Morgunblaðið - 21.11.2019, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2019
Yfir 20 þúsund Pólverjar búa á Ís-
landi og fjölmargir pólskumælandi
Íslendingar. Það ætti því ekki að
koma á óvart að íslenskir bókaút-
gefendur gefi þessum fjölda gaum
og birtist það m.a. í því að komnar
eru út þrjár bækur fyrir yngstu
lesendurna með íslenskum og
pólskum texta.
Heiða Björk Þórbergsdóttir hjá
Bókabeitunni, sem gefur bæk-
urnar út, segir að þegar Bókabeit-
an hafi keypt útgáfuréttinn að
bókunum, sem komu upphaflega
út vestan hafs, og áttað sig á að í
upprunalegu bókunum voru tvö
tungumál, hafi gefið augaleið að í
íslensku útgáfunni yrði pólska hitt
málið.
„Hér á landi hafa um 20.000
Pólverjar fasta búsetu og má því
gera ráð fyrir nokkrum fjölda
barna sem nota þessi tvö tungu-
mál, pólsku og íslensku, jöfnum
höndum. Svona einfaldar bækur
sem vekja áhuga barnanna geta
orðið ágætistæki til að aðstoða
bæði börn og foreldra við ís-
lenskunám.“
Búsett á Íslandi í tæp 30 ár
Barbara Gunnlaugsson sneri
textanum á pólsku, en hún hefur
verið búsett á Íslandi í tæp 30 ár,
á tvær dætur, eina fædda í Pól-
landi og aðra á Íslandi, og íslensk-
an eiginmann. Hún vinnur hjá
fjölmenningarsetrinu á Ísafirði.
Bækurnar heita Glitrandi jól, /
Dzinsowe swieta, Áskorun Bersa /
Marshall bije rekord og Fyrsta
óskin / Pierwsze zyczenie. Heiða
segir að Bókabeitan sé ekki með
frekari útgáfu á pólsku sem stend-
ur, „en það verður gaman að sjá
hvernig þetta leggst í lesendur og
ekkert ólíklegt að við gerum fleiri
slíkar tilraunir“. arnim@mbl.is
Gefur út þrjár
barnabækur á
íslensku og pólsku
Bókabeitan vildi höfða til Pólverja á
Íslandi, sem eru yfir 20 þúsund talsins
Tvímála Barbara Gunnlaugsson
sneri bókunum á pólsku.
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
HLUTHAFAFUNDUR
HluthafafundurBrims hf. verður haldinnfimmtudaginn
12. desember2019 ímatsal félagsins aðNorðurgarði 1,
101Reykjavík og hefst hann klukkan17:00.
Fundurinn fer framá íslensku.
DAGSKRÁ
1. Tillaga um að staðfesta ákvörðun stjórnar um kaup félagsins á öllu hlutafé í
sjávarútvegsfyrirtækjunum, Fiskvinnslunni Kambi hf. ogGrábrók ehf.
2. Önnurmál.
AÐRARUPPLÝSINGAR
Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðin mál tekin til
meðferðar á hluthafafundi ef hann gerir um það
skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar á
netfangið hluthafafundur@brim.ismeð það
löngum fyrirvara að unnt sé að taka málið á dagskrá
fundarins. Þannig skulu óskir hluthafa liggja fyrir eigi
síðar en kl. 17:00 mánudaginn 2. desember 2019,
þ.e. 10 dögum fyrir fundinn.
Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni
krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins njóta ekki
atkvæðisréttar.
Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á
fundarstað.
Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn geta:
a) veitt öðrum skriflegt umboð
b) greitt atkvæði skriflega
Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn
þessara kosta er bent á að kynna sér á heimasíðu
félagsins hvernig þeir skuli bera sig að. Þar er að
finna leiðbeiningar um skráningu og form skjala og
hvernig þeim skuli skilað til félagsins.
Dagskrá, tillögur og öll skjöl sem lögð verða fyrir
fundinn eru hluthöfum tiltæk á íslensku, á heimasíðu
félagsins og á skrifstofu félagsins á venjulegum
skrifstofutíma. Endanleg dagskrá og tillögur verða
birtar viku fyrir fundinn.
Allar nánari upplýsingar um fundinn má finna á
vefsíðu félagsinswww.brim.is
Stjórn Brims hf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Lóðrétt öxuldæla sem sett hefur
verið upp í laxahrognastöð Stofn-
fisks í Vogum hefur gjörbreytt
möguleikum stöðvarinnar til að
dæla upp sjó. Dælan stóreykur af-
köst borholunnar og notar þriðjungi
minni orku en eldri búnaður.
Stofnfiskur hefur verið með hefð-
bundna borholudælu í stöðinni.
Ragnar Karlsson, framkvæmda-
stjóri Véla ehf., sem útvegaði nýju
dæluna frá Komak í Hollandi, segir
að ekki hafi verið hægt að keyra
gömlu dæluna á fullum afköstum
því þá hafi myndast tæring á yf-
irborði stálsins, svokölluð einbólu-
tæring.
Hann segir mikilvægt fyrir fisk-
eldisstöðvar að ná upp úr borholum
sínum sem mestu af sjó eða fersku
vatni og fyrir hitaveitur að ná sem
mestu af heitu vatni.
Þriðjungi minni orkunotkun
Dælan sem Stofnfiskur fjárfesti í
er þannig útbúin að rör er lagt 22
metra niður í holuna og túrbínan er
neðst. Ofan á holuna, í dæluskúrn-
um, kemur kúpling og rafmótor þar
ofan á. Í hefðbundinni borholudælu
er rafbúnaðurinn niðri í holunni og
þrengir að vatnsflæðinu.
Kaup á þetta öflugum búnaði og
uppsetning eru veruleg fjárfesting,
sem hleypur á tugum milljóna. Jón
Reynisson, tæknistjóri Stofnfisks,
segir að nýja dælan nái miklu meira
vatni upp en hefðbundin borholu-
dæla. Það skipti einnig verulegu
máli að hún er mun hagkvæmari í
rekstri. Telur hann að hún noti um
þriðjungi minni orku við dælingu á
sama vatnsmagni.
Þá kemur fram í frétt á heimasíðu
Komak að starfsmenn fyrirtækisins
sem settu dælubúnaðinn upp séu
ánægðir með hversu lítill titringur
fylgi notkun dælunnar.
Stofnfiskur framleiðir laxahrogn í
stöðinni í Vogum og annarri á Kal-
manstjörn og selur til seiðastöðva
hér og erlendis. Jón telur að dælur
af þessari gerð henti víða í fiskeldi.
Ragnar segir að dælurnar henti
einnig vel í borholum á jarðhita-
svæðum þar sem rennsli er aukið
með dælingu.
Nýjar dælur auka
afköst og spara orku
Hjálpa fiskeldisfyrirtækjum og hitaveitum við vatnsöflun
Ljósmynd/Aðsend
Risadæla Unnið að uppsetningu nýju dælunnar hjá Stofnfiski í Vogum.
Dælan er nú komin í full afköst og búið að ganga frá í dæluskúrnum.
Bryndís Hlöðversdóttir ríkis-
sáttasemjari tekur við embætti
ráðuneytisstjóra í forsætisráðu-
neytinu frá og með 1. janúar. Bryn-
dís er lögfræðingur að mennt og
hefur verið ríkissáttasemjari frá
2015. Áður starfaði hún m.a. sem
rektor og alþingismaður.
Ragnhildur Arnljótsdóttir, nú-
verandi ráðuneytisstjóri, fer til
starfa í utanríkisþjónustunni. Hún
mun undirbúa opnun nýrrar fasta-
nefndar Íslands hjá Evrópuráðinu í
Strassborg og tekur við embætti
þar 1. júní. Hún mun einnig vinna
að undirbúningi formennsku Ís-
lands í Evrópuráðinu sem hefst árið
2022. gudni@mbl.is
Bryndís verður nýr
ráðuneytisstjóri
Bryndís
Hlöðversdóttir
Ragnhildur
Arnljótsdóttir
Bændasamtök Íslands hafa ákveðið
að fresta um eina viku atkvæða-
greiðslu meðal kúabænda um sam-
komulag við ríkið um endurskoðun
á búvörusamningi. Er það gert
vegna umræðu um efni sam-
komulagsins og áskorun 340 bænda
um að samninganefndir setjist aft-
ur að samningaborði. Boðað hefur
verið til nýrrar atkvæðagreiðslu og
hefst hún á hádegi 27. nóvember og
stendur í slétta viku. Atkvæða-
greiðslan er rafræn. Rúmlega 1.300
bændur eru á kjörskrá.
Kosningu frestað