Skessuhorn - 03.01.2019, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2019 7
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Alltaf til staðar
Rekstraraðili óskast á Patreksfjörð
N1 óskar eftir rekstraraðila fyrir þjónustustöð félagsins á Patreksfirði.
Til sölu er veitingarekstur og vörubirgðir núverandi rekstraraðila í húsnæði félagsins.
Rekstraraðili mun jafnframt verða umboðsaðili N1 á Patreksfirði.
Hlutverk hans verður að þjónusta viðskiptavini á neytendamarkaði félagsins.
Miklir möguleikar fyrir einstakling eða samhent hjón sem vilja reka sitt eigið fyrirtæki.
Áhugasamir vinsamlegast sendið tölvupóst á
pallorn@n1.is eða hafið samband í síma 440 1022.
Vísitala leiguverðs á höfuðborgar-
svæðinu var 194,9 stig í nóvember
2018 (janúar 2011=100) og hækk-
aði um 1,4% frá fyrra mánuði. Síð-
astliðna þrjá mánuði hækkaði vísi-
talan um 2% og síðastliðna tólf
mánuði hækkaði hún um 9,2%.
Þjóðskrá hefur tekið saman upplýs-
ingar um leiguverð eftir staðsetn-
ingu og stærðarflokkum fasteigna
á landinu í nóvember 2018. Eftir-
farandi tafla sýnir meðalleiguverð
á hvern fermetra í nóvember 2018
fyrir þriggja herbergja íbúðarhús-
næði, flokkað eftir staðsetningu.
Þar má sjá að leiguverð er langhæst
á besta stað á höfuðborgarsvæðinu,
Suðurnes eru með næsthæsta leigu-
verðið og þá Vesturland. Leigu-
verð á Vesturlandi er um 70% af
hæsta verði á höfuðborgarsvæðinu,
sem er milli Kringlumýrarbrautar
og Reykjanesbrautar í Reykjavík.
Fjórða hæsta leiguverðið á landinu
er á Akureyri, þá Suðurlandi, Norð-
urlandi án Akureyrar, en leiguverð
á Vestfjörðum er lægst.
Meðalleiguverð fyrir þriggja
herbergja íbúð:
Reykjavík milli Kringlumýrar-
brautar og Reykjanesbrautar 2833
Kópavogur 2411
Garðabær og Hafnarfjörður 2452
Grafarvogur, Grafarholt, Árbær,
Norðlingaholt og Úlfarsárdalur
2533
Breiðholt 2564
Suðurnes 2038
Vesturland 1960
Vestfirðir 1194
Norðurland nema Akureyri 1466
Akureyri 1713
Suðurland 1648
mm
Leiguverð á Vesturlandi er
70% af hæsta verði í Reykjavík
Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu er hæst fyrir þriggja fermetra íbúðir, Suðurnes í
öðru sæti, Vesturland í þriðja og Akureyri í fjórða. Heimild: Þjóðskrá Íslands.
MARKMIÐ SETT Á NÝJU ÁRI!
Hefjum nýtt ár með fyrirheitum um heilsusamlegt líferni
fimmtudaginn 10. janúar 2019 kl. 20:00 í Hjálmakletti
Leiðbeinandi:
Elísabet Margeirsdóttir
Elísabet Margeirsdóttir
ofurhlaupari og næringar-
fræðingur fjallar um að
setja sér raunhæf markmið í
næringu og hreyfingu á nýju
ári. Elísabet hefur stundað
hlaup í rúman áratug og lokið
fjölmörgum maraþonum og
lengri utanvegahlaupum með
góðum árangri. Hún er annar
höfundur bókarinnar Út að
hlaupa sem er alhliða hand-
bók fyrir byrjendur og lengra
komna í hlaupaíþróttinni.
Fyrirlesturinn er hluti af fræðslufundaröð um Heilsueflandi
samfélag á árinu 2019