Morgunblaðið - 21.11.2019, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2019
Áform um frumvarp til laga um Há-
lendisþjóðgarð voru birt í Samráðs-
gáttinni (samrad.is) í gær. Þar má
lesa áform um lagasetningu og mat
á áhrifum Hálendisþjóðgarðs.
Stofnun þjóðgarðs á miðhálend-
inu er eitt af markmiðum ríkis-
stjórnarinnar, eins og kemur fram í
stefnuyfirlýsingu hennar. Þver-
pólitísk nefnd um málið hefur verið
að störfum frá vorinu 2018. Í henni
sitja fulltrúar allra flokka á Alþingi
auk tveggja fulltrúa frá Sambandi
íslenskra sveitarfélaga, fulltrúa frá
umhverfis- og auðlindaráðuneytinu
og frá forsætisráðuneytinu.
„Nefndinni var m.a. ætlað að skil-
greina mörk þjóðgarðsins, setja
fram áherslur um skiptingu land-
svæða innan hans í verndarflokka,
gera tillögur að helstu áherslum í
stjórnunar- og verndaráætlun og
atvinnustefnu fyrir þjóðgarðinn,
taka afstöðu til stjórnskipulags
hans, fjalla um svæðisskiptingu og
rekstrarsvæði og greina tækifæri
með stofnun þjóðgarðs á byggða-
þróun og atvinnulíf,“ segir í kynn-
ingu. Hugmyndir að einstökum
þáttum sem nefndin hefur fjallað
um hafa þegar verið kynntar.
Einnig hefur nefndin staðið fyrir
kynningarfundum og fundaröðum
með sveitarstjórnum og hagaðilum.
Miðhálendið markast af miðhá-
lendislínu sem í grunninn er lína
sem er dregin milli heimalanda og
afrétta. Þar eru stærstu víðerni
landsins og fremur fá og dreifð
mannvirki. Miðhálendið er eitt
stærsta samfellda svæðið í Evrópu
þar sem ekki er föst búseta.
Í mati á áhrifum lagasetningar
kemur m.a. fram að gert sé ráð fyr-
ir því að Hálendisþjóðgarður verði
sjálfstæð eining innan stofnunar
sem á að fara með málefni allra
friðlýstra svæða og þjóðgarða. Þá
er gert ráð fyrir því að Vatna-
jökulsþjóðgarður verði hluti Há-
lendisþjóðgarðs auk þeirra land-
svæða sem þegar hafa verið friðlýst
á grundvelli náttúruverndarlaga og
heyra undir stjórnsýslu Umhverfis-
stofnunar.
Umsagnarfrestur um áformin
rennur út 4. desember nk. Umsagn-
ir verða birtar jafnóðum og þær
berast. gudni@mbl.is
Áforma frumvarp
um hálendisþjóðgarð
Morgunblaðið/RAX
Austurbjallar Mikil náttúrufegurð.
Óskað eftir umsögnum um áformin í Samráðsgáttinni
Nokkrir þeirra sem sagt höfðu upp
störfum á Reykjalundi hafa dregið
uppsagnir sínar til baka og býst
formaður starfsstjórnar við því að
það geri fleiri næstu daga.
Þetta staðfesti Stefán Yngvason,
formaður starfsstjórnarinnar, í
samtali við mbl.is. Hann á von á því
að flestir dragi uppsagnir sínar til
baka. „Það mun skýrast í þessari
viku og næstu hvernig þetta fer.“
„Það er almennt séð góð stemn-
ing í hópnum hérna upp frá og fólk
er ánægt með að vera komið með
starfsstjórn og því fylgir auðvitað
öryggi. Við höfum bara fengið góða
strauma frá starfsfólki,“ sagði Stef-
án ennfremur við mbl.is.
Starfsstjórnin hefur fullt sjálf-
stæði og óskorað umboð til athafna
við stjórnun stofnunarinnar meðan
unnið verður að því að aðgreina
rekstur endurhæfingarþjónustu
Reykjalundar frá annarri starfsemi
og eignum SÍBS.
Draga uppsagnir
sínar til baka
Nýbýlavegur 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
KERTI
úr hreinu bývaxi
DIMMALIMM
Laugavegi 53 | Sími 552 3737 | Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17
Skoðið úrvalið á facebook
DimmalimmReykjavik
Str 26-36
95
Bolur 3.795
Pils 6.295
Jakki 8.295
Kjóll 7.595
Kápa 10.995
Ný sending af
jólafötum
Verð frá 6.6
Vesti
5.595
Skyrta &
slaufa
4.995
Skipholti 29b • S. 551 4422
DÁSAMLEGAR DÚN-ÚLPUR/KÁPUR
Gæðavottaðar • 2 síddir • St. 36-48 • Margir litir
Fylgdu okkur á facebook
Jakki
Verð:
8.900,-
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Str. S-XXL
Fleiri litir
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
Flottar yfirhafnir fyrir flottar konurTvö fyrirtæki bjóða í ljósleiðarakerfiHvalfjarðarsveitar sem sveitarfélag-
ið auglýsti til sölu. Míla ehf. býðst til
að greiða tæpar 84 milljónir fyrir
kerfið og Gagnaveita Reykjavíkur
rúmar 49 milljónir.
Hvalfjarðarsveit byggði upp ljós-
leiðarakerfi á eigin kostnað í öllu
sveitarfélaginu á árunum 2013 til
2015. Kostaði framkvæmdin um 370
milljónir króna, á þágildandi verð-
lagi.
Linda Björk Pálsdóttir sveitar-
stjóri segist ánægð með að hafa
fengið tvö tilboð í kerfið. Hún segir
að nú verði tilboðsgjöfum boðið til
kynningarfundar, eins og kveðið var
á um í útboðsgögnum. Í kjölfarið
verði unnið úr gögnunum og ákveðið
með samninga. helgi@mbl.is
Míla býður 84 millj-
ónir í ljósleiðara
Hvalfjarðarsveit vill selja gagnaveitu
Morgunblaðið/Eggert
Ljós Grafið fyrir ljósleiðara við hús-
vegg. Víða er búið að tengja.