Morgunblaðið - 21.11.2019, Blaðsíða 34
34 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2019
hafði þar með eftirlit með sjálfum
sér. Heitir flugmálastjórnin nú betr-
umbótum og kveðst ekki gefa út
flughæfisskírteini fyrir 737 MAX
fyrr en að lokinni rækilegri yfirferð
allra gagna.
Í lok síðustu viku sögðust fulltrú-
ar FAA vænta þess að Boeing 737
MAX-farþegaflugvélin tæki flugið
aftur í janúar en þar var um eins
mánaðar seinkun frá fyrra mati
stofnunarinnar. Þremur dögum síð-
ar frestaði bandaríska flugfélagið
United Airlines endurkomu farþega-
þotunnar um tvo mánuði eða fram til
4. mars 2020. Dagana á undan höfðu
flugfélögin Southwest Airlines og
American Airlines tekið samskonar
ákvörðun.
Í vikunni sagðist Boeing vænta
þess að fá flughæfisvottorð svo þot-
an kæmist aftur í þjónustu eigenda
sinna fyrir árslok. Yrði þó að bíða
fram í janúar með að hefja áætl-
FRÉTTASKÝRING
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Boeing-flugvélaverksmiðjurnar
segjast vinna náið með fulltrúum
bandaríska loftferðaeftirlitsins og
flugmálastjórnarinnar (FAA) að
nauðsynlegum breytingum á 737
MAX-þotunum til að þær verði ótví-
rætt öruggar þegar þær fljúga á ný.
Allar 737 MAX-þotur heimsins hafa
verið í flugbanni frá mars sl., í kjöl-
far tveggja flugslysa sem kostuðu
346 manns lífið.
Á bak við tjöldin er Boeing hins
vegar sagt hafa lagt hart að FAA að
flýta vottunarferlinu svo farþegaþot-
an komist sem fyrst í notkun. Þetta
segir tímaritið Business Insider og
ber fyrir sig fjölda heimilda. Þunga-
miðja vottunarferlisins er snýst um
sjálfvirkni stjórnkerfa þotunnar sem
reyndust gölluð og voru helsta orsök
flugslysanna tveggja.
Að sögn New York Times og
fréttastofunnar Reuters hefur Bo-
eing beitt FAA tangarsókn í þeirri
von að koma þotunni fyrr í loftið en
ella. Annars hefur Boeing viljað
hefja endurþjálfun flugmanna og
þar með prófun nýs hugbúnaðar áð-
ur en FAA hefur samþykkt hann til
fulls. Hins vegar fóru verksmiðj-
urnar fram á það við FAA að fá að
afhenda kaupendum nýlega smíð-
aðar 737 MAX-þotur áður en þær
fengju flughæfisskírteini svo stytta
mætti tímabilið frá vottun þotunnar
og þar til hún hæfi farþegaflug.
Taki nauðsynlegan tíma
FAA lét ekki undan Boeing, að
sögn tímaritsins The Times, og benti
á, að verkfræðingum hefði ekki þótt
skynsemi í því að biðja flugmenn að
prófa nýjan hugbúnað áður en hann
hefði öðlast fullt samþykki þar sem
hann gæti enn átt eftir að taka
breytingum. Hafa yfirmenn FAA
hvatt undirmenn sína til að taka all-
an þann tíma sem þeir telja sig þurfa
við skoðun og mat á flugvélinni, bæði
út á við sem inn á við.
„Við eigum í samskiptum daglega
við FAA … og embættismenn loft-
ferðaeftirlits umhverfis jörðina“
varðandi endurkomu 737 MAX,
sagði Stan Dealforstjóri Boeing á
blaðamannafundi í Dubai, daginn
fyrir opnun alþjóðlegrar flugsýn-
ingar sem þar var opnuð sl. sunnu-
dag. „Áfram vinnum við af kost-
gæfni að nauðsynlegum breytingum
á flugvélinni. Okkur miðar fram,“
bætti Deal við.
FAA hefur sætt afar harðri gagn-
rýni fyrir að hafa á sínum tíma fram-
selt öryggiseftirlit með flugvéla-
smíðinni og vottun mikilvægra hluta
og kerfa þotunnar til Boeing, sem
unarflug; áður þyrfti að ljúka nauð-
synlegri endurþjálfun flugmanna á
þotuna.
Deal sagði að heimild frá FAA og
öðrum loftferðayfirvöldum víða um
heim myndi móta hvenær flugvélin
kæmist aftur í gagnið. Hann sagði
verksmiðjurnar eiga í viðræðum við
flugfélög um bætur vegna kyrrsetn-
ingarinnar. Hún hefur reynst miklu
umfangsmeiri og tímafrekari þar
sem Boeing þurfti að breyta stjórn-
kerfum flugvélarinnar auk þess sem
fyrirtækið hefur þurft að liggja und-
ir þungum ámælum vegna þotunnar
frá embættismönnum og stjórn-
málamönnum.
Kreppa Boeing vegna 737 MAX er
ein sú alvarlegasta sem fyrirtækið
hefur þurft að kljást við í 103 ára
sögu sinni. Hefur hún þegar kostað
fyrirtækið tugi milljarða dollara og
sér ekki fyrir endann á þeirri hlið
málsins.
Morgunblaðið/Hari
Styttist í endurkomu 737 MAX
Maxinn á brott Einni
fjögurra MAX-véla
Icelandair flogið á brott
til vetrargeymslu.
Frá Boeing 737-100 til Boeing 737 MAX
1967 Fyrsta
flug 737 þotu
Boeing. Bar hún
módeltáknið
737-100 en aðeins
lengri útgáfa nefnd
737-200. Voru þær
fulltrúar fyrstu
kynslóðar flugvélar-
innar.
2011 Forstjóri Boeing, W. James McNerney, fær
upphringingu
frá Gerard
Arpey forstjóra
American Airlines
sem tjáði honum
að félagið væri
við það að
panta hundruð
Airbus-þotna.
2011 Það tók einungis fáa
mánuði að ljúka hönnun-
inni en ekki nógu fljótt
til að koma í veg fyrir að
American stryki af bóli. Í júlí
kynnti félagið um kaup á
130 Airbusceo þotur og 130
eintök af A320neo, með
kauprétti á 365 þotum til
viðbótar við þær.
Örvænting greip um sig og
Boeing freistaði alls til að
ná pöntun American til sín.
Hugmyndinni um smíði nýrr-
ar þotu var kastað fyrir björg
enda gæti liðið áratugur þar
til hún kæmist í notkun. Í
staðinn var ákveðið að setja
nýja hreyfla á 737-þotuna og
skapa þar með nýja kynslóð
vinnuhestsins.
Aðeins mánuði seinna tilkynnti
Boeing um smíði 737 MAX-fjöl-
skyldunnar með þremur
þotustærðum, 737 Max 7,
Max 8 og Max 9. Hönnun 737
MAX höfðaði til flugfélaga
vegna samnýtingar flugmanna
og annars starfsliðs milli mód-
ela. Hún átti meira sameigin-
legt með 737NG heldur en sú
gagnvart 737-forverum sínum.
Lítilsháttar skólun
í fistölvu dugði og
flugmenn þurftu
ekki sérþjálfun í
flughermi til að
öðlast réttindi á
tegundina. Væru
þeir með 737NG
réttindi giltu þau
einnig um 737
MAX.
Þar sem bolur og vængir MAX voru og í raun vottaðir
vegna svipleikans við 737NG þurfti Boeing ekki að ganga í
gegnum langt vottunarferli eins og alveg ný flugvél. Hreyflar
MAX-þotunnar voru fyrirferðameiri og framar og ofar á
vængnum en á 737NG þotunni. Það hafði áhrif á hegðan MAX
í flugi og gat t.d. leitt til þess að hún reisti trjónuna við vissar
kringumstæður. Ráða átti bót á þessu með sjálfvirknibúnaði
í sjálfstýringu er nefndist MCAS og grípa myndi inn í flugið
og beina trjónunni niður á við. Með það á sínum stað myndi
MAX-þotan fá sömu áritun og 737NG og félög hefðu þar með
einn hóp flugmanna er gætu stjórnað báðum þotunum.
1979
Boeing leggur í
verulega endur-
nýjun 737. Komu
þrjár útgáfur á
níunda áratugn-
um og byrjun
þess tíunda; eftir
stærð 737-300,
-400 og -500.
1998 Snemma á tíunda áratugn-
um hóf Boeing þróun enn
einnar útgáfu 737 er birtist á
rampinum undir aldamótin.
Þarna var á ferðinni 737NG, en
„NG“ stóð fyrir „next gener-
ation“ eða næsta kynslóð.
Nýja þotan var með breyttan
skrokk, endurhannaða vængi
og farþegarými.
2004
737-þotur eru
einna söluhæstu
farþegaflugvélar
frá upphafi en
rúmlega 10.000
eintök hafa
verið afhent
félögum um
heim allan.
2010 Í des-ember
tilkynnti keppinautur-
inn Airbus um nýja
útgáfu A320-þotunnar,
svonefnda A320neo
sem var endurhönnuð
A320 og mun spar-
neytnari en forverinn
sem var helsti keppi-
nautur 737-vélanna.
Í ljós hefur
komið að Boeing
kvað aldrei á
um þjálfun í
notkun MCAS
í handbókum
flugmanna,
enda myndi
búnaðurinn
malla í
bakgrunni.
2016
Fyrsta reynslu-
flug 737 MAX fer
fram 29. janúar
og rösku ári
seinna, í mars
2017, er skrá-
setningarskír-
teini gefið út.
2015
Í ágúst 2015 rann
fyrsta eintak
737 MAX 8 af
færiböndunum í
smiðju Boeing og í
desember var hún
fullsmíðuð. Var
henni gefið nafnið
„Spirit of Renton“.
2017
Fyrsta 737-
MAX þotan
var afhent
16. maí 2017.
Kaupandi var
Malindo Air.
2018 Í maí, ári eft-
ir fyrstu afhendingu
eru rúmlega 130
MAX-þotur í þjón-
ustu 28 mismunandi
flugfélaga. Á þeim
tíma fór þotan
42.000 ferðir með
6,5 milljónir farþega.
Hinn 29. október hóf þota Lion
Air, flug 610, sig til lofts í Jakarta
í Indónesíu. Hún hafði ekki
starfað eðlilega í næstu ferð
á undan en var engu að síður
send í loftið. Vart hafði hún lyft
sér af brautinni er viðvaranir
komu um yfirvofandi ofris og
vélin stakkst í hafið tólf mín-
útum eftir flugtak. Með henni
fórust allir um borð, 189 manns.
2019 Hinn 10. mars hóf flug Ethiopi-
an Airlines númer 302 sig á loft
frá Addis Ababa í Eþíópíu. Innan
mínútu tilkynntu flugmennirnir
um erfiðleika við stjórnun þot-
unnar sem MCAS beindi niður
á við. Sex mínútum eftir flugtak
stakkst þotan á rúmlega 1.200
km/klst hraða í jörðina og með
henni biðu 157 manns bana.
Nokkrum dögum seinna beindi
rannsókn Indónesíumanna
athyglinni að MCAS-búnaðinum
og viðbrögðum flugmanna vð
honum. Hélt Boeing því fram að
starfsemi MCAS væri útskýrð í
handbók flugmanna og hvernig
ætti að koma böndum á hann.
Áfram héldu flugfélög notkun
MAX-flugvélarinnar og Boeing
hægði ekki á framleislu hennar.
Samdægurs
stöðvaði
Ethiopian allt
flug annarra
737 MAX véla
sinna. Daginn
eftir, 11. mars,
lagði kínverska
flugmálastjórnin
bann við notkun
þotunnar.
Flugmálayfirvöld annars staðar
í veröldinni brugðust eins
við og var því öllum 737 MAX
vélum lagt 11. og 12. mars. Hinir
einu sem biðu með bann var
bandaríska flugmálastjórnin
(FAA). Staðhæfði hún að
þotan væri lofthæf en skipti
um skoðun daginn eftir, 13.
mars, með kyrrsetningu 737
MAX-þotunnar.
Airbus A320neo
McNerney
Boeing 737 MAX 8
Jómfrúarflug Boeing 737-100
Kyrrsettar 737 MAX-þotur
í Seattle í Bandaríkjunum
MAX-þotur Boeing í flugbanni síðan í mars Alvarlegasta kreppa í 103 ára sögu Boeing