Fréttablaðið - 29.02.2020, Page 49

Fréttablaðið - 29.02.2020, Page 49
Deildarstjóri frumathugana mannvirkjagerðar Umhverfis- og skipulagssvið leitar að deildarstjóra fyrir deild frumathugana á skrifstofu framkvæmda og viðhalds mannvirkja. Einnig er leitað að sérfræðingi á deildina. Deildin sér um frumathuganir vegna mannvirkjagerðar, sem og forsagnar- og greiningarvinnu. Starf deildarstjóra felur í sér faglega og leiðandi uppbyggingu á viðkomandi málaflokki en unnið er að umhverfisvottun nýbygginga Reykjavíkurborgar og að hönnun sé almennt unnin í hugmyndafræði BIM (upplýsingalíkön mannvirkja) auk þess sem LCC greining er viðhöfð við kostnaðargreiningu líftíma- kostnaðar nýbygginga. Starfssvið • Gerð frumathugana bygginga, valkosta og umsagna í samráði við fagsvið borgarinnar. • Utanumhald verkefna á sviði frumathugana, áætlunargerðar og hönnunar. • Umsjón með undirbúningi, þarfagreiningu, rýmisgreiningu, forsögn mannvirkja og frumkostnaðaráætlana. • Innleiðing BIM og vistvænna áherslna í verk- efnum sviðsins. • Umsjón með hönnunarsamkeppnum sem falla undir verkefni deildarinnar. • Aðkoma að gerð hönnunarsamninga og rýning útboðsgagna. • Minni skipulags- og hönnunarverkefni tengd breyt- ingum, viðbyggingum, viðhaldsverkefnum o.fl. • Fjölbreytt ráðgjöf og samskipti við íbúa, verkfræðistofur og verktaka og að svara fyrirspurnum og erindum. • Samskipti við önnur svið borgarinnar og þátttaka í vinnuhópum og frumkvæðis- verkefnum sviðsins. Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólapróf á sviði arkitektúrs og framhalds- menntun í fagi er áskilin. • Leiðtogahæfni, afburða hæfni í samskiptum og ríkir skipulagshæfileikar. • Reynsla af faglegri forystu á sambærilegu starfssviði. • Reynsla af verkefnastjórn og mannaforráðum. • Þekking á gerð kostnaðar- og framkvæmda- áætlana. • Þekking á skipulags- og byggingarlögum og viðkomandi reglugerðum er kostur. • Þekking á notkun hönnunarhugbúnaðar og á forritum vegna myndrænnar framsetningar efnis er kostur. • Þekking á BIM og á hugmyndafræði vistvænnar hönnunar er kostur. • Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni til að setja fram ritað mál. Starfssvið • Þátttaka í vinnslu frumathugana, valkostagreininga og frumhönnunar. • Verkefni tengd frumathugun mannvirkja- gerðar/nýbygginga – þ.m.t. verkefnalýsing, skilgreining verkefna, valkostir, þarfagreining, gerð forsagna og áætlanagerð og umsjón forhönnunar. • Umsjón og eftirlit með vinnu aðkeyptra ráðgjafa. • Ráðgjöf við notendur fasteigna Reykjavíkur- borgar. • Þátttaka í vinnuhópum og samskipti við önnur svið borgarinnar. • Frumkvæði við að bera kennsl á möguleika fyrir hagnýtingu á BIM, LCC og umhverfis- vottunarkerfum í verkefnum. Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólapróf á sviði arkitektúrs, verkfræði, tæknifræði, byggingarfræði eða í sambæri- legum tæknigreinum sem nýtist í starfi. • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er kostur. • Reynsla af gerð kostnaðar- og framkvæmda- áætlana er kostur. • Þekking á hagnýtingu BIM í hönnun og framkvæmdum er kostur. • Þekking á vottunarkerfum fyrir byggingar er kostur. • Lausnamiðuð hugsun og færni í samskiptum. • Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni til að setja fram ritað mál. • Skipulagsfærni og hæfileiki til að vinna sjálfstætt. • Tölvufærni og þekking á forritum vegna myndrænnar framsetningar efnis er kostur. UMHVERFIS- OG SKIPULAGSSVIÐ Borgartún 12–14 • S. 411 11 11 • usk@reykjavik.is Viltu vera með í að SKIPULEGGJA borgina okkar? Um er að ræða 100% störf. Fyrirspurnum um störfin skal beina til Ámunda V. Brynjólfssonar, skrifstofustjóra framkvæmda og viðhalds mannvirkja, Amundi.V.Brynjolfsson@Reykjavik.is eða til Hólmsteins Jónassonar mannauðssérfræðings, Holmsteinn.Jonasson@Reykjavik.is. Sótt er um störfin á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is, undir „Laus störf”. Umsóknarfrestur er til og með 15. mars 2020. Sérfræðingur á sviði frumathugana mannvirkjagerðar         Skráðu fyrirtækið þitt á alfred.is ATVINNUAUGLÝSINGAR 7 L AU G A R DAG U R 2 9 . F E B R ÚA R 2 0 2 0
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.