Skessuhorn - 03.01.2019, Blaðsíða 24
FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 201924
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
TEK AÐ MÉR GARÐAÚÐUN ALLA DAGA VIKUNNAR
GARÐAÚÐUN REYNIS SIG
SÍMI: 899-0304
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
Fisk Seafood ehf. gekk í lok árs
frá kaupum á tveimur skipum af
Gjögri hf. á Grenivík. Um er að
ræða skuttogarana Vörð EA-748
og Áskel EA-749. Einnig keypti
Fisk Seafood tæplega 660 tonn af
aflaheimildum Gjögurs. Aflaheim-
ildir Fisk Seafood verða eftir kaup-
in tæplega 23 þúsund tonn eða um
6% af úthlutuðum aflaheimildum
fiskveiðiársins 2018/2019. Skipin
verða afhent í lok júlí á næsta ári
og um svipað leyti fær Gjögur tvö
ný skip til afhendingar. Verðmæti
viðskiptanna miðað við núverandi
gengisskráningu eru tæplega 1,7
milljarður króna.
Vörður var smíðaður árið 2007
hjá Nordship í Póllandi. Skipið
er tæplega 29 metra langt, ríflega
10 metrar á breidd, 285 rúmlest-
ir og 485 brúttó tonn að þyngd.
Áskell er stálskip sem smíðað var
hjá skipasmíðastöðinni Ching Fu í
Taiwan árið 2009. Skipið er tæp-
lega 29 metra langt, rúmlega 9
metra breitt og 362 brúttó tonn að
þyngd. Skipin voru seld án kvóta
en í sérstökum viðskiptum með
aflaheimildir keypti Fisk Seafood
af Gjögri tæplega 350 tonna kvóta
í ufsa og 245 tonn í djúpkarfa auk
smærri heimilda í löngu, blálöngu,
keilu, skötusel og þykkvalúru.
„Skipakaupin eru liður í end-
urnýjun og endurskipulagningu
á flota Fisk Seafood. Með nýjum
skipum í stað hinna eldri eykst ör-
yggi um borð og aðbúnaður batn-
ar til muna. Endurnýjun er einnig
ætlað að auka hagkvæmni í rekstri,
fjölga heppilegum fiskimiðum
með tilheyrandi fjölbreytni veið-
anna, bæta meðferð aflans og auka
um leið verðmæti hans,“ segir í til-
kynningu frá Fisk Seafood.
mm
Tveir nýir togarar í flota Fisk Seafood
Um 1800 þátttakendur tóku þátt
í fundaröð sem nýverið lauk um
mótun menntastefnu til árs-
ins 2030. Alls voru haldnir 23
fræðslu- og umræðufundir um allt
land. Lilja Alfreðsdóttir mennta-
og menningarmálaráðherra sótti
marga fundina og þar fór yfir sýn
og áherslur er koma að mótun
nýrrar menntastefnu:
„Það var frábært að fá tækifæri
til þess að hitta þennan fjölbreytta
hóp og finna samstöðu, eldmóð og
bjartsýni hjá skólafólki og öðrum
er tengjast þessu spennandi verk-
efni. Ég er þakklát þeim fjölmörgu
sem lögðu hönd á plóg og miðl-
uðu af þekkingu sinni og reynslu.
Hún mun nýtast okkur vel í næstu
skrefum við mótun nýrrar stefnu.
Þau verða að breikka þennan sam-
starfsvettvang, kynna verkefnið
og kalla eftir sýn og sjónarmiðum
fleiri aðila, svo sem atvinnulífsins,
háskólasamfélagsins og ýmissa
félagasamtaka,“ sagði Lilja.
Haldnir voru tveir fundir á
hverjum stað og var sá fyrri með
forsvarsmönnum sveitarfélags
og ábyrgðaraðilum málaflokka
mennta-, félags- og heilbrigðis-
mála ásamt fulltrúum frá Kenn-
arasambandi Íslands, Skólameist-
arafélagi Íslands, Sambandi ís-
lenskra sveitarfélaga, Mennta-
málastofnun, samtökunum Heim-
ili & skóli, kennaramenntunar-
stofnunum og aðilum úr stýrihópi
um eftirfylgni úttektar mennta-
stefnunnar menntun fyrir alla.
Umræðan á þeim fundum tók mið
að helstu áskorunum sem unnið
er að á vettvangi sveitarfélaganna
og var fundarmönnum tíðrætt um
mikilvægi samstarfs kerfa á báð-
um stjórnsýslustigum. Á mörgum
stöðum kom fram lýsing á form-
legu samstarfi mennta- og félags-
kerfis og heilsugæslu. Umræða
um skort á fagmenntuðu fólki var
víða áberandi og einnig mikilvægi
aukins stuðnings við starfsfólk.
Starfsþróun kennara og skóla-
stjóra var einnig til umræðu svo
og hlutverk og þjónusta háskóla
við landsbyggðina. Af einstökum
áskorunum í menntamálum var
þjónustu við börn og ungmenni af
erlendum uppruna mest áberandi.
Fulltrúar sveitarfélaga lýstu marg-
ir yfir ákveðnu úrræðaleysi þegar
kemur að skipulagi þjónustu við
þá nemendur sem til dæmis teng-
ist skorti á þekkingu og hæfni til
að mæta þörfum þeirra.
Síðari fundirnir á hverjum stað
voru með fulltrúum kennara,
skólastjórnenda, frístundastarfs-
fólks og foreldra á skólastigun-
um þremur. Auk þess voru boð-
aðir fulltrúar frá skólaskrifstof-
um og skóla- og félagsþjónustu.
Viðfangsefni þeirra funda var
menntastefnan „menntun fyrir
alla“, sem hefur verið í gildi hér á
landi frá árinu 2008 og mikilvægi
lærdómssamfélags í samhengi við
skólaþróun. Þar var efnt til um-
ræðna um helstu hindranir sem í
vegi eru fyrir árangri hugmynda-
fræðinnar um menntun fyrir alla.
Fyrir liggja niðurstöður vinnu-
hópa á fundunum 23 sem nú verð-
ur farið í að greina og vinna úr.
Eftir áramót verða enn fremur
skipulagðir fundir með ungmenn-
um og tónlistarskólakennurum.
„Stýrihópur verkefnisins mun
fljótlega ræða og taka ákvarðan-
ir um eftirfylgni fundaraðarinnar
og móta næstu skref í þessu mikil-
væga verkefni,“ segir í tilkynningu
frá menntamálaráðuneytinu.
mm
Móta nýja menntastefnu til ársins 2030
Svipmynd af fundi um mótun nýrrar menntastefnu sem haldinn var á Selfossi.