Fréttablaðið - 05.02.2020, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 05.02.2020, Blaðsíða 12
Orðin „Aldrei aftur“ voru mikið notuð við lok seinni heimsstyrjaldarinnar og eru enn. Með „Aldrei aftur“ er ekki eingöngu átt við að styrjöld líkt og seinni heimsstyrjöldin eigi aldrei að eiga sér stað aftur, heldur að við eigum aldrei aftur að upplifa eða láta viðgangast viðlíka illsku og önnur eins brot á mannréttindum og raungerðust í hræðilegum glæp­ um seinni heimsstyrjaldarinnar. Mörg krefjandi verkefni biðu íbúa Evrópu við uppbyggingu álfunnar eftir hörmungar og viðbjóð seinni heimsstyrjaldarinnar. Samvinna, skilgreining á mann­ réttindum og virðing fyrir lýðræði, lögum og reglum urðu einkennis­ orð uppbyggingarinnar og nauð­ synlegur leiðarvísir áfram fyrir stríðshrjáða álfu sem þurfti að koma á varanlegum friði og sátt um samfélagsleg gildi og leikreglur, til þess að koma í veg fyrir að stríðs­ hörmungarnar endurtækju sig. Ein af lykilákvörðunum við uppbygginguna var stofnun Evr­ ópuráðsins 5. maí árið 1949 og samþykkt Mannréttindasáttmála Evrópu ári síðar upp á dag. Árið eftir sýndu íslenskir stjórnmála­ menn þess tíma mikla framsýni fyrir nýja, sjálfstæða lýðræðis­ ríkið Ísland sem gerðist aðildarríki 1950 og fagnar því 70 ára aðild að Evrópuráðinu í ár. Nú eru aðildar­ ríkin 47 og í þeim ríkjum búa um 804 milljónir manna. Mann­ réttindasáttmálinn er lykilsátt­ máli aðildarríkja Evrópuráðsins. Hann tryggir að mannréttindi og réttindi borgaranna séu fest í lög aðildarríkjanna. Og til að tryggja að aðildarríkin standi við skuld­ bindingarnar sem samningurinn felur í sér, var Mannréttindadóm­ stóll Evrópu stofnaður árið 1959. Einstök réttindi Á þessum 60 árum hefur dómurinn kveðið upp meira en 10 þúsund dóma og frá árinu 1998 hafa ein­ staklingar getað leitað til dómstóls­ ins með mál sín. Íbúar aðildarríkja Evrópuráðsins njóta því aðildar síns ríkis á þann mikilvæga hátt að ef þau telja ríkisvaldið brjóta á réttindum sínum, getur viðkom­ andi leitað með mál sitt til Mann­ réttindadómstóls Evrópu. Það er magnað úrræði og ótrú­ legt réttaröryggi fyrir íbúa aðild­ arríkjanna. En þúsundir dóma Mannréttindadómstólsins lúta líka að því að úrskurða um sam­ félagslegar krísur eða jafnvel átök. Enda er Mannréttindadómstólnum oft lýst sem „krúnudjásni“ Evrópu­ ráðsins og vitnað í dómsorð hans í dómstólum víða um heim. Og nú hefur forseti Evrópuráðs­ þingsins tilnefnt dómstólinn til Friðarverðlauna Nóbels árið 2020. Ekki að ósekju þar sem dómstóll­ inn hefur leikið algjört lykilhlut­ verk í því að tryggja friðsamlega uppbyggingu Evrópu og skýrt leik­ reglurnar sem voru og eru enn svo nauðsynlegar til að koma á og við­ halda varanlegum friði og sátt um samfélagsleg gildi og leikreglur. En líka til að koma í veg fyrir að haturs­ glæpir og fordómar leiði til þess að stríðshörmungarnar endurtaki sig. Berum meiri virðingu fyrir alþjóðastofnunum Það eru því mikil vonbrigði að íslenska ríkið skuli á þessum tíma­ mótum dómstólsins grípa til ítr­ ustu varna og setja mikla fjármuni í að verjast í afar umdeildu máli sem snertir og veikir dómskerfi okkar. Það er skiljanlegt að ríki verji sig og eðlilegt, en munum að dómar Mannréttindadómstólsins eru þjóðréttarlega skuldbindandi fyrir Ísland sem íslenskir dómstól­ ar hafa ávallt og undantekningar­ laust beygt sig undir. Líka þegar íslenska ríkið hefur tapað máli. Að áfrýja dómsmáli um ólög­ mæta skipan dómara við Lands­ rétt til yfirdeildar Mannréttinda­ dómstóls Evrópu í stað þess að lúta fyrstu niðurstöðum dómsins, var einfaldlega dapurleg ákvörðun sem jók á réttaróvissu. Enn dapurlegra er þó þegar stjórnmálamenn, sem virðast nán­ ast eingöngu hugsa um sitt eigið orðspor og stöður, halda opinber­ lega á lofti málf lutningi sem grefur undan einni af meginstofnunum mannréttinda, laga og reglna sem Ísland á aðild að. Þess hát t a r má l f lut ning u r stjórnmálamanna sem og að taka til ítrustu varna, er bæði niður­ lægjandi fyrir okkur sem aðildar­ ríki Evrópuráðsins en líka fyrir okkur sem viljum láta taka okkur alvarlega sem þróað lýðræðisríki og alvöru réttarríki án beinna afskipta stjórnmálamanna að dómskerfi okkar. Enda sýndi það sig að eini opinberi stuðningurinn við málatilbúnaðinn kom frá Pól­ landi sem fékk afskaplega hörð tilmæli á Ev rópuráðsþing inu fyrir nokkrum dögum vegna afar umdeildra breytinga á dóms­ og réttarkerfi sínu sem taldar eru grafa undan lýðræði í Póllandi og réttindum borgaranna þar. Þingið ákvað að fara í eftirlitsferli á Pól­ landi sem er með þeirri ákvörðun eina ESB­ríkið sem þarf að lúta þannig eftirliti. Svona stuðning er betra að vera laus við. Nær væri að íslenska ríkið myndi sýna Mannréttindadómstól Evr­ ópu þá virðingu sem hann á skilið og meira til á tímamótum sem þessum. Hvernig sem dómsniðurstaða yfirdeildar Mannréttindadómstóls Evrópu verður í vikunni, þá verð­ um við að hlúa að og auka almenna virðingu fyrir alþjóðastofnunum og sáttmálum sem snúast um virð­ ingu fyrir mannréttindum, lýðræði og lögum og reglum. Að tala mann­ réttindastofnanir niður er grafal­ varlegur hlutur og snýst um miklu meira en stöður, embætti eða að slá pólitískar keilur. Það snýst um ábyrgð og virðingu. Eitthvað sem sumt íslenskt stjórnmálafólk mætti tileinka sér í meiri mæli. Mannréttindadómstóll Evrópu tilnefndur til Friðarverðlauna Nóbels Rósa Björk Brynjólfsdóttir, varaforseti Evrópuráðs- þingsins og þingmaður VG Mannréttindasáttmálinn er lykilsáttmáli aðildar- ríkja Evrópuráðsins. Hann tryggir að mannréttindi og réttindi borgaranna séu fest í lög aðildarríkjanna. Og til að tryggja að aðildarríkin standi við skuldbindingarn- ar sem samningurinn felur í sér, var Mannréttindadóm- stóls Evrópu árið stofnaður árið 1959. QASHQAI 4X4 SJÁLFSKIPTUR NISSAN Gríptu einn nýjan Nissan Qashqai með sjálfskiptingu og hinu fullkomna Nissan Intelligent fjórhjóladrifi. Nissan Qashqai er einn best útbúni sportjeppinn á markaðnum. Honum fylgir fullkomið leiðsögukerfi með Íslandskorti, 7" upplýsingaskjár með samþættingu við snjallsíma, bakkmyndavél, 17" álfelgur og margt fleira. NÝR QASHQAI ACENTA VERÐ: 5.340.000 KR. VERIÐ VELKOMIN Í REYNSLUAKSTUR Don't enlarge the this template. The size of this template can be reduced. BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 Bílasala Reykjaness Reykjanesbæ www.bilasalareykjaness.is 419 1881 E N N E M M / S ÍA / N M 9 8 1 0 5 N is s a n Q a s h q a i a lm e n n 5 x 2 0 f e b S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11M I Ð V I K U D A G U R 5 . F E B R Ú A R 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.