Fréttablaðið - 29.02.2020, Qupperneq 52
Almenn garðyrkjustörf, flokkstjórar og
vélamenn
Störfin tilheyra garðyrkjudeild Kirkjugarða
Reykjavíkurprófastsdæma og felast í almennri
umhirðu útisvæða s.s. slátt, gróðursetningu og
illgresishreinsun í Fossvogskirkjugarði,
Gufuneskirkjugarði, Hólavallagarði við
Suðurgötu og Kópavogskirkjugarði.
Ráðningartími er 10-14 vikur frá miðjum maí.
Hæfniskröfur almenn garðyrkjustörf
• Umsækjandi sé fæddur árið 2003 eða fyrr
• Stundvísi og samviskusemi
Hæfniskröfur flokkstjóra
• Reynsla af garðyrkjustörfum
• Sjálfstæð vinnubrögð
• Færni í mannlegum samskiptum
• Stundvísi og samviskusemi
Menntun og hæfniskröfur vélamanna
• Dráttarvélaréttindi
• Sjálfstæð vinnubrögð
• Stundvísi og samviskusemi
Umsókn berist skrifstofu Kirkjugarða
Reykjavíkurprófastsdæma í Fossvogi,
Vesturhlíð 8, 105 Reykjavík fyrir
15. mars 2020, merkt "Sumarstörf".
Einnig er hægt að fylla út umsókn á
www.kirkjugardar.is
og senda
rafrænt.
Sumarstörf
FJÖLBREYTT STARF VIÐ SJÓNVARP
Torg ehf leitar eftir starfsmanni sem getur sinnt förðun fyrir
sjónvarpsupptökur, tekið að sér almenn þrif á skrifstofuhúsnæði
og haft umsjón með eldhúsi starfsfólks.
Einnig felst í starfinu að sjá um almenn innkaup á rekstrarvörum.
Vinnutími er frá 9 til 17 og um fastráðningu er að ræða.
Nýtt, fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir réttu manneskjuna.
Vinsamlegast sendið inn umsókn á kristinbjorg@torg.is
Umsóknarfrestur er til 10. mars 2020.
Leikskólastjóri
á Patreksfirði
Sveitarfélagið Vesturbyggð auglýsir stöðu leik skóla
stjóra á leikskólanum Arakletti á Patreksfirði lausa
til umsóknar. Sveitar félagið aðstoðar við flutninga
og að finna húsnæði.
Í Araklett ganga 46 börn á þrjár deildir og starfa þar
17 starfsmenn. Í starfseminni er lögð er áhersla á að
börn eru skapandi og kraft miklir einstaklingar og það
sé mikilvægt að skapa þeim áhuga hvetjandi umhverfi,
þar sem leikurinn fær að njóta sín. Miðast starfið við
að börn þroskist sem best í jákvæðu, öruggu, hlýju og
tilfinninga ríku umhverfi þar sem borin er virðing fyrir
þeim og skoðunum þeirra. Araklettur er lífsmenntar
skóli „deilum gildum okkar til að skapa betri heim.“
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 30. mars 2020.
Umsóknir og nánar um störfin á vefnum
storf.vesturbyggd.is
Meginverkefni
• Stýrir og ber ábyrgð á rekstri og daglegri
starfsemi leikskóla.
• Faglegur leiðtogi og móta framtíðarsýn .
í samræmi við skólastefnu Vesturbyggðar,
aðal námskrá leikskóla og lög um leikskóla.
• Veitir skólanum forstöðu á sviði kennslu
og þróunar.
• Ber ábyrgð á starfsmannamálum, s.s.
ráðningum, starfsþróun og vinnutilhögun.
• Tekur þátt í samstarfi við aðila skóla
samfélagsins í Vesturbyggð.
Hæfniskröfur
• Leikskólakennaramenntun eða önnur
sambærileg uppeldismenntun.
• Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er æskileg.
• Reynsla af stjórnun skóla er æskileg.
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
• Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum.
• Góð íslenskukunnátta.
• Víðsýni, húmor og gleði.
• Frumkvæði.
Vesturbyggð
10 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 9 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R