Fréttablaðið - 29.02.2020, Blaðsíða 4
TÖLUR VIKUNNAR 23.02.2020 TIL 29.02.2020
398
nemar í grunn- og framhaldsnámi
voru brautskráðir frá Háskóla Ís-
lands á laugardaginn var.
287
voru nýskráðir erlendir ríkisborg-
arar hér á landi á síðustu þremur
mánuðum ársins 2019.
10
Íslendingar dvelja nú
í sóttkví á hóteli á Tenerife.
20%
af heildarfjölda starfsmanna á
leikskóladeildum í Reykjavík eru
leikskólakennarar.
2,6
milljörðum varð ríkissjóður af
í fyrra vegna skattaafslátta af
hreinorkubílum.
Þrjú í fréttum
Fleiri verðlaun,
mannanöfn og
hátíðarmessur
Hildur Guðnadóttir
tónskáld
hlaut Norrænu
tónlistarverð
launin sem
veitt voru í
Osló í vikunni
og bætti þann
ig nýrri styttu í
stórt verðlaunasafn sitt. Hildur
hlaut verðlaunin fyrir tónlist sína
í sjónvarpsþáttunum Chernobyl
og varð þá önnur Íslendinga til að
hljóta verðlaunin. Íslensku tón
listarkonurnar Cell7 og Countess
Malaise voru einnig tilnefndar til
verðlauna á hátíðinni.
Eiríkur Rögnvaldsson
prófessor
lýsir yfir stuðn
ingi við nýtt
frumvarp
dómsmála
ráðherra þar
sem lagt er til
að mannanafna
nefnd verði lögð niður
í núverandi mynd, í umsögn sem
birtist í samráðsgátt stjórnvalda.
Í umsögninni bendir Eiríkur á
að réttur manns til nafns sé mjög
ríkur og því telji hann nauðsyn á
auknu frelsi. Að hans mati muni
það ekki skaða íslenska tungu.
Kristján Björnsson
vígslubiskup
óskaði eftir fram
lagi úr Jöfnunar
sjóði sókna til
helgihalds í
Þingvallakirkju.
Umsókninni var
hafnað en sam
þykkt var að taka umsóknina til
umfjöllunar við gerð fjárhags
áætlunar næsta árs og var Kristján
hissa á afgreiðslunni. Þá segist
hann heldur vilja leggja meira í
helgihald en draga úr.
JEEP® GRAND CHEROKEE TRAILHAWK
FÁANLEGUR MEÐ 33” EÐA 35” BREYTINGU
ALVÖRU LÚXUSJEPPI MEÐ ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIFI
jeep.is
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
LISTAVERÐ FRÁ: 11.490.000 KR.
• Leðurklætt aðgerðastýri
• Rafdrifin opnun á afturhlera
• Íslenskt leiðsögukerfi
• Bi-Xenon LED framljós með þvottakerfi
• 3.0 V6 250 hö. dísel, 8 gíra sjálfskipting
• 570 Nm tog
• Hátt og lágt drif
• Læsing í afturdrifi
• Hlífðarplötur undir vél, kössum og skiptingu
• Loftpúðafjöðrun
• Fjarlægðaskynjarar að framan og aftan
• Blindhornsvörn
STAÐALBÚNAÐUR M.A.:
STJÓRNSÝSLA Í gær höfðu aðeins
rúmlega 38 prósent skráningar
skyldra lögaðila skráð raunveru
lega eigendur hjá Ríkisskattstjóra.
Frá og með mánudeginum 2. mars
verða lagðar sektir á þá sem ekki
hafa staðið skil á upplýsingunum.
Að sögn Kristínar Gunnars
dóttur, sérfræðings á skrifstofu
yfirstjórnar Ríkisskattstjóra, er
um að ræða félög, félagasamtök og
aðra aðila sem forms síns vegna eru
skráð í fyrirtækjaskrá. Algengasta
félagaformið sé einkahlutafélög
sem séu tæplega 40 þúsund tals
ins, og þar hafi skil á upplýsingum
verið vel viðunandi. Skil meðal
tæplega 15 þúsund félagasamtaka
hafi verið mjög slæm.
„Hér getur verið um að ræða
foreldrafélög, kórfélög, starfs
mannafélög og alls konar áhuga
mannafélög, sem f lest eru rekin
af sjálf boðaliðum. Þessi félög eru
engu að síður öll skilaskyld og falla
á þau sektir frá og með 2. mars skili
þau ekki fullnægjandi upplýsing
um,“ ítrekar Kristín.
„Ákveðins misskilning og ótta
hefur gætt hjá forráðamönnum og
félagsmönnum, varðandi annars
vegar skyldu til að skrá raunveru
lega eigendur félaga og hins vegar
vegna mögulegrar ábyrgðar sem í
því gæti falist.
Rétt er að taka fram að skrán
ing raunverulegra eigenda félaga
á grundvelli laganna felur ekki
í sér aukna ábyrgð viðkomandi
einstaklinga á starfsemi þeirra,
umfram þá ábyrgð sem þegar fylgir
því að starfa í félögum,“ undir
strikar Kristín.
Þá tekur Kristín fram að vöntun
á upplýsingum um raunverulega
eigendur lögaðila sem skráðir séu
í fyrirtækjaskrá sé ein af ástæðum
þess að Ísland sé á hinum svokall
aða „gráa lista“ í alþjóðasamfélag
inu, listanum sem skapað haf i
erfiðleika fyrir íslensk fyrirtæki í
viðskiptum erlendis.
„Það er þess vegna ríkt hags
munamál fyrir Ísland að vel takist
til með tímanlega skráningu raun
verulegra eigenda félaga,“ bendir
Kristín á. „Vegna hagsmunanna
af því að skráningu ljúki með full
nægjandi hætti verður ekki undan
því vikist að fella frá og með 2.
mars næstkomandi dagsektir á þá
lögaðila sem enn hafa ekki skilað
fullnægjandi upplýsingum um
raunverulega eigendur sína til
fyrirtækjaskrár Skattsins.“
Þess má geta að umrædda skrán
ingu er hægt að gera rafrænt á vef
Ríkisskattstjóra.
mhj@frettabladid.is
gar@frettabladid.is
Margir eiga sekt yfir höfði sér
Frá og með mánudeginum mega eigendur félaga sem ekki hafa skráð sig sem slíkir eiga von á sektum frá
Ríkisskattstjóra. Skortur á þessari skráningu er einn þeirra þátta sem komið hafa Íslandi á „gráan lista“.
Enn eru í skráningarferli tæp 20 prósent af þeim 62.887 lögaðilum sem eru skráningarskyldir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Hér getur verið um
að ræða foreldra-
félög, kórfélög, starfsmanna-
félög og alls konar áhuga-
mannafélög sem flest eru
rekin af sjálfboðaliðum.
Kristín Gunnarsdóttir, sérfræðingur á
skrifstofu yfirstjórnar Ríkisskattstjóra
2 9 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð