Fréttablaðið - 29.02.2020, Blaðsíða 2
Veður
Hvessir aftur í dag, stormur á
Suðausturlandi og syðst á landinu
seinnipartinn. Mun hægari vindur
vestanlands. Él eða snjókoma um
tíma í flestum landshlutum, hiti
kringum frostmark. SJÁ SÍÐU 44
Eurovison á Alþingi
Hópur Eurovision-aðdáenda frá Noregi, Þýskalandi, Bretlandi og Íslandi heimsótti Alþingi í gær. Með þeim var Laufey Helga Guðmundsdóttir,
lögfræðingur á lagaskrifstofu Alþingis, sem sjálf er dyggur fylgismaður söngvakeppninnar. Laufeyju líst afar vel á lögin í úrslitunum í kvöld. „Við
eigum alveg bullandi séns,“ segir Laufey um möguleika Íslendinga. Hún verði að sjálfsögðu í Laugardalshöll með félögum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
SAMFÉLAG Í laginu Thirsty hoes á
væntanlegri plötu Reykjavíkur-
dætra, Soft Spot, rappa þær stöllur
svohljóðandi erindi: „Ég er að fíla
mig hérna, ég tek upp vodka flösk-
una, hell’ uppí aðdáendurna, sorry
Max, færð ekki sopa.“
Sá Max sem minnst er á í laginu
er breskur maður á sextugsaldri,
Max Ramm, sem er aðdáandi
sveitarinnar númer eitt. Hann flutti
nýlega til Íslands en milli hans og
hljómsveitarmeðlima eru miklir
kærleikar enda missir Max varla
af neinum tónleikum sveitarinnar,
hvorki hér á landi né erlendis.
„Þegar við stígum á svið leitum
við eiginlega strax að Max og finn-
um hann nánast alltaf fremstan við
sviðið. Það er mjög hvetjandi,“ segir
Steinunn Jónsdóttir, ein dætranna.
Max kom fyrst til Íslands árið
2009 með þáverandi kærustu sinni
og heillaðist af landi og þjóð. „Ég hef
alltaf kunnað að meta kuldann og
haft áhuga á því að búa á norður-
slóðum. Fyrst horfði ég til Noregs en
síðan kynntist ég Íslandi og þá átti
landið hug minn allan,“ segir Max.
Það var ekki síst íslensk tónlist
sem hafði áhrif á Max. „Ég eignað-
ist plötu með hljómsveitinni Kukl
á sínum tíma og síðan hef ég fylgst
talsvert með íslenskri tónlist. Ég
var til dæmis mjög hrifinn af hljóm-
sveitinni Mammút um tíma og fór
á tónleika sveitarinnar víða um
heim,“ segir Max.
Um nokkurra ára skeið heimsótti
hann Ísland 4-5 sinnum á ári og iðu-
lega þegar Secret Solstice fór fram.
„Á Secret Solstice árið 2016 sá ég
Reykjavíkurdætur fyrst á sviði,“
segir Max. Hann var ekkert sérstak-
lega hrifinn af sveitinni eftir fyrstu
tónleikana en gaf þeim annan séns
í næstu heimsókn sinni til landsins.
„Það voru tónleikar á Nasa og þær
voru stórkostlegar. Ég var þrumu-
lostinn,“ segir Max.
Síðan þá hefur hann verið aðdá-
andi númer eitt og hefur fylgt sveit-
inni um allan heim.
„Þær eru ótrúlegar á sviði. Lögin
eru góð og þær eru með ótrúlega
kraftmikla sviðsframkomu. Það
skiptir ekki máli hvort þær spila
fyrir hundrað manns eða mörg
þúsund. Þær vefja áhorfendum um
fingur sér,“ segir Max.
Árið 2019 stóð Max á krossgötum
í lífi sínu og íhugaði hvort að hann
ætti hreinlega að flytja til Íslands.
„Rétt fyrir svefninn eitt kvöldið
kastaði ég upp peningi. Ég heyrði
þegar hann lenti en ákvað að kíkja
ekki á hann fyrr en morguninn eftir.
Niðurstaðan var skýr – ég átti að
flytja til Íslands,“ segir Max.
Hann beið ekki boðanna og
hefur búið hérlendis síðan og líkar
lífið vel.
„Reykjavík er frábær borg og hér
er nóg við að vera,“ segir Max. Hann
vinnur hjá ÍAV, býr í miðbænum og
ákvað f ljótlega að velja KR sem sitt
lið í íslenska boltanum. „Það var í
raun bara tilviljun. Ég missti varla
af leik með þeim síðasta sumar
og það var stórskemmtilegt, enda
landaði liðið titlinum,“ segir Max
Ramm. bjornth@frettabladid.is
Max elskar Ísland, KR
og Reykjavíkurdætur
Hlutkesti réð því að Max Ramm flutti frá Englandi til Íslands, sem hann dáði
vegna náttúrufegurðar, kuldans og sem heimkynni Reykjavíkurdætra, bestu
hljómsveitar í heimi. Max fylgir Reykjavíkurdætrunum eftir víða um lönd.
Aðdáandinn Max Ramm ásamt Reykjavíkurdætrum fyrir tónleika í Tromsö.
Rétt fyrir svefninn
eitt kvöldið kastaði
ég upp peningi.
Sogavegi 3 • Höfðabakka 1 • Sími 555 2800
Whilst every effort is made to avoid mistakes errors can occur. Please check these
carefully. Proofs that are sent back without signature is considered approved and ok.
Approved and OK New proof please
DATE:
SIGNATURE:
/Ingenjörsgatan 7-9
Box 814, 251 08 Helsingborg
Tel. vx. 042-24 73 00
info@lindsflexo.se, www.lindsflexo.se
14
0
280
Linds Flexo, 1310144 Fiskikongurinn_KORR , 17-JAN-13 YTTER catarina
OPIÐLAUGARDAG
10-15
HUMARSÚPA
STÓR HUMAR
FJÖLMIÐL AR Ari Brynjólfsson,
blaðamaður á Fréttablaðinu og
nýráðinn fréttastjóri, er tilnefndur
til Blaðamannaverðlauna fyrir við-
tal við fjóra erlenda vagnstjóra.
Auk Ara eru Orri Páll Ormarsson
á Morgunblaðinu og þau Erla Björg
Gunnarsdóttir, Nadine Guðrún
Yaghi og Jóhann K. Jóhannsson, á
fréttamiðlum Sýnar, tilnefnd fyrir
viðtal ársins.
Umsjónarmenn Kveiks fá tvær
tilnefningar fyrir rannsóknar-
blaðamennsku, fyrir Procar-málið
og Samherjamálið. Stefán Einar
Stefánsson á Morgunblaðinu er til-
nefndur fyrir bók sína um fall WOW.
Þrjú eru tilnefnd til Blaðamanna-
verðlauna ársins, Guðrún Hálfdán-
ardóttir og Arnar Páll Hauksson hjá
RÚV og Hólmfríður Helga Sigurðar-
dóttir á Stundinni.
Tilnefningu fyrir umfjöllun árs-
ins fengu blaðamenn á Kjarnanum,
um efnahagsmál og Stundin og RÚV
fyrir loftslagsmál. – sar
Ari tilnefndur
til verðlauna
STJÓRNSÝSLA Til stendur að verja
900 milljörðum í ef lingu innviða
landsins á næstu tíu árum. Þetta
kom fram þegar skýrsla og aðgerða-
áætlun átakshóps um úrbætur á
innviðum var kynnt í gær.
Hópurinn var skipaður í kjölfar
fárviðrisins sem gekk yfir landið í
desember í fyrra í og skýrslunni má
finna 540 fyrirhugaðar aðgerðir.
Þar af eru 194 nýjar aðgerðir og
40 aðgerðir í framkvæmdaáætlun
Landsnets og dreif iveitna sem
lagt er til að verði f lýtt. Hinar 306
aðgerðirnar eru innan núverandi
framkvæmda- og fjármálaáætlana.
Til lög u r át a k shópsins fela
meðal annars í sér að f lýta fram-
kvæmdum á svæðisf lutningakerfi
raforku og jarðstrengjavæðingu
dreifikerfis, einföldun leyfisveit-
inga vegna framkvæmda í f lutn-
ingskerfi raforku og að auka þar
skilvirkni, endurskilgreiningu og
ef lingu varaaf ls fyrir raforku og
fjarskipti, ásamt því að uppbygg-
ingu ofanf lóðavarna verði lokið
árið 2030.
Kostnaður við framkvæmdirnar
nemur í heild 900 milljörðum, þar
af nemur f lýting framkvæmda í
f lutnings- og dreifikerfi raforku
tólf milljörðum króna og f lýting
ofanf lóðavarna f immtán millj-
örðum. – bdj
Setja hundruð
milljarða í að
efla innviði
Raflínur skemmdust í óveðrinu
mikla í desember síðastliðnum.
2 9 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð