Morgunblaðið - 21.11.2019, Blaðsíða 40
40 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2019
Í október fór und-
irrituð í Þjóðleikhúsið
að sjá brúðkaup Fíg-
arós. Er skemmst frá
því að segja að þetta
var dásamleg sýning,
litrík og fjörug, söng-
urinn íðilfagur, búning-
arnir skrautlegir og
tónlistin guðdómleg.
Einn skugga bar þó á
og var það meðferðin á
leikhúsgestum fyrir
sýningu. Mörgum þykir gott að koma
með fyrra fallinu á leiksýningar, eink-
anlega í Þjóðleikhúsinu, til þess að
njóta andrúmslofts, sem húsið býður
upp á. Ásamt allstórum hópi leikhús-
gesta var ég komin rúmlega hálfsjö,
en húsið er opnað fyrir sýningargesti
klukkan sjö. Í óvistlegu og hrollköldu
anddyrinu máttum við hírast þarna í
hnapp eins og kindur í rétt og bíða
þess að dyrnar lykjust upp. Þetta er
tæplega boðleg framkoma við leik-
húsgesti, sem einnig eru skattgreið-
endur og leggja fram sinn skerf til
reksturs hússins – auk
þess að kaupa aðgöngu-
miða. Þessi reglufesta
eða sparsemi kemur sér
enn verr á barnasýning-
um, þar sem litlir krakk-
ar hafa engar selskaps-
blöðrur og húsameistari
ríkisins var afar sínkur á
rými fyrir salerni. Marg-
ir foreldrar, afar og
ömmur hafa lent í mein-
legri klípu í þessum efn-
um.
Mörgum þykir vænt
um Þjóðleikhúsið og eiga
minningar tengdar því frá bernsku-
dögum. Þetta er eitt flottasta hús sem
almenningur á kost á að koma í.
Menningarandi svífur þarna yfir vötn-
unum og í kristallssalnum er gaman
að setjast í sófa eða hægindastóla í út-
skotum hans og fá sér kaffibolla eða
jafnvel vínglas – ef tími vinnst til –
virða fyrir sér myndirnar og mann-
fólkið og skreppa á salerni án þess að
óttast að missa af fyrsta þætti. Nú er
því miður búið að fjarlægja sófana og
hægindastólana og umrædd útskot
eru þar með töluvert óvistlegri.
Leikhúsferð er meira en leiksýn-
ingin sjálf. Fólk er að gera sér daga-
mun, fer í sparifötin og hlakkar til að
sýna sig og sjá aðra. Það á að taka vel
á móti því og gefa því tíma til að njóta
þess sem húsið hefur upp á að bjóða.
Fyrir börn og unglinga hefur þetta
uppeldisgildi.
Það eru tilmæli mín til þar til
bærra yfirvalda að breyta þessu og
opna húsið klukkan hálfsjö. Ef menn
eru að horfa í laun starfsmanna, þá
má benda á að á rýmri tíma myndi
seljast meira af þeim veitingum sem
þarna eru á boðstólum og mætti segja
mér að tekjurnar stæðu undir þeim
aukakostnaði sem af þessum breyt-
ingum hlýst. Þetta væri allra hagur.
Þjóðleikhúsið,
hús allra landsmanna
Eftir Vilborgu Auði
Ísleifsdóttur
Vilborg Auður
Ísleifsdóttir
» Í óvistlegu og hroll-
köldu anddyrinu
máttum við hírast þarna
í hnapp eins og kindur í
rétt og bíða þess að
dyrnar lykjust upp.
Höfundur er sagnfræðingur.
Það liggur fyrir
okkur í borgarstjórn
þessa dagana að af-
greiða fjárhagsáætlun
fyrir rekstur borg-
arinnar árið 2020. Rút-
ínuverk fyrir marga en
nýstárlegt og fram-
andlegt verkefni fyrir
aðra. Vinnulag er
nokkuð flókið og sker
sig frá öðru sem af-
greitt er í borgarstjórn. Fjármál
borgarinnar á næsta ári þarf að
ræða tvisvar í borgarstjórn. Það
þarf að vanda mjög til verka og fara
nákvæmlega eftir lögum sem um
þau mál gilda. Þegar búið er að sam-
þykkja fjárhagsáætlunina er hún
síðan bindandi fyrir starfsmenn
sveitarfélagsins og sveitarstjórnina
sjálfa, eins og segir í lögum. Það má
ekki færa bókhaldið jafnóðum eða
gera stöðugar breytingar á áætlun-
inni.
Ábyrgð í næstu kosningum
En af hverju þarf þetta að vera
svona flókið? Fjárhagsáætlun á að
gefa glögga mynd af rekstri, tekju-
öflum og ráðstöfun fjármuna á kom-
andi ári. Áætluninni er þannig ætlað
að vera eitt mikilvægasta stjórntæki
borgarstjórnar og upplýsingaskjal
um stefnu og forgangsröðun á verk-
efnum hennar. Þá þarf að hafa festu
og reglu. Ef frjálslega er farið með
áætlunina og stöðugt verið að gera
uppfærslur og breytingar gerir það
okkur borgarfulltrúum erfitt fyrir
með að fylgjast með og veita aðhald.
En mikilvægari ástæða er að með
þessu agaða vinnulagi er betur
tryggt að almenningur eða borgar-
búar geti fylgst með í hvaða tilvikum
borgarstjórn er að bregðast og get-
ur þá látið hana sæta ábyrgð. Í
næstu kosningum.
Mikilvægt fyrir kjósendur
að geta fylgst með
Þessari grein er ekki ætlað að
fjalla um lausatök í
rekstri og fjármála-
stjórn í Reykjavíkur-
borg, það hefur áður
verið gert, oft og af
mörgum. Enda tilefnin
ærin og mörg síðustu
árin. Hún á að benda á
mikilvægi þess að sýna
aga og festu í stjórnun
borgarinnar. Mikilvægi
þess að veita skýrar og
glöggar fjármálalegar
upplýsingar um rekstur
og stöðu borgarinnar og að sýna
hvort stjórnendur hafi haldið sig
innan síns eigin fjárhagsramma og
hvort stjórnsýslan eða meðferð pen-
inga hafi verið ásættanleg. Það er
áríðandi viðfangsefni fyrir kjörna
fulltrúa, starfsfólk borgarinnar og
þá sem sinna opinberu eftirliti með
stjórnsýslu og fjármálum sveitarfé-
laga. Á þessu hafa verið mikil van-
höld síðustu ár.
Mikilvægast er þó hlutverk kjós-
enda að fylgjast með hvernig okkur
takist til og veita þannig borgastjórn
nauðsynlegt aðhald. Öll viljum við
gera vel þegar við förum með al-
mannafé. Vonandi.
Í fjárhagsáætlun borgarinnar sem
nú liggur fyrir er allt of mikið horft
til lántöku og aukinnar skuldsetn-
ingar. Og allt of lítið til hagræðingar,
lækkunar rekstrarkostnaðar, lækk-
ana á gjaldskrám og sköttum. Það er
allavega okkar skoðun borgarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins. Það hefði
mátt gera svo miklu betur.
Aðhald og eftirlit
borgarbúa
Eftir Örn
Þórðarson
Örn Þórðarson
»Með þessu agaða
vinnulagi er betur
tryggt að borgarbúar
geti veitt aðhald og látið
borgarstjórn sæta
ábyrgð á eigin
lausatökum.
Höfundur er borgarfulltrúi
og fyrrverandi sveitarstjóri.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Jólaleyndarmál
Matarkjallarans
Tryggðu þér borð á
www.matarkjallarinn.is
Aðalstræti 2 | s. 558 0000
VEITINGASTAÐUR
Á BESTA STAÐ Í SMÁRALIND
NÝR OG GLÆSILEGUR
ALLIR LEIKIR · ALLAR DEILDIR · ALLT SPORT Á EINUM STAÐ