Fréttablaðið - 05.02.2020, Side 37
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055.
Viltu birta minningargrein á frettabladid.is?
Minningargreinar skal senda á timamot@frettabladid.is.
Birting er endurgjaldslaus og opin öllum á frettabladid.is/timamot
Elskuleg eiginkona mín,
móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Kolbrún Karlsdóttir
lést þann 8. janúar sl.
Útförin fór fram í kyrrþey.
Jónas Jónasson
Sólveig Ásta Jónasdóttir Stefán Karl Baldursson
Karl Márus Jónasson
Kolbrún Ýrr Jónasdóttir Erpur Sigurðarson
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Sigurbergur Sigsteinsson
íþróttakennari,
Ásbúð 68,
210 Garðabæ,
lést 29. janúar á hjúkrunarheimilinu
Ísafold í Garðabæ. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
mánudaginn 10. febrúar klukkan 13.00. Blóm og kransar
vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er
bent á Alzheimersamtökin.
Guðrún Hauksdóttir
Herdís Sigurbergsdóttir
Heiða Sigurbergsdóttir Hafliði Halldórsson
Sigsteinn Sigurbergsson
Oddný Sigurbergsdóttir Arnar Daði Helgason
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Guðfinna Hrefna
Arnórsdóttir
(Guffý)
andaðist á heimili sínu þriðjudaginn
28. janúar. Útför hennar fer fram frá
Stykkishólmskirkju 8. febrúar 2020 kl. 14.00.
Kransar og blóm eru afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast
hennar er bent á félagsstarf Dvalarheimilis aldraðra í
Stykkishólmi. Banki: 0309-26-002000, kt: 620269-7009.
Karvel Hólm Jóhannesson
Guðlaugur Ari Karvelsson Þórunn Inga Gísladóttir
Hermann K. Karvelsson Kristín Þorbjörg Sverrisdóttir
Kjartan J. Karvelsson Ólöf Inga Stefánsdóttir
Ívar Sindri Karvelsson Jóhanna Kristín Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
Okkar ástkæri
Ástþór Runólfsson
Þúfuseli 2,
lést 2. febrúar.
Útförin verður auglýst síðar.
Ingunn Jóna Óskarsdóttir
Hildur Ástþórsdóttir Jóhann Ólafur Jónsson
Guðmundur Már Ástþórsson Dagný Alda Steinsdóttir
Hlín Ástþórsdóttir Hrafnkell Marinósson
Hulda Ástþórsdóttir Aðalsteinn Guðmannsson
Runólfur Þór Ástþórsson Heiðrún Ólöf Jónsdóttir
Silja Ástþórsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur bróðir okkar og mágur,
Gísli Þór Sigurðsson
dvalar-og hjúkrunarheimilinu
Höfða, Akranesi,
lést miðvikudaginn 29. janúar.
Útför fer fram frá Akraneskirkju
föstudaginn 7. febrúar kl. 13.00.
Hrefna Sigurðardóttir
Ármann M. Sigurðsson
Sigurjón Sigurðsson
Guðrún Adda Maríusdóttir
Við Siggi Flosa gáfum út okkar fyrsta disk fyrir tutt-ugu árum. Hann hét Sálmar lífsins og á honum voru mestmegnis bara venjulegir
sálmar úr sálmabókinni,“ segir Gunnar
Gunnarsson organisti og bætir við að
þeir hafi tekið diskinn upp í Hallgríms-
kirkju. „Bæði saxófónninn og orgelið
eiga langa hefð í sambandi við spuna.
Það kemur engum á óvart í sambandi
við saxófóninn en færri þekkja spuna á
orgelið. Það hefur samt alltaf verið hefð
að spinna á orgel í gegnum aldirnar og
var gert löngu áður en djassinn varð til.“
Þetta er í raun formálinn að því sem
málið snýst um núna, tónleikum sem
þeir félagar ætla að halda í Hallgríms-
kirkju á morgun, fimmtudaginn 6.
febrúar, og verða nánast upptakturinn
að Vetrarhátíð. Þar ætla þeir að fagna
samstarfi sínu og fá Mótettukórinn, með
stjórnandanum Herði Áskelssyni, með í
spunann.
Gunnar heldur áfram að rifja upp hið
gjöfula samband þeirra Sigurðar sem
hófst í Laugarneskirkju. „Við höfðum
gaman af því að spila saman sálma,“
segir hann, „og líka að f létta þessi tvö
ólíku hljóðfæri saman, orgelið og saxó-
fóninn“. Hann segir að diskinum, Sálmar
lífsins, hafi verið almennt mjög vel tekið.
„Flestum fannst kveða við nýjan tón. En
það voru kannski ekki allir kirkjunnar
menn sem höfðu húmor fyrir þessum
útsetningum og einhverjir töluðu um
„meðferðina“ á sálmunum. Þó gerðum
við þetta af fullri virðingu fyrir sálma-
lögunum, en útkoman féll sem sagt ekki
í kramið hjá alveg öllum.“
Þeir Gunnar og Sigurður létu samt
ekkert stoppa sig, gáfu út f leiri diska
með sálmaspuna og spiluðu efnið líka
töluvert erlendis,“ að sögn Gunnars.
„Verkefnið hlóð dálítið utan á sig. Bisk-
upsstofa aðstoðaði okkur við að ferðast
um landið með þetta sálma prógramm
og spila það í kirkjunum með kórum
á hverjum stað fyrir sig. Svo við erum
búnir að spila í öllum landshlutum og
meira en það.“
Einn diskurinn þeirra félaga heitir
Draumalandið og hann geymir íslensk
ættjarðarlög, leikin á orgel og saxófón.
„Við gerðum þeim svipuð skil og sálm-
unum,“ útskýrir Gunnar. Spurður hvort
þeir ætli svo að flytja sitt lítið af hverju
í Hallgrímskirkju á morgun, svarar
hann: „Já, við ætlum að spila einir til
að byrja með, upp á gamla mátann, en
nýjungin er fólgin í því að við fáum með
okkur Mótettukór Hallgrímskirkju til
að syngja sálmana, við spinnum í kring-
um þá og fáum líka kórinn til að spinna
með. Það er kannski ekki það sem kórar
gera venjulega en þetta verður voða
skemmtilegt. Fyrsta korterið verður
setning Vetrarhátíðar, svo komum við í
kjölfarið og flytjum okkar dagskrá.“
gun@frettabladid.is
Tuttugu ára sálmasamstarf
Félagarnir Gunnar Gunnarsson organisti og Sigurður Flosason saxófónleikari fagna sam-
starfsafmæli í Hallgrímskirkju á morgun með sálmaspuna og virkja þar voldugan kór.
Gunnar og Sigurður stilla sér upp við orgel Hallgrímskirkju og búa sig andlega undir tónleikana á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
Nýjungin er fólgin í því að við
fáum með okkur Mótettukór
Hallgrímskirkju til að syngja
sálmana, við spinnum í kring-
um þá og fáum líka kórinn til að
spinna með.
Frú
Steinunn Guðbrandsdóttir
frá Hólmavík
er 90 ára í dag, 5. febrúar.
Hún verður að heiman á
afmælisdaginn en býður vinum og ættingjum að fagna
með sér laugardaginn 8. febrúar frá kl. 15.00-17.00 í
Félagsmiðstöðinni Borgum, Spönginni 43, 112 Reykjavík.
90
ára afmæli
5 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R16 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT