Fréttablaðið - 29.02.2020, Page 72
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Sigurjón
segir að árangur
kokkalands-
liðsins á ÓL í ár
sé stærra afrek
en margir gera
sér grein fyrir,
en besti árangur
liðsins hingað
til er 5. sæti á
heimsmeistara-
mótinu og
9. sæti á ÓL.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Sigurjón Bragi Geirsson, þjálfari íslenska kokkalands-liðsins, segir að samvinna
hafi verið lykillinn að velgengni
liðsins á Ólympíuleikunum, þar
sem það hreppti tvö gull og lenti í
þriðja sæti.
Sigurjón lærði á Silfri á Hótel
Borg og útskrifaðist árið 2010.
„Keppnisferillinn minn byrjaði
svo með Ungkokkum Íslands
árið 2011 í Dublin, þar sem við
fengum gull,“ segir hann. „Ég var
svo í úrslitum í Kokki ársins árin
2012 og 2016 og árið 2018 lenti ég
í öðru sæti þar og vann gull á HM
í Lúxemborg með kokkalands-
liðinu. Svo varð ég kokkur ársins
árið 2019.“
Kepptu við lið sem æfa
stöðugt
„Árangur kokkalandsliðsins á
ÓL er stærra afrek en margir gera
sér grein fyrir, en besti árangur
liðsins hingað til er 5. sæti á heims-
meistaramótinu og 9. sæti á ÓL,“
segir Sigurjón. „Mörg af liðunum
sem við kepptum við gera nánast
ekkert nema að æfa, en við erum
öll í fullri vinnu. Við stefndum á
að komast í topp 6, en þetta var
frekar óraunverulegur árangur.
Við æfðum mikið og fólk lagði
mikið á sig til að ná þessum
árangri. Samvinnan var líka alveg
frábær og dómararnir töluðu
einmitt sérstaklega um hvað þeir
voru ánægðir með hana,“ segir
Sigurjón. „Við höfðum bara 10
mánuði til að æfa, en venjulega
höfum við svona 18 mánuði, þann-
ig að ég reyndi að skapa góðan
grunn með því að leggja línurnar í
matnum með þeim. Svo reyndi ég
að hjálpa þeim eins og ég gat og fá
fólk til að koma og veita ráðgjöf.“
Flókið æfingaferli
„Æfingar fara þannig fram að við
erum að elda mikið fyrstu mánuð-
ina og prófa og þróa réttina þannig
að þeir verði betri,“ segir Sigurjón.
„Í fyrstu er rétturinn aldrei eins og
hann verður í lokin á æfingatíma-
bilinu, hann þróast áður en hann
verður að því sem við viljum að
hann sé. Réttirnir sem við vorum
að gera í byrjun eru ekki einu sinni
líkir því sem við enduðum með.
Reglurnar í keppninni eru þann-
ig að maður byrjar með 100 stig
og fær bara mínusa en aldrei plús,
þannig að maður reynir að hanna
matinn þannig að maður fái sem
fæsta mínusa,“ segir Sigurjón.
„Svo þarf að hugsa vandlega um
hvað gengur vel í keyrslu og hvað
hlutirnir taka langan tíma. Þetta
má hvorki vera of einfalt né of
f lókið og það þarf allt að virka full-
komlega, þannig að það þarf að
leysa ýmsar f lækjur. Oftast neglir
maður þetta bara í síðasta mánuð-
inum, það var til dæmis margt sem
gerðist í janúar sem skilaði okkur
þessum árangri.“
Gaman að sjá framfarirnar
„Það er margt fólgið í starfi
þjálfarans,“ segir Sigurjón. „Ég
þarf að sinna öllu sem kemur upp
og þarf að ganga frá í kringum
hópinn og matseldina og hjálpa til
við hana og ég þarf líka oft að taka
lokaákvörðun um ýmis atriði.
Það skemmtilegasta við að
þjálfa er að sjá framfarirnar og
sjá þetta unga lið verða betra og
fatta út á hvað þetta gengur,“ segir
Sigurjón. „Heil 40% af einkunn-
inni okkar á ÓL koma út frá því
hvernig unnið er í eldhúsinu. Það
þarf að passa upp á hreinlæti og
skipulag og hver og einn má ekki
vera of lengi í sama verkefninu.
Við reyndum bara að nota sam-
vinnuna og náðum ótrúlega langt
á því.
Heimsmeistaramótið í Lúxem-
borg 2022 er svo næst á dagskrá
hjá liðinu,“ segir Sigurjón. „Þannig
að nú kemur smá pása og í haust
förum við svo að undirbúa æfingar
fyrir það.“
Samvinna skilaði árangrinum
Þjálfari kokkalandsliðsins segir að það hafi verið sérstaklega góð samvinna liðsins sem skilaði því
frábærum árangri á ÓL. Hann segir að liðsmenn hafi lagt hart að sér og árangurinn sé mikið afrek.
Til hamingju með árangurinn
6 KYNNINGARBLAÐ 2 9 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RKOKKALANDSLIÐIÐ