Skessuhorn


Skessuhorn - 03.01.2019, Blaðsíða 18

Skessuhorn - 03.01.2019, Blaðsíða 18
FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 201918 Horft til baka og litið til nýja ársins Meetoo byltingin, vætutíð, ferðalög, verkalýðsmál og fleira kemur við sögu Nú þegar árið 2019 er gengið í garð er vel við hæfi að líta til baka og velta fyrir sér árinu sem var að ljúka. Líkt og undanfarin ár leitaði Skessu- horn til nokkurra valinkunnra Vestlendinga víðs- vegar um landshlutann og spurði þá spurninga um árið sem leið. Var fólk spurt að því hvað stóð upp úr á árinu sem var að líða og hverjar vænt- ingar til nýja ársins væru. Svörin létu ekki á sér standa og voru flestir sammála um að 2018 hefði verið ánægjulegt og gott ár. Væntingar til ársins 2019 eru einnig góðar og eru Vestlendingar al- mennt bjartsýnir í upphafi árs. Halldóra Jónsdóttir: Fagnar auknum lestraráhuga „Þegar ég hugsa til baka þá held ég að ársins 2018 verði minnst sem rigningaársins mikla, árið sem sumarið kom ekki á suðvesturlandi. Öfgar í veðurfari eru tíðari um allan heim og vekur það mann til umhugsunar um framtíðina,“ segir Hall- dóra Jónsdóttir, bókasafns- og upplýsingafræðingur á Bóka- safni Akraness. Hún segir árið hafa verið mjög gott fyrir hana persónulega og stendur þar upp úr fjölmargar góðar samveru- stundir með börnum og barnabörnum. „Kjaradeila, sem ljós- mæður stóðu í á árinu, stendur mér nærri, en dóttir mín er ljósmóðir. Ljósmæður börðust fyrir því að fá háskólamenntun sína metna til launa, svo einkennilegt sem það hljómar á 21. öldinni,“ segir Halldóra. „Fyrir mig sem starfsmann á Bókasafni Akraness, þá fagna ég auknum lestraráhuga og finn fyrir verulegri vakningu hjá foreldrum að hvetja börn sín til lesturs. Bókasafnið hefur und- anfarin 15 ár staðið fyrir Sumarlestri barna 6-12 ára og sem fyrr var mjög góð þátttaka. Lesendur Skessuhorns fengu að fylgjast með ungu lesendunum, því safnið fékk birt vikulega í blaðinu stutt viðtal við „lestrarhest vikunnar“.“ Þá segist Hall- dóra einnig fagna fjölbreyttri bókaútgáfu en á árinu var eitt ár liðið frá því að Bókasafnið hóf útlán rafbóka á vefnum raf- bókasafn.is. „Ég hef væntingar um að þar aukist framboð á íslensku efni, hljóðbækur og rafbækur. Tímarnir breytast og bókasöfn landsins taka þátt í því,“ segir Halldóra. „Á árinu var þess minnst að 100 ár voru liðin frá því að Ísland varð frjálst og fullvalda ríki. Ég er í hópi kvenna á Akranesi sem kalla sig „Kellingar“ og minntumst við með okkar hætti, með styrk frá Afmælisnefnd sem skipuð var af Alþingi, afmælis fullveldis- ins með sögugöngu á Írskum dögum og á Vökudögum. Og við erum ekki hættar, ný og spennandi verkefni bíða,“ segir Halldóra. „Annað sem mér er minnisstætt frá liðnu ári er niðurrif Sementsverksmiðjunnar og tækifærin sem felast í þeim breyt- ingum sem brotthvarf verksmiðjunnar hefur í bænum okk- ar. Mun samt pínulítið sakna strompsins, þegar hann hverfur. Gjaldtöku var hætt í göngin, MeToo byltingin var áberandi á árinu og greinilegt að margt má betur fara, samanber Klaust- urmálið í lok ársins,“ segir Halldóra og bætir því við að HM í fótbolta sé líka ofarlega í huga eftir árið 2018. „Þó ég sé ekki mjög mikil fótboltafrík, þá fylgdist ég samt með af áhuga, er íslenska karlalandsliðið í fótbolta fór í fyrsta sinn á HM. Mér fannst þar standa upp úr þegar Hannes varði víti hjá Messi.“ Í lok ársins útskrifaðist dótturdóttir Halldóru úr Fjölbrauta- skóla Vesturlands á Akranesi. „Mér fannst til fyrirmyndar hvernig stjórnendur skólans hrósuðu og vöktu athygli á vel unnum störfum nemenda á liðinni önn,“ segir hún. „Ég óska Akurnesingum og landsmönnum öllum gleðilegs árs og vel- farnaðar á nýju ári,“ segir Halldóra að lokum. Stefán Skafti Steinólfsson: Verkalýðshreyfingin ofarlega í huga eftir árið Verkalýðshreyfingin er ofarlega í huga hjá Stefáni Skafta Steinólfssyni þegar hann hugsar til baka yfir árið 2018. Hann segir vorið hafa verið sérstaklega skemmtilegt hvað verkalýðs- hreyfinguna varðar og að það gefi honum von um betri tíma. „Að fá nýtt og ferskt fólk í hreyfinguna leggst vel í mig,“ seg- ir Stefán. „Maður finnur misskiptinguna meira í dag en oft áður og það vekur verkalýðsbaráttuna sem nú virðist ætla að taka við sér.“ Þá segir hann veðurfarið einnig eftirminnilegt. „Það er eftirminnilegt hversu leiðinlegt veður við fengum hér á Vesturlandi. En þrátt fyrir það er ég heilt yfir ánægður með árið. Mér þykja yfirleitt öll veður blíð á sinn hátt. Barnabörn- in mín tvö vaxa og dafna og það er gaman að fylgjast með því, þau eru helstu gleðigjafarnir.“ Árið 2019 leggst vel í Stefán og segist hann heilt yfir bjart- sýnn fyrir árinu. „Ég hef áhyggjur af útgerð á Vesturlandi en það eru blikur á lofti. Ég held að þetta verði ár átaka en að niðurstaðan verði að lokum góð,“ segir Stefán. Sigurbjörg Kristmundsdóttir: Fagnaði fimmtugsafmæli Þegar Sigurbjörg Kristmundsdóttir er spurð hvað standi upp úr hjá henni árið 2018 segir hún breytingar og endurbætur á bæði Ljómalind og Matarlindinni í Borgarnesi, þar sem hún vinnur, ofarlega í huga. Hún segir einnig að vænta megi frekari endurbóta þar árið 2019. „Má þar nefna vefverslun sem ég er ennþá að vinna í,“ segir hún. „Persónulega náði ég að verða 50 ára og hef sjaldan verið sprækari. Pétur maður- inn minn átti líka 50 ára afmæli á árinu,“ segir hún og bætir við að af því tilefni ætla þau að byrja nýja árið á ferð til Ed- inborgar með alla fjölskylduna. Nýja árið leggst vel í Sigurbjörgu. „Það er verið að kalla eftir sanngirni í þjóðfélaginu og ég held að við þokumst í þá átt. Allavega eru dagarnir skemmtilegri ef maður trúir því,“ segir hún jákvæð. „Svo er krónan að þokast niður og við sem vinnum við ferðaþjónustu horfum fram á betri tíma. Einnig er ég með allskonar gæluverkefni á kantinum sem líta vel út,“ segir Sigurbjörg. Hildur Karen Aðalsteinsdóttir: Ferð til paradísareyju í Grikklandi var dýrmæt Aðspurð hvað standi helst upp úr árið 2018 segir Hildur Kar- en Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri ÍA, margt koma upp í hugann. „Það sem ég er stoltust af er að ÍA samþykkti nýja jafnréttisstefnu og stefnu gegn einelti, áreitni og ofbeldi og viðbragðsáætlun ef upp koma mál af þeim toga. Þá fengum við einnig styrk frá ÍSÍ og UMFÍ til að auka þátttöku barna og unglinga af erlendum uppruna í íþróttum hér á Akranesi. Við hjá íþróttahreyfingunni fengum líka umhverfisverðlaun Akraneskaupstaðar fyrir hreinsunarátak sem við stóðum fyr- ir og stór hluti okkar iðkenda tók þátt í. Stórt skref í mann- virkjamálum var stigið þegar hafin var bygging fimleikahúss við Vesturgötu en ég kynntist mannvirkjamálunum vel frá annarri hlið er ég leysti af sem forstöðumaður íþróttamann- virkja Akraneskaupastaðar um nokkurra mánaða skeið í upp- hafi árs,“ segir Hildur. Þá var árið 2018 gott ár fyrir Hildi persónulega og segir hún margt gott hafa gerst á árinu. „Dóttir mín hóf háskóla- nám og frumburðurinn útskrifaðist frá Kvikmyndaskóla Ís- lands rétt fyrir jól. Vænst þótti mér þó að halda upp á sjö- tugsafmæli föður míns, Aðalsteins Kristjánssonar, á lítilli paradísareyju í Grikklandi með stórfjölskyldunni, það voru dýrmætar stundir,“ segir Hildur. Aðspurð segir hún árið 2019 leggjast vel í sig og að margt spennandi sé á döfinni. „ÍA stefnir á að verða fyrirmyndarhérað ÍSÍ og svo verður glæsileg frístundamiðstöð vígð á Garðavelli með vorinu. Stuðningur og velvilji bæjarbúa ásamt árangri og metnaði iðkenda okkar verður svo til þess að það er alltaf gaman að mæta í vinnuna hjá ÍA,“ segir hún. Lilja Magnúsdóttir: Spáir orðaskaki á opinberum vettvangi þetta ár Fótboltinn og verkalýðsmálin voru meðal þess sem stóð mest upp úr hjá Lilju Magnúsdóttur í Grundarfirði. „Það sem stóð upp úr árið 2018 var að Heimir Hallgrímsson hætti með fót- boltalandsliðið sem var alveg ótrúlega sorglegt. Eins finnst mér verkalýðsmál hafa verið afskaplega fyrirferðamikil á liðnu ári en það er af hinu góða reyndar,“ segir Lilja. „Samt ótrúlega sorglegt hvað við erum oft aftarlega á merinni hér á lands-

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.