Fréttablaðið - 29.02.2020, Síða 20
Tó n l i s t a r h ó p u r i n n C au d a C o l l e c t i ve hefur það að mark-miði að blanda klass-ískri kammertónlist saman við nýja tónlist
og flétta saman við önnur listform.
Í grunninn er um að ræða strengja-
dúó, skipað Þórdísi Gerði Jónsdótt-
ur og Sigrúnu Harðardóttur, sem við
spurðum út í verkefnið.
„Hópurinn tekur á sig ýmsar
myndir, stækkar og teygir sig í
ýmsar áttir, allt eftir verkefnavali
hverju sinni. Í starfi hópsins er leit-
að skapandi leiða til að miðla tónlist
og brjóta upp hefðbundna tónleika-
formið svo að útkoman verði áhuga-
verð fyrir áhorfendur og flytjendur,
en þó alltaf með það að leiðarljósi
að þjóna tónlistinni,“ segir Sigrún.
„Við Þórdís Gerður erum góðar
vinkonur og samstarfskonur og
okkur var farið að þyrsta í að gera
skapandi verkefni í tónlistinni.
Okkur langaði að ögra sjálfum
okkur, fara aðeins út fyrir kass-
ann, prófa eitthvað nýtt og sjá hvað
gerðist. Skapa umhverfi þar sem
þetta væri hægt. Þá varð Cauda
Collective til.“
Sigrún segir suma tónlistarunn-
endur smeyka við klassíska tón-
leika. „Sumir verða óöruggir í
formföstu andrúmsloftinu, finnst
óþægilegt að vita ekki hvenær á að
klappa og sleppa því bara að koma
á tónleika frekar en að koma og líða
ekki vel með það. Sígild og sam-
tímatónlist er alls ekki óaðgengileg
tónlist og við viljum að allir geti
upplifað tónlistina á sinn hátt.
Áhorfendur þurfa ekkert að þekkja
til sögu klassískrar tónlistar til að
njóta, hver og einn kemur á sínum
forsendum og túlkar tónleikana á
sinn hátt,“ útskýrir hún.
Hópurinn brýtur hið sígilda
tónleikaform upp á ýmsan hátt.
„Möguleikarnir eru endalausir,
en markmiðið er að fá inn nýja
tónleikagesti sem ekki hafa vanið
komur sínar á klassíska tónleika, og
hrista aðeins upp í þeim sem þekkja
formið vel og vilja sjá nýja nálgun.“
Á tónleikunum Ástarjátning,
sem fara fram á morgun, spila sjón-
rænir töfrar leikhússins stóra rullu.
„Norðurljósasalur Hörpu er gull-
fallegur salur og býður upp á mikla
möguleika. Hægt er að skipta um liti
í hliðum veggjanna og stilla ljósin á
marga vegu. Það verður svo sannar-
lega nýtt á þessum tónleikum, en
Eva Björg Harðardóttir, leikmynda-
og búningahönnuður, sér um þá
hlið. Hún hefur einnig hannað mjög
ÁHORFENDUR ÞURFA
EKKERT AÐ ÞEKKJA TIL
SÖGU KLASSÍSKRAR TÓN-
LISTAR TIL AÐ NJÓTA,
HVER OG EINN KEMUR Á
SÍNUM FORSENDUM OG
TÚLKAR TÓNLEIKANA
Á SINN HÁTT.
Fyrir þá
sem óttast
klassíkina
Tónlistarhópurinn Cauda Collective kemur
fram í Hörpu á morgun, sunnudaginn 1.
mars, á tónleikunum Ástarjátning, þar sem
aðeins verða leikin verk, íslensk og erlend,
sem tengjast ástinni á einn eða annan hátt.
Þau Unnur Birna Björnsdóttir og
Björn Thoroddsen ferðast með tón-
leika sína um Suðurlandið næstu
vikur og koma fram í Skyrgerðinni,
Hveragerði í kvöld, laugardags-
kvöld. Við spurðum Unni Birnu
nokkurra vel valinna spurninga.
Hvað ertu að lesa?
Dalalíf eftir Guðrúnu frá Lundi,
komin á síðustu bókina. Ég er með
19. aldar blæti, næstu bækur sem
verða lesnar eru Horfnar kynslóðir
eftir Elínborgu Lárusdóttur og
Dalafólk eftir frænku mína Huldu.
Á hvað ertu að horfa?
Anne with an E, sem eru leiknir
þættir um Önnu í Grænuhlíð.
Snilldarlega gerðir þættir og karla-
veldinu gefinn puttinn. Nítjándu
aldar blætið fær mikla útrás. Ég les
eða horfi eingöngu á eitthvað sem
gerist á þessum tíma.
Hvað kæmi fólki á óvart í fari
þínu?
Þegar ég byrja að tala fyrir dýr og
hluti með ákveðinni rödd, sem
vinir mínir kalla „kattaröddina“. Ég
skal viðurkenna að það er ef laust
mjög skrýtið og ég er víst farin að
gera þetta alveg upp úr þurru án
þess að vera í vernduðu umhverfi.
Hvaða orð eða setningu
ofnotar þú?
Ég reyni helst að ofnota ekkert orð,
en ég nota mikið „yfirgengilegt“
og svo elska ég sögnina „að jagast“
– sem auðvitað er mikið notuð í
Dalalífi. „Hættið þessu jagi“, er til
dæmis nýja uppáhaldssetningin
mín. Ég ætla líka að byrja að nota
orðið „vargur“. Ef ég væri uppi um
aldamótin 1900 væri ég ef laust
kölluð kvenvargur, eins og kven-
skörungurinn Þóra frá Hvammi
sem svarar ávallt fyrir sig og lætur
sína skoðun iðulega í ljós.
Hvaða rétt eldarðu oftast?
Pasta með eggaldini, kúrbít, blað-
lauk og tómötum, því það er það
eina af þrennu sem ég kann að elda
og bragðast ekki andstyggilega.
Annars sér kærastinn minn um
eldamennskuna. Hann tekur yfir-
leitt fram fyrir hendurnar á mér og
segir: „Ég skal bara elda ástin mín.“
Hvaða hlutar gætirðu ekki verið
án?
Ég hélt ég gæti ekki verið án
ákveðinnar bókar sem ég hef lesið
í á hverju kvöldi fyrir svefninn
síðan 1997, en ég er með OCD sem
ég storkaði og tók hana ekki með
þegar ég gisti hjá systur minni í
Reykjavík í janúar. Það var stórt
skref, en ég lifði það af og þá komst
ég að því að það er enginn hlutur í
heiminum ómissandi.
Hvað lærðirðu nýtt í síðustu
viku?
Nýja valsinn sem pabbi minn
Björn Þórarinsson, Bassi, samdi,
við munum f lytja hann á tón-
leikaferðinni okkar. Hann heitir
Morgunvals.
Upplýsingar um tónleikana er að
finna á tix.is.
Les og horfir eingöngu á það sem tengist nítjándu öldinni
Unnur Birna er algjörlega heilluð af 19. öldinni. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Jane Ade Sutarjo, Björk Níelsdóttir og Sigrún Harðardóttir eru hluti Cauda Collective sem kemur fram í Hörpu á Sígildum sunnudögum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Björk
Eiðsdóttir
bjork@frettabladid.is
áhugaverða leikmynd sem felur í sér
fimm metra háan skúlptúr í laginu
eins og hjarta, sko líffærið hjarta,
ekki hitt,“ segir Sigrún og hlær.
„Við hljóðfæraleikararnir erum
klæddir í föt sem hún hefur hannað
og saumað og ljósin yfir áhorfend-
unum eru dimmari en gengur og
gerist á tónleikum og minna þar af
leiðandi meira á leikhús.“
Á tónleikunum á morgun verða
flutt verk eftir íslensku tónskáldin
Björk Níelsdóttur, sem einnig syng-
ur með hópnum, og Halldór Smára-
son, ungversk/austurríska tón-
skáldið György Ligeti, tékkneska
tónskáldið Leoš Janáček og franska
tónskáldið Ernest Chausson. Verkin
voru samin á árunum 1898-2018 og
fela öll í sér ástarjátningu á einn
eða annan hátt, enda um tímalaust
yrkisefni að ræða.
„Verk Janáčeks er stórbrotið
tónverk sem er í senn brothætt og
kraftmikið, einlægt og fullt af mikil-
mennskubrjálæði. Verkið var inn-
blásið af langri og innilegri vináttu
hans og Kamila Strösslová, giftrar
konu sem var 38 árum yngri en
hann. Strengjakvartettinn endur-
speglar eðli sambands þeirra, en
þau skiptust á um 700 ástarbréfum.
Þó voru þau bæði í hjónabandi og
höfðu bara hist einu sinni.“
2 9 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R20 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
HELGIN