
unar, þó að ekki sé ástæða til að
gefa sér að svo fari. Stofnunin
gæti til dæmis tekið upp á því að
óska eftir nýjum lögum og ef
marka má reynsluna kæmist hún
jafnvel upp með það.
Ríkisútvarpið
og óskalögin
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Fyrstu tíu mánuði þessa árs sóttu
um 700 manns um hæli hér á landi;
langflestir þeirra eru fullorðnir
karlmenn. Fjölmennasti hópur um-
sækjenda er rík-
isborgarar frá
Írak (128), Vene-
súela (101), Níg-
eríu (43), Afgan-
istan (43) og
Albaníu (43).
Útlend-
ingastofnun veitti
263 hælis-
umsækjendum
vernd, viðbót-
arvernd eða dval-
arleyfi af mann-
úðarástæðum á sama tímabili,
flestum frá fyrstu þremur áður-
nefndu ríkjum. Er þetta meðal þess
sem fram kemur í nýlegri tölfræði
Útlendingastofnunar sem birt er á
heimasíðu stofnunarinnar.
Þeir sem sóttu um hæli á Íslandi
fyrstu tíu mánuði þessa árs eru af
72 þjóðernum. Langflestir þeirra
eru fullorðnir karlmenn (349), þar á
eftir koma konur (159), drengir (84)
og stúlkur (95). Fylgdarlausir
drengir eru níu talsins, en engin
fylgdarlaus stúlka kom til landsins á
þessu tímabili í þeim tilgangi að
sækja um hæli.
Fylgdarlausu drengirnir koma
frá Sómalíu (5), Albaníu (2), Jemen
(1) og Afganistan (1).
Í október síðastliðnum komu alls
73 hælisleitendur til landsins. Voru
þeir 99 í september, 78 í ágúst, 73 í
júlí, 49 í júní, 57 í maí, 44 í apríl, 77 í
mars, 74 í febrúar og 72 í janúar.
Alls var 165 hælisleitendum vísað
úr landi sama tímabil á grundvelli
Dyflinnarreglugerðar. Flestum var
vísað í burtu í september (31), mars
(26), júní (20) og maí (19). Fæstum
var vísað úr landi í apríl (7).
Allt að 5 milljónir ólöglegir
Um 3,9-4,8 milljónir einstaklinga
eru sagðar búa ólöglega innan ríkja
Evrópu samkvæmt gögnum sem
taka til ársins 2017. Fréttaveita
AFP greinir frá þessu.
Er um að ræða einstaklinga sem
komu ólöglega inn í Evrópuríki, eru
með útrunnið dvalarleyfi, bíða
brottvísunar eða eru í hælismeð-
ferð. Þá voru 30% þessa ein-
staklinga sögð koma frá Afganistan
og 21% frá ríkjum Norður-Afríku
og Mið-Austurlöndum.
Um 700 hafa sótt
um hæli hér á landi
Dyflinnarendursendingar 165 talsins
Hæli Mótmæli
á Austurvelli.
Vegagerðin, Kópavogsbær og
Reykjavíkurborg hafa auglýst eftir
ráðgjöfum til að taka þátt í sam-
keppni um hönnun brúar yfir Foss-
vog. Er hér verið að stíga fyrsta
skrefið varðandi hönnun brúar, sem
hefur verið í burðarliðnum í mörg ár.
Fram kemur í útboðsauglýsing-
unni að um sé að ræða opið forval
þar sem valin verða fimm hönn-
unarteymi til að taka þátt í sam-
keppni á grundvelli hæfni og fyrri
reynslu. Tilboðum á að skila fyrir kl.
12.00 föstudaginn 20. desember
2019. Forvalið er jafnframt auglýst á
evrópska efnahagssvæðinu.
Gert er ráð fyrir um 270 metra
langri brú yfir Fossvog, frá norður-
enda Bakkabrautar á Kársnesi að
flugbrautarenda Reykjavíkur-
flugvallar vestan Nauthólsvíkur.
Markmiðið er að bæta samgöngu-
tengingar milli Reykjavíkur og
Kópavogs og styðja við vistvæna
samgöngukosti. Brúin verður fyrir
umferð gangandi, hjólandi og al-
menningssamgöngur.
Bæjarstjórn Kópavogs hefur þeg-
ar afgreitt skipulagstillögur vegna
brúargerðarinnar. Á síðasta fundi
skipulagsfulltrúa Reykjavíkur var
lögð fram tillaga að breytingu á
deiliskipulagi Nauthólsvíkur vegna
aðkomutengingar við fyrirhugaða
Fossvogsbrú á um 350 metra kafla.
sisi@mbl.is
Hönnun Fossvogsbrúar að hefjast
Fimm hönnunarteymi verða valin í forvali Munu taka þátt í samkeppni
Fossvogur Nýja brúin mun liggja
milli Reykjavíkur og Kópavogs.
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
Opið:Mán. - föst. kl. 09-18
Laugardaga kl. 11-15
innréttingar
danskar
í öllherbergiheimilisins
FjölbreyttúrvalaFhurðum,
Framhliðum,klæðningumogeiningum,
geFaþér endalausamöguleikaá
aðsetjasamanþitteigiðrými.
sterkar og glæsilegar