Morgunblaðið - 21.11.2019, Síða 37
BAKSVIÐ
Sólveig Kr. Einarsdóttir
Á bænum Sólheimum í
Narrabri í Nýju Suður-Wales
Sex manns hafa látist og meira en
fimm hundruð íbúðarhús og enn
fleiri skemmur og tæki hafa eyði-
lagst í eldunum sem nú loga í Nýju
Suður-Wales og Drottningarlandi í
Ástralíu. Í gær loguðu rúmlega sjö-
tíu eldar víðs vegar í Nýju Suður-
Wales. Þá voru í gær gefnar út við-
varanir um að mikil hætta væri á
skæðum eldum í fylkinu Suður-Ástr-
alíu og einnig er óttast að eldar
kvikni í fylkjunum Viktoríu og Tas-
maníu.
Allur gróður í Nýju Suður-Wales
og Drottningarlandi getur orðið eldi
að bráð enda enn einn þurr vetur á
enda. Áður hafa sumrin endað með
skógareldum eða eldhættu en nú er
þessu öfugt farið og sumarið hefst
með þurrum gróðri og meiri eld-
hættu en nokkru sinni fyrr.
Í strandhéruðunum fuðrar kjarr-
lendið upp og mörg heimili hafa eyði-
lagst vegna nálægðar við það.
Í skógi vöxnum héruðum þar sem
fullvaxin tré geta orðið 20 til 30
metra há hafa skíðlogað eldar því
gróðurinn og grasið sem vex undir
trjánum hefur drepist í þurrkinum
sem geisar og myndað eldsneyti.
Jafnvel regnskógar með alls kyns
gróður undir trjánum hafa logað,
sem er afar óvenjulegt, en einnig
vegna langvarandi þurrka.
Þurrt þrumuveður
Greinarhöfundur hefur búið í sveit
í norðvesturhluta Nýju Suður-Wales
í þrjátíu ár. Nálægasta þorp er
Narrabri, gegnum það rennur áin
Namoi. Fjallasýn er fögur þar sem
þjóðgarðurinn Mt. Kaputar blasir
við en þangað er u.þ.b.
klukkustundarakstur. Aðallega er
ræktað hveiti, baðmull og fleira.
Þetta er eitt af búsældarlegustu
landsvæðum NSW.
Hitinn er rúm 30 stig á Celsius
þessa dagana en aðalsumarhitarnir
eru fram undan. Heitustu mánuðirn-
ir eru desember, janúar og febrúar.
Þá fer hitinn í um og yfir 40 stig.
Þetta eru venjulega þeir mánuðir
þegar flestir skógareldar herja en nú
hefur sá eldatími hafist miklu fyrr en
venjulega.
Skógareldar hafa þekkst hér um
aldur og ævi en aldrei verið svo ham-
faramiklir sem nú. Innfæddir voru
vanir að brenna gróður á vissum árs-
tímum og með vissu millibili, en slíkt
hefur að mestu lagst af með tilkomu
hvíta mannsins.
Flestir eldanna hafa kviknað
vegna heimsku og kæruleysis
manna, eins og t.d. vegna sígarettu
sem fleygt hefur verið út um bíl-
glugga. Flesta daga ríkir algjört
bann við því að kveikja eld utan
dyra, ekki má glóðarsteikja eða log-
sjóða, ekki einu sinni kveikja á kerti.
Því miður hafa unglingar verið
staðnir að því að kveikja í og einnig
hafa bændur kveikt elda í þeim til-
gangi að vernda sína eigin landar-
eign án nokkurs tillits til annarra en
misst stjórn á öllu saman og valdið
miklu tjóni. Í þjóðgörðum og lítt
byggðum svæðum hafa eldar kvikn-
að vegna eldinga frá þurrum þrumu-
veðrum.
Fordæmalaus þurrkur
Enginn hér hefur séð fylkið þessu
líkt áður. Svo fordæmalaus er þurrk-
urinn að nú er meira en 98% af NSW
þurrkasvæði og 2/3 Drottningar-
lands. Sumarið er handan við hornið
en hvergi er beit fyrir skepnur, ekk-
ert korn á ökrunum, ekkert nema tré
sem mæna til himins í von um regn.
Þessi skelfilegi þurrkur hefur
herjað á þennan landshluta og víðar
sl. þrjú ár. Minna en helmingur ár-
legrar úrkomu hefur fallið öll þessi
ár. Veldur þetta gífurlegu tjóni á
ýmsa vegu. Bændur eru farnir að
flosna upp, fyrirtæki loka og flytja
burt. Viðskipti liggja mikið til niðri
því fáir eiga peninga og atvinnuleysi
blasir við. Miklir stormar hafa geng-
ið yfir héraðið og þá hefur ekki séð út
úr augum fyrir moldroki. Enginn
gróður heldur moldinni fastri og
hún, sandi líkust, berst með vindin-
um og smýgur um allt. Einir fimm
slíkir sandstormar hafa geisað að
undanförnu.
Vatn af skornum skammti
Í Narrabri er dauft yfir fólki eins
og gefur að skilja. Namoi-áin er upp-
þornuð að mestu, einstaka pollar hér
og þar, stöðuvatnið sem bæjarbúar
voru svo stoltir af er horfið. Hey-
birgðir eru á þrotum hjá flestum og
hey hækkar í verði í sífellu. Víða eru
vatnsból bænda uppþornuð eða við
það að þorna upp og þá blasir við að
kaupa þurfi vatn. Vatnsskortur ríkir
víða og mörg bæjarfélög hafa sett
strangar reglur um vatnsnotkun.
Leiðbeiningar um hvernig spara
megi vatnið birtast m.a. á skjánum í
auglýsingum frá bæjarfélögum. Sem
dæmi mætti nefna að bannað er að
vökva garða nema einu sinni í viku
og alls ekki með garðslöngu, bannað
að þvo bíla með vatnsslöngu, mælt er
með tveggja mínútna löngu sturtu-
baði, þvotti þrisvar í viku en aðeins
ef vélin er full o.s.frv.
Barátta og angist
Gífurlegt átak hefur verið að fást
við þessa elda. Á annað þúsund
manns hafa barist á jörðu niðri sólar-
hringum saman, þyrlur og flugvélar
hafa dreift vatni og efni sem hægir á
útbreiðslu eldsins. Slökkviliðsmenn
hafa komið frá öðrum fylkjum og frá
Nýja-Sjálandi til að létta undir með
slökkviliði og hvíla það.
Sveitarfélögin hafa veitt slökkvi-
liðsmönnum aðstoð og stuðning þeim
til handa sem hafa orðið að flýja frá
húsum sínum vegna eldanna.
Félagsmiðstöðvar og skólar eru oft
notuð til þess að hýsa þá sem hafa
orðið að yfirgefa heimili sín. Margir
er fullir af angist og kvíða, sumir
skelfingu lostnir, enn aðrir í áfalli:
Mun húsið þeirra standa þegar þeir
mega fara heim aftur? Fyrir meira
en 500 fjölskyldur er svarið nei. Enn
er ekki öruggt að kanna þau svæði
sem brunnin eru eða loga enn, svo
allir tölur um tjón geta hækkað.
Stjórn NSW lýsti yfir neyðarástandi
í heila viku, skólum var lokað og yf-
irstjórn slökkvistarfanna falin
slökkviþjónustunni.
Útvarpið á allan daginn
Hér á bæ var skyggnið á mánudag
3-4 km vegna reyks sem lagði frá
eldum í u.þ.b. 20 km fjarlægð. Á
bænum eru tveir vatnstankar til hús-
halds, þeir taka 20.000 lítra af regn-
vatni hvor (þeir eru 50% fullir eins
og er); kýrnar fá borvatn þannig að
við erum sæmilega sett meðan
grunnvatn endist. Heybirgðir okkar
munu duga handa tveimur tugum
nautgripa fram að jólum en þeir hafa
verið á gjöf síðan í apríl 2018.
Ekki er regn í spánni fyrr en í jan-
úar og jafnvel ekki fyrr en í febrúar.
Í gær var spáð roki og hitabylgju
ásamt meiri eldhættu. Útvarpið,
ABC, er á mestallan daginn enda
flytur það nákvæmar fréttir af þeim
eldum sem geisa, viðvaranir og leið-
beiningar. Allir eru hvattir til að hafa
eldhættuáætlun A og B tilbúna. Ætl-
arðu að fara eða reyna að verja húsið
þitt? Hvað skal gera ef hætta nálg-
ast? Vera tilbúin með tösku með
nauðsynjum, meðölum, vegabréfi og
slíku, klæðast baðmullar- eða ullar-
fötum (alls ekki gerviefnum því þau
bráðna), ekki vera í sandölum eða
strigaskóm heldur gönguskóm með
þykkum sólum eins og allir bændur
eru í alla daga úti við. Réttir skór
geta bjargað lífi þínu.
Markviss forysta?
Viðbrögð alríkisstjórnarinnar í
Canberra við hættuástandi og við-
sjárverðum erfiðleikatímum eru
fálmkennd. Í stjórn sitja Frjálslynd-
ir og Þjóðernissinnar en Verkamenn
og Græningjar eru í stjórnarand-
stöðu. Þjóðernissinnar og Græningj-
ar skammast og kalla hver annan öll-
um illum nöfnum en Frjálslyndir og
Verkamenn fara sér rólegar og vilja
bara gera eitt í einu. Það er að styðja
við bændur og þá sem hafa misst allt
sitt, sem auðvitað er sjálfgefið. Hins
vegar má ekki ræða hamfarahlýnun
eða aðra þá þætti sem valda krís-
unni, bara seinna. Næsta vetur? En
forsætisráðherra býður upp á hugs-
anir og bænir á meðan hann þóknast
jarðefnaeldsneytisfyrirtækjum.
Fyrr á árinu tóku sig saman 23
þaulreyndir slökkviliðsmenn og
gerðu tillögur og áætlanir því fyr-
irsjáanlegt var hvert stefndi. Þeir
fóru fram á fund með forsætisráð-
herra fyrst í apríl 2019 en hafa ekki
fengið – ef til vill fá þeir áheyrn í des-
ember.
Sumir kenna Græningjum um allt
saman en þeir hafa aldrei setið í
stjórn hér í landi eða í NSW og því
ekki ljóst hvernig þeim er allt að
kenna. Nú, og svo kom einn kristinn
vitringur í útvarpið og kvað skógar-
eldana vera refsingu guðs því að lög-
leitt hefði verið að gefa samkyn-
hneigða saman í hjónaband.
Ekkert lát á eldununum í Ástralíu
Mikil eyðilegging í Nýju Suður-Wales og Drottningarlandi Óttast að eldar kvikni í þremur fylkjum
til viðbótar vegna mikilla hita Óvenjumiklir þurrkar, víða vatnsskortur og strangar reglur um notkun
AFP
Eldurinn breiðist út Bóndi á akri sínum fylgist með eldunum skammt undan.
AFP
Slökkvistarf Þyrla varpar vatni til að ráða niðurlögum eldanna í Ástralíu.
FRÉTTIR 37Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2019
Hin fullkomnaþrennaVel samsett boost, einusinni á dag, eykur orkuna,kemur meira jafnvægi áblóðsykurinn.
Candéa
Byggir upp og kemur
jafnvægi á þarma-
flóruna. Öflugt fyrir
ónæmiskerfði og vinnur
á candéa sveppnum.
Betri melting
Aukin orka
Öflugra ónæmiskerfi
Meltingin og þarmaflóran er grunnur að góðri heilsu
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna.
Digest Gold –tvær vörur í einni
• Gegn fjölþættum
meltingarvandamálum.
• Inniheldur ATPro sem styður
meltingu og eykur orku.
• Söluhæsta meltingarvaran í
Bandaríkjunum
• Tekið rétt fyrir máltíð.