Morgunblaðið - 21.11.2019, Side 56

Morgunblaðið - 21.11.2019, Side 56
56 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2019 KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin: DHL-höllin: KR – Njarðvík ................ 19.15 Dalhús: Fjölnir – Tindastóll ................ 19.15 Mustad-höllin: Grindavík – Valur ....... 19.15 1. deild karla: Borgarnes: Skallagrímur – Sindri ...... 19.15 HANDKNATTLEIKUR Coca Cola-bikar karla, 16-liða úrslit: Austurberg: ÍR – Mílan ............................ 19 TM-höllin: Stjarnan – HK ................... 19.30 Hertz-höllin: Grótta – FH ................... 19.30 Ásvellir: Haukar – Valur...................... 19.30 Í KVÖLD! Dominos-deild karla Þór Ak. – Stjarnan............................ 101:104 Staðan: Keflavík 7 6 1 627:570 12 Stjarnan 8 6 2 727:689 12 Tindastóll 7 5 2 615:576 10 KR 7 5 2 597:552 10 Haukar 7 4 3 643:614 8 Þór Þ. 7 4 3 576:580 8 ÍR 7 4 3 582:611 8 Njarðvík 7 3 4 576:504 6 Valur 7 3 4 580:603 6 Grindavik 7 2 5 591:618 4 Fjölnir 7 1 6 590:636 2 Þór Ak. 8 0 8 619:770 0 Dominos-deild kvenna Keflavík – Snæfell ................................ 89:66 Staðan: Valur 7 7 0 622:428 14 KR 7 6 1 547:475 12 Keflavík 7 4 3 523:489 8 Skallagrímur 7 4 3 471:468 8 Haukar 7 4 3 468:449 8 Snæfell 7 2 5 450:520 4 Breiðablik 7 1 6 415:533 2 Grindavík 7 0 7 433:567 0 Evrópubikarinn C-RIÐILL: UNICS Kazan – Nanterre .................. 72:79  Haukur Helgi Pálsson lék ekki með UN- ICS Kazan vegna meiðsla.  UNICS Kazan 5/3, Darussafaka 5/3, Jo- ventut Badalona 4/4, Brescia 4/4, Nanterre 3/5, Cedevita Olimpija 3/5. Meistaradeild Evrópu D-RIÐILL: PAOK Saloniki – Zaragoza................ 93:78  Tryggvi Snær Hlinason skoraði 8 stig og tók 3 fráköst fyrir Zaragoza sem hefur unn- ið 3 leiki af 6. NBA-deildin Memphis – Golden State.................... 95:114 New Orleans – Portland .................. 115:104 Sacramento – Phoenix ..................... 120:116 LA Lakers – Oklahoma City ........... 112:107 KÖRFUBOLTI UPPRIFJUN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Þegar Þórsarar frá Akureyri skor- uðu aðeins tvö stig í síðasta leik- hlutanum gegn Njarðvík í úrvals- deild karla í körfubolta á dögunum töldu að vonum margir að um met væri að ræða í deildinni. Njarðvík gerði 22 stig gegn tveimur stigum Akureyringa á þessum síðustu tíu mínútum og vann leikinn með miklum yfirburð- um, 113:52. En metið í deildinni stendur óhaggað og ljóst er að það verður aldrei slegið. Enda ekki hægt og aðeins mögulegt að jafna það. KR-ingum mistókst nefnilega að skora eitt einasta stig í öðrum leik- hluta 28. febrúar árið 2002 þegar þeir fengu Keflvíkinga í heimsókn í Vesturbæinn. Þeir höfðu farið á kostum í fyrsta leikhluta, skorað 34 stig gegn 16, og hægðu greinilega allverulega á sér í kjölfarið. Annan leikhlutann vann Keflavík nefnilega 13:0 og KR-ingar gengu því til hálfleiks með fimm stiga forystu, 34:29. Það merkilega er að núllið í öðr- um leikhluta kom ekki að sök fyrir KR-inga sem unnu leikinn að lok- um allsannfærandi, 76:64. Sigurður Elvar Þórólfsson skrif- aði um leikinn fyrir Morgunblaðið og fram kom að KR hefði átt tutt- ugu skot að körfu í leikhlutanum án þess að boltinn hefði ratað ofan í. Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflavíkur, hefði gripið til svæð- isvarnar í öðrum leikhluta: „… minnugur þess að KR hafði tap- að fyrir Breiðabliki á dögunum þar sem Kópavogsliðið beitti sama her- bragði,“ eins og Sigurður Elvar segir í greininni. Hann vitnar enn- fremur til fróðra manna: „Jafnvel spekingar á við hinn talnaglögga Sigurð Valgeirsson frá Keflavík mundu ekki eftir öðru eins.“ Tveir enn í liði KR-inga Þó að tæp átján ár séu liðin frá þessari viðureign tóku tveir núver- andi leikmenn KR þátt í þessum sögulega leik, þeir Jón Arnór Stef- ánsson og Helgi Már Magnússon, sem þá voru um tvítugt. Þeir voru stigahæstir KR-inga í leiknum, Jón Arnór með 23 stig og Helgi með 17, og þess var sérstaklega getið að Jón Arnór hefði hvorki skorað í öðrum né þriðja leikhluta. Arnar Kárason lék einnig með KR þetta kvöld en hann er enn leikmaður Tindastóls. Þá voru í liði KR kapp- ar á borð við Herbert Arnarson, núverandi formann landsliðsnefnd- ar, Keith Vassell og Ólaf J. Orms- son. Keflvíkingar voru með leikmenn á borð við Fal Harðarson, Sverri Þór Sverrisson, Magnús Gunn- arsson, Guðjón Skúlason og Damon Johnson í sínu liði. Damon skoraði 23 stig fyrir Keflvíkinga og Guðjón 19. Skoruðu ekki í heilum leikhluta  Metið aldrei slegið en unnu leikinn Morgunblaðið/Ásdís 2002 Keflvíkingurinn Sverrir Þór Sverrisson og KR-ingarnir Keith Vassell og Jón Arnór Stefánsson í umræddum leik fyrir tæplega átján árum. Janus Daði Smárason átti afar góð- an leik fyrir Aalborg er liðið vann 32:26-sigur á Bjerringbro- Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær. Janus Daði skor- aði tíu mörk úr tólf skotum og gaf þrjár stoðsendingar en Selfyssing- urinn hefur átt afar góðu gengi að fagna með meistara- og toppliðinu á leiktíðinni. Ómar Ingi Magnússon lék ekki með Aalborg vegna höf- uðmeiðsla og Þráinn Orri Jónsson komst ekki á blað hjá Bjerringbro- Silkeborg. Aalborg er með fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar. Janus í banastuði í Danmörku Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Öflugur Janus Daði Smárason Kristján Andrésson og lærisveinar hans í þýska liðinu Rhein-Neckar Löwen urðu í gær fyrstir til að tryggja sér sæti í riðlakeppni EHF- bikars karla í handbolta. Löwen vann þá sannfærandi 28:17-sigur á SKA Minks frá Hvíta- Rússlandi í 32-liða úrslitum. Fyrri leiknum lauk með 32:28-sigri Lö- wen og fer þýska liðið því áfram með samanlögðum 61:45-sigri. Alexander Petersson var í leik- mannahópi Löwen í gær, en hann kom ekkert við sögu. Löwen er í þriðja sæti þýsku 1. deildarinnar. Kristján stýrði ljónunum áfram AFP Kátur Kristján Andrésson fagnar. Þýska knattspyrnufélagið Augsburg hefur staðfest að landsliðsmaðurinn Alfreð Finnbogason muni ekkert spila meira með liðinu á þessu ári. Alfreð varð fyrir því óláni að fara úr axlarlið snemma leiks í viðureign Íslend- inga og Tyrkja í undankeppni EM í Istanbúl í síðustu viku og hefur verið í meðferð hjá sjúkrateymi þýska liðs- ins eftir að hann sneri aftur til Þýskalands. „Meiðsli koma aldrei á réttum tíma. Því miður hef ég verið óheppinn undanfarin ár en síðustu vikur hefur mér liðið mjög vel. Ég mun gera mitt besta til að búa mig undir seinni hluta tímabilsins eftir vetrarfríið,“ segir Al- freð á heimasíðu Augsburg. Alfreð hefur skorað tvö í níu leikjum með Augsburg í þýsku Bundeslig- unni á tímabilinu. Hann mun missa af næstu sex leikjum liðsins en síðasti leikur þess fyrir vetrarhlé verður 21. desember. Fyrsti leikurinn eftir vetrarhléið er heimaleikur á móti Dortmund 18. janúar og ef allt gengur að óskum í bataferlinu verður Alfreð klár í þann slag. gummih@mbl.is Alfreð stefnir á 18. janúar Alfreð Finnbogason Tryggvi Snær Hlinason, landsliðs- maður í körfubolta, var í fyrsta skipti í byrjunarliði spænska liðsins Zaragoza er liðið mátti þola 78:93- tap fyrir PAOK frá Grikklandi á útivelli í Meistaradeildinni í gær- kvöldi. Tryggvi lék í tæpar sextán mínútur og skoraði átta stig og tók þrjú fráköst. Zaragoza leikur í D- riðlinum og er í fjórða sætinu með níu stig en PAOK er í botnsætinu með sex stig. Zaragoza hefur komið á óvart í spænsku deildinni og er í þriðja sæti eftir níu umferðir. Í fyrsta skipti í byrjunarliði Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sterkur Tryggvi Snær Hlinason Krókháls 1 • 110 RVK • S. 567 8888 • www.pmt.is Allt til merkinga & pökkunar BRÉFPOKAR Í ALLSKONAR STÆRÐUM OG GERÐUM LÍMMIÐAR Fáðu tilboð í límmiða eða umbúðir Jóla Einnig mikið úrval af jólalímmiðum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.