Fréttablaðið - 05.02.2020, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —3 0 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 5 . F E B R Ú A R 2 0 2 0
HE ILBRIG ÐISM ÁL Karlmaður á
tíræðisaldri er talinn hafa látist
í voveif legu slysi á Kirkjuhvoli,
hjúkrunar- og dvalarheimili aldr-
aðra á Hvolsvelli, um miðjan janú-
ar. Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er talið að slysið hafi orðið
með þeim hætti að fataskápur féll
á manninn þegar hann reyndi að
reisa sig á fætur inni á herbergi
sínu. Af leiðingarnar voru þær að
maðurinn slasaðist illa og lést hann
af sárum sínum.
Heimildir Fréttablaðsins herma
að sérstaklega sé talið ámælisvert
að fataskápurinn hafi ekki verið
tryggður með festingum auk þess
sem skápurinn var á hjólum, sem
gerði hann mögulega ótryggari.
Eins og skylt er samk væmt
lögum um alvarleg atvik, sem vald-
ið hafa eða geta valdið sjúklingum
alvarlegu tjóni, var málið tilkynnt
Landlæknisembættinu. Það stað-
festir Kjartan Hreinn Njálsson,
aðstoðarmaður landlæknis, og að
málið sé í rannsókn. „Við munum
fara yfir þau gögn sem liggja fyrir
í málinu og óska eftir frekari upp-
lýsingum frá stjórnendum ef þess
þarf,“ segir Kjartan Hreinn.
Varðandi möguleg úrræði í mál-
inu segir Kjartan Hreinn að Land-
læknisembættið rannsaki öll slík
tilkynnt alvarleg atvik með það að
markmiði að draga af þeim lærdóm,
leita úrbóta og tryggja þannig að
slík atvik eigi sér ekki aftur stað.
Ólöf Guðbjörg Eggertsdóttir,
hjúkrunarforstjóri Kirkjuhvols,
segist ekki geta tjáð sig um einstök
mál en að hjúkrunarheimilið muni
aðstoða Landlæknisembættið við
rannsókn málsins í hvívetna.
Í ársskýrslu Landlæknisembætt-
isins frá árinu 2018 er greint frá því
að skráðum alvarlegum óvæntum
atvikum hafi fjölgað stöðugt síðast-
liðin ár. Árið 2017 voru þau 29 en 45
árið 2018. Tekið er fram í skýrslunni
að líklega sé þó um bætta skráningu
á atvikum að ræða vegna vitundar-
vakningar en ekki raunaukningu á
óvæntum atvikum.
R angárþing eyst ra sér u m
rekstur Kirkjuhvols en hann hófst
þann 1. mars 1985. Heimilismenn
á Kirkjuhvoli eru 30 talsins. Hjúkr-
unarrými eru 28 og dvalarrými tvö.
– bþ, kkg
Rannsaka dauðsfall á dvalarheimili
Alvarlegt atvik á hjúkrunarheimilinu Kirkjuhvoli á Hvolsvelli var tilkynnt til Landlæknisembættisins um miðjan janúar. Talið er
að maður á tíræðisaldri hafi látist eftir að fataskápur féll á hann í herbergi hans. Skápurinn var á hjólum og var ekki veggfastur.
Við munum fara
yfir þau gögn sem
liggja fyrir í málinu og óska
eftir frekari upplýsingum frá
stjórnendum ef þess þarf.
Kjartan Hreinn
Njálsson,
aðstoðarmaður
landlæknis
Krónan
mælir með!
Bestar
núna!
Það var hátíðleg stund þegar Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, og Ragna Árnadóttir skrifstofustjóri tóku skóf lustungu að nýbyggingu á Alþingisreit í gær. Það markaði upphaf
framkvæmda við 6.000 fermetra nýbyggingu Alþingis. Þar verða skrifstofur þingmanna, aðstaða fyrir þingf lokka, fundarherbergi nefnda, ráðstefnuaðstaða og margt f leira. Kostnaður er
áætlaður um 4,4 milljarðar króna. Þetta er mesta framkvæmd á vegum Alþingis í 140 ár, eða allt frá því að sjálft Alþingishúsið var reist á árunum 1880–1881. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK