Morgunblaðið - 21.11.2019, Page 52

Morgunblaðið - 21.11.2019, Page 52
52 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2019 Fagleg þjónusta fyrir fólk í framkvæmdum www.flugger.is 60 ára Stefán ólst upp á Mælivöllum á Jökul- dal en flutti yfir á næsta bæ, Hnefilsdal, 1983 og hóf þar sauð- fjárbúskap. Hann er með 400 gripi og vinn- ur líka töluvert við smíðar utan bús. Maki: Halldóra Hildur Eyþórsdóttir, f. 1963, frá Mælivöllum, stuðningsfulltrúi og ræstitæknir við Brúarásskóla. Börn: Eyþór Stefánsson, f. 1986, og Bergvin Stefánsson, f. 1988. Barna- börnin eru orðin tvö. Foreldrar: Jón Hallgrímsson, f. 1930, d. 2017, bóndi á Mælivöllum, og Rannveig Sigurðardóttir, f. 1939, fv. húsfreyja á Mælivöllum, nú búsett á Egilsstöðum. Stefán Hrafn Jónsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Gættu þess að leyndarmál þín liggi ekki á glámbekk. Smávegis tiltekt núna sparar þér ærna fyrirhöfn síðar. Þú treystir vissum aðila ekki fyrir horn. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú þarft sennilega að breyta ferða- áætlunum þínum. Örvæntu samt ekki, það verður þér til góðs. Hikaðu ekki við að segja skoðun þína. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Vilji er allt sem þarf og í raun er fátt sem þú getur ekki því takmörk þín eru bundin hugmyndafluginu einu. Bakslag í vissu máli er aðeins tímabundið og staðan verður önnur eftir einn til tvo daga. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það stefnir í átök með þér og sam- starfsmanni þínum. Tjáðu þig og þér mun líða betur. Gefðu þér tíma til að hvílast. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Því meira sem þú leggur þig fram í lífinu, þeim mun meira færðu út úr því. Hafðu augun opin fyrir fólkinu í kringum þig. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Láttu ekki heimilisverkin sitja á hakanum. Sýndu sjálfsöryggi og þá munu aðrir sjá þig í jákvæðu ljósi. Það kemur dagur eftir þennan dag. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú munt hugsanlega rekast á stór- skrýtinn einstakling í dag. Skrifaðu niður hugmyndirnar sem þú færð, þú gætir nýtt þér þær síðar á ævinni. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Endurskoðaðu afstöðu þína til þess hvers þú þarfnast og þess sem þú getur verið án. Brenndu allar brýr að baki þér. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú skalt sýna öðrum þolin- mæði í dag. Dagurinn í dag er tilvalinn til þess að horfast í augu við staðreyndir varðandi ástarsamband. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú ert orðinn leiður á verkefni er hófst fyrir löngu. Þig langar til að sjá fyrir endann á því. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Oft virðumst við þurfa áföll til að gera okkur grein fyrir því hversu mikil væntumþykja er nauðsynleg í okkar dag- lega lífi. 19. feb. - 20. mars Fiskar Farðu varlega í samskiptum við ókunnuga sérstaklega ef þau snúast um fjármál að einhverju leyti. barnabörn komið til Íslands í heim- sókn og kemur m.a. elsti sonurinn nú árlega og dvelur hér í mánuð á sumr- in. Helsta áhugamál Arndísar er lest- ur bóka (Kindle) og þá helst spennu- sögur. Hún les oft 1-2 bækur á viku. Einnig hefur hún áhuga á mat, þ.e. að elda og baka, enda eldar hún daglega og bakar a.m.k. einu sinni í viku. Mæðgurnar Arndís og Lára fara reglulega á tónleika Stórsveitarinnar hér en einnig eru þær með fasta miða í Sinfóníunni. Arndís er mest fyrir tónlist áranna um 1940-50 og þá bæði djass og dægurtónlist, Frank Si- natra, Bing Crosby o.fl. Svo er pólitík ofarlega á blaði og fylgist hún vel með bæði hér og erlendis. Hún fylgist með erlendum fréttum á Sky News og CNN og les tímaritið Time. Hann- yrðir voru líka ofarlega á blaði en hún stundar þær ekki lengur, þar sem gigtin leyfir það ekki. „Lífið hefur ef til vill ekki alltaf verið „dans á rósum“, en hver vill dansa á þyrnum sem því myndu fylgja? Að vera í nýju landi án fjöl- skyldu minnar á Íslandi, með fimm börn á heimili, of dýrt að hringja, en bréfum fagnað og einnig íslenskum og dönskum blöðum sendum að heim- an ásamt bréfum. Beðið var eftir skammt frá, sem öslaði í snjó upp í mitti til að komast í hús mér til hjálp- ar.“ Arndís flutti alkomin heim 2003 og hafði þá selt húsið sitt í Somers. Eftir það hefur hún ferðast til Bandaríkj- anna á hverju ári og heimsækir börn- in sín sex og fjölskyldur þeirra sem búa þar. Einnig hafa börn hennar og A rndís Sigurðardóttir Genualdo er fædd 21. nóvember 1924 á Ísa- firði og bjó þar til ársins 1930 þegar fjölskyldan flutti til Reykjavíkur, fyrst á Öldu- götu 59 en síðar í Vonarstræti 2. Heimilið í Vonarstræti 2 var stórt, þar bjuggu 14 manns og var mjög oft gestkvæmt, ættingjar utan af landi sem gistu næturlangt og oft margar nætur. Þar sem heimilið var í miðbæ Reykjavíkur kom oft fólk í kaffi á kvöldin eftir bíóferð í bænum. Alltaf var hellt upp á kl. 10 á kvöldin. Einnig var mjög gestkvæmt um helgar og því var bakað mjög mikið til að eiga nóg með kaffinu. Arndís aðstoðaði móður sína, sem var ekki heilsugóð og dvaldi oft á sjúkrastofnunum, með því að stjórna heimilinu, sauma föt á yngri börnin, strauja, elda og baka. Seinna þegar hún giftist aftur tók yngri systir hennar Sigríður við og sá um og stjórnaði þessu stóra heimili en þá voru eldri systkinin farin að heiman en samt töluvert eftir og allt- af sami gestagangurinn. Arndís var í sveit mörg sumur í Æðey í Ísafjarð- ardjúpi og einnig í Hafnardal hjá afa sínum Pétri Pálssyni. „Að vera í sveit öll sumur gefur lærdóm sem endist allt lífið,“ segir Arndís. Arndís gekk í Landakotsskóla og síðar í Gagnfræðaskóla Reykjavíkur og var eitt ár í Menntaskólanum í Reykjavík. Hún var lengst af heima- vinnandi húsmóðir en starfaði á yngri árum við skrifstofu- og versl- unarstörf. Í Bandaríkjunum starfaði hún sem aðstoðarmatreiðslumaður í sérskóla sem rekinn var af kaþólsku kirkjunni þar fyrir unga drengi sem höfðu komist í kast við lögin. Arndís bjó í Somers í New York- ríki með seinni eiginmanni sínum og börnum, en hún flutti þangað út 1961 og það var í fyrsta sinn sem hún fór til útlanda. Fyrstu árin fór eiginmaður- inn tímabundið erlendis til vinnu og Arndís var ekki með bílpróf. „En ég kynntist indælu, hjálpsömu fólki, sem alltaf var tilbúið til aðstoðar. Ein- mana móðir með fullt hús af börnum í nýju landi, enginn strætó eða bíll en góðir nágrannar tilbúnir til aðstoðar. Ef barn t.d. veiktist bjó læknir póstinum á hverjum degi með von um póst frá Íslandi. Maður verður að meta það já- kvæða á móti hinu neikvæða og í mínu lífi er það jákvæða langt yfir hinu neikvæða. Sem sagt mitt líf kemur út með stóran plús. Fyrst er það góð heilsa, svo barnalán, frábær æska með bestu foreldrum sem gef- ast. Að alast upp á menningarheimili, fullt af bókum, umræður við matar- borðið um allt sem skiptir máli, heimsmál, viðburði, pólitík, vandamál útgerða, innlend sem erlend stjórn- mál. Þetta hefur verið mér sem lífs- föruneyti alla ævi.“ Fjölskylda Fyrri eiginmaður Arndísar var Guðmundur Kjartan Runólfsson, f. 20.6. 1920, d. 27.10. 2002, hljóðfæra- leikari og vélstjóri, síðast búsettur í Bandaríkjunum. Þau skildu. Seinni eiginmaður Arndísar var Lawrence A. Genualdo, f. 22.7. 1920, d. 3.7. 2000, vann í rafstöð í herskólanum West Point í New York-ríki. Þau skildu einnig. Börn Arndísar eru 1) Lára Kjart- ansdóttir, f. 20.7. 1946, fv. deildar- stjóri hjá Icelandair Cargo, bús. í Garðabæ. Hún á tvö börn; 2) Sig- urður Ragnar Kjartansson, f. 7.12. 1949, fv. flutningabílstjóri, bús. í Newburgh, New York, hann á þrjú börn; 3) Ciretta Genualdo Green, f. 19.10. 1957, vinnur á ferðaskrifstofu, bús í Bozeman, Montana, hún á eitt barn; 4) Lawrence C. Genualdo, f. 25.12. 1958, vann fyrir Cadillac, vinn- ur nú sjálfstætt við húsasmíðar, bús. í Winnetka, Kaliforníu, hann á tvö börn; 5) Anthony E. Genualdo, f. 2.8. 1960, húsamálari, bús. í Lake Lin- colndale, New York, hann á tvö börn; 6) Michael Genualdo, f. 20.6. 1962, vinnur fyrir Fedex, bús. í Wapp- ingers Falls, New York, hann á fjög- ur börn; 7) Henry Genualdo, f. 14.10. 1965, pípulagningameistari, bús. í Mt. Kisco, New York, hann á tvö börn. Barnabörnin eru 16 og lang- ömmubörnin eru 9 talsins. Systkini Arndísar: Páll Sigurðsson, f. 1927, d. 2018, fyrrv. forstjóri; Krist- ján Sigurðsson, f. 1930, d. 1931; Krist- ján Sigurðsson, f. 1933, vélstjóri, Arndís Sigurðardóttir Genualdo, húsmóðir í Garðabæ – 95 ára Ásamt börnunum Frá vinstri: Lawrence, Henry, Lára, Michael, Arndís, Anthony, Ciretta og Sigurður Ragnar stödd í Hunter Mountain í Catskills, New York, í brúðkaupi sonurdóttur Arndísar haustið 2014. Lífið kemur út með stóran plús Afmælisbarnið Arndís um jólin 2018. 40 ára Eyrún ólst upp í Breiðholti en býr í Grundunum í Kópa- vogi. Hún er félags- ráðgjafi að mennt frá HÍ og er starfsendur- hæfingarráðgjafi hjá stéttarfélaginu Hlíf fyrir VIRK. Maki: Jón Kristján Rögnvaldsson, f. 1981, félagsráðgjafi og deildarstjóri á félagsráðgjafasviði HÍ. Börn: Þórdís Júlía Jónsdóttir, f. 2005, Kári Steinn Jónsson, f. 2008, og Freydís Una Jónsdóttir, f. 2014. Foreldrar: Guðmundur Guðmundsson, f. 1952, vélfræðingur, og Sigríður Una Eiríksdóttir, f. 1957, bókari. Þau eru búsett í Reykjavík. Eyrún Unnur Guðmundsdóttir Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.