Skessuhorn


Skessuhorn - 03.01.2019, Blaðsíða 9

Skessuhorn - 03.01.2019, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2019 9 Spennandi við Rannsóknarþjónustu Sýnar. Upplýsingar og skráning hjá Fisktækniskóla Íslands Námið skiptist í tvær annir. Námið er kennt í lotum. Kennt er í dreifnámi og staðarlotum sem henta vel starfsfólki á vinnumarkaði. Fyrsta lota byrjar eftir miðjan janúar. Inntökuskilyrði: Hafa lokið námi í Fisktækni eða sambærilegu námi. Mat á reynslu og þekkingu úr sjávarút- vegi getur einnig gilt til að uppfylla inntökuskilyrði. Miklir starfsmöguleikar við gæðamál í sjávarútvegi og víðar. GÆÐASTJÓRN NÁM MEÐ VINNU Sveitarstjórn Borgarbyggðar tók á síðastliðnu hausti ákvörðun um að fá utanaðkomandi aðila til að gera úttekt á stöðu Slökkviliðs Borgar- byggðar. Var niðurstaðan kynnt á fundi byggðarráðs skömmu fyr- ir jól. Fram kemur í skýrslunni að ýmsu er ábótavant í starfi slökkvi- liðsins, bæði hvað varðar samskipti innan liðsins en einnig að skort hafi á stuðningi sveitarfélagsins við starfsemina. „Ástæða fyrir þessari saman- tekt var margháttuð,“ segir Gunn- laugur A Júlíusson sveitarstjóri. „Mannvirkjastofnun gerði úttekt á stöðu slökkviliðsins fyrir tveim- ur árum og fyrir liggur að vinna brunavarnaráætlun fyrir sveitar- félagið á næsta ári. Hún skal ná yfir næstu fimm ár. Einnig hef- ur á undanförnum árum fjölg- að stórum og flóknum bygging- um samhliða mikilli uppbygg- ingu í ferðaþjónustu í Borgar- byggð. Í þessu sambandi er mikil- vægt fyrir kjörna fulltrúa að hafa gott og yfirgripsmikið yfirlit um stöðu slökkviliðsins til að þróa það áfram til framtíðar í sambandi við þær kröfur sem gera þarf til þess,“ segir Gunnlaugur. Það var Dóra Hjálmarsdótt- ir, verkfræðingur hjá Verkís, sem vann skýrsluna. Gunnlaugur seg- ir að í niðurstöðum Dóru komi margt áhugavert og gagnlegt fram sem mun nýtast sveitarstjórn við mótun stefnu og ákvarðanatöku við frekari þróun slökkviliðs- ins. Við vinnslu skýrslunnar voru m.a. tekin ítarleg viðtöl við þá sem tengjast starfi slökkviliðsins á einn eða annan hátt auk annarr- ar gagnaöflunar. Um 68% virkra slökkviliðsmanna tók þátt í viðtöl- unum. Helstu niðurstöður skýrslunn- ar eru þær að Slökkvilið Borgar- byggðar byggir á góðum grunni og hefur um áraraðir verið sinnt af mikilli elju af núverandi slökkvi- liðsstóra. Liðið hefur góðan kjarna slökkviliðsmanna sem líta á starfið sem samfélagsþjónustu, en fram kemur að liðið er farið að eldast, en meðalaldur er ríflega 44 ár. „Þá kemur fram í skýrslunni að ákveðinn samskiptavandi er til staðar innan liðsins. Æfingafyrir- komulag og menntun slökkviliðs- manna er ábótavant auk þess sem brunavarnaráætlun 2014-2019 er í ýmsum atriðum ábótavant. Einn- ig kemur fram að fjármuni hefur skort til reksturs og tækjakaupa og að hefja þurfi vinnu við úrbóta- aðgerðir á ýmsum sviðum. Tölu- verða fjármuni þarf því að leggja í slökkviliðið umfram núverandi fjármagn til reksturs slökkviliðs- ins. Loks er bent á að taka þarf upp nýtt skipulag æfinga og stofna þarf fagráð slökkviliðsins,“ segir Gunnlaugur. Samskiptavandi og áhugaleysi sveitar- stjórnar Ljóst er að skýrsla Dóru Hjálm- arsdóttur er afdráttarlaus um að endurbóta er þörf innan Slökkvi- liðs Borgarbyggðar. Í niðurstöðu- kafla segir m.a: „Úttektin leið- ir í ljós djúpstæðan samskipta- vanda og ágreining sem virðist hafa fengið að þróast í langan tíma og skapað hefur skort á trausti og virðingu milli manna. Orðið hefur stöðnun í starfi slökkviliðsins sem fram kemur m.a. í skorti á mark- vissri eftirfylgni áætlan um æfing- um og menntun, sem og endur- nýjun búnaðar og tækja. Ástæð- ur teljast vera samverkandi þættir samskiptavanda innan slökkviliðs- ins og áhugaleysis sveitarstjórnar fyrir málefnum slökkviliðsins sem fram kemur m.a. í formi ósvaraðra erinda, ófullnægjandi umræðu um nauðsynlegar úrbætur og skorti á fjármagni til nauðsynlegra að- gerða.“ Byggðarráð Borgarbyggðar fjallaði eins og fyrr segir um skýrsl- una á fundi sínum 20. desember sl. Aðspurður um næstu skref segir Gunnlaugur að ákveðið hafi verið að hefja undirbúning að stofnun fagráðs og setja af stað vinnu við úrbótaáætlun á þeim grunni sem niðurstaða skýrslunnar sýnir. mm Úttekt á starfsemi og stöðu Slökkviliðs Borgarbyggðar Nýr og vel búinn slökkvibíll kom í flotann 2007. Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.