Skessuhorn


Skessuhorn - 03.01.2019, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 03.01.2019, Blaðsíða 2
FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 20192 Næstkomandi sunnudag er þrett- ándi og síðasti dagur jóla. Af því tilefni verður þrettándagleði víða í landshlutanum. Þá er hefð fyrir því að fólk skjóti upp síðustu flug- eldunum og er því vert að minna fólk á að taka með sér það rusl sem eftir verður þegar búið er að sprengja. Við skulum svo öll kynna okkur hvenær leyfilegt er að skjóta upp flugeldum og halda okkur innan þess ramma. Spáð er sunnan- og suðvestan 5-13 m/s og dálítilli rigningu eða súld, en úrkomulítið á Norður- og Austurlandi á morgun, föstudag. Hiti 4-9 stig. Á laugardag er gert ráð fyrir sunnan 10-15 m/s og víða verður rigning. Vestlægari átt síð- degis og snjókoma eða él. Kóln- andi veður og hiti um frostmark um kvöldið. Á sunnudag verður allhvöss eða hvöss suðvestanátt og él en þurrt á Austurlandi. Hiti 0-4 stig. Á mánudag er spáð suð- lægri átt og rigningu á köflum en austlægari og slydda eða snjó- koma á norðanverðu landinu. Hiti 0-7 stig og mildast á sunnanverðu landinu. Á þriðjudag er útlit fyrir norðlægri átt, frystir víða og ofan- koma, einkum fyrri part dag. Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns hvort þetta ár verði betra eða verra en það síðasta. Svarendur voru nokkuð bjartsýnir, en 38% spá því að árið verði betra og 26% spá því að það verði mun betra en það síðasta, eða alls 64%. 22% svarenda svöruðu að árið ver- ið hvorki betra né verra en það síðasta. 11% spá því að árið verði verra og 5% sögðu að það verði mun verra en það síðasta. Í næstu viku er spurt: Hvað tannburstar þú þig oft á dag? Við á Skessuhorni viljum þakka þeim fjölmörgu sem tilnefndu Vestlending ársins að þessu sinni og krýnum þá Vestlendinga vik- unnar. Spurning vikunnar Til minnis Veðurhorfur Vestlendingur vikunnar Bílasala til sölu AKRANES: Fasteignamiðlun Grafarvogs hefur fengið til sölu- meðferðar Bílasölu Akraness ehf., eða hina rótgrónu bílasölu Bílás sem bræðurnir Ólafur og Magnús Óskarssynir hafa átt og rekið í 35 ár. Í auglýsingu kem- ur fram að fyrirtækið er í full- um rekstri og lagt er upp með að selja rekstur og um 600 fer- metra fasteign að Smiðjuvöllum 17 sem eina heild, en til greina kemur þó að selja hús og rekst- ur sitt í hvoru lagi. Þrjú fyrir- tæki eru starfrækt í húsnæði Bí- láss og eru leigusamningar um þann hluta húsnæðisins sem ekki er notaður fyrir bílasöluna. -mm Útgáfu Stykkis- hólmspóstsins hætt STYKKISH: Í bæjarblaðinu Stykkishólmspóstinum, sem kom út 20. desember síðastlið- inn, var tilkynnt að 25 ára útgáfu blaðsins væri nú hætt og sömu- leiðis útgáfu vefritsins Snæfell- ingar.is. „Dagar fréttaveitunn- ar eru taldir nema ef einhverjir áhugasamir vilji taka verkefnið að sér,“ segir í yfirlýsingu frá útgefandanum Anok margmiðl- un. „Útgáfa Stykkishólmpósts- ins var fastur kjarni í starfsemi fyrirtækisins en önnur verk- efni eru þar fyrirferðarmeiri og verður við þessi tímamót mögu- legt að sinna þeim enn frek- ar og betur,“ segir í tilkynning- unni. Auk Skessuhorns - frétta- veitu Vesturlands, eru nú tvö bæjarblöð enn starfandi á Vest- urlandi; Jökull í Snæfellsbæ og Íbúinn í Borgarbyggð. Á Akra- nesi er vefmiðlinum Skagafrétt- ir.is haldið úti, en hann flytur jákvæðar fréttir úr bæjarlífinu. -mm FJARNÁM Skráning á haustönn fer fram dagana 22. ágúst til 5. september á slóðinni www.fa.is/fjarnam Skráning á vorönn stendur til 15. janúar l . Síðdegis á sunnudaginn valt lítil hópferðabifreið á vegum Strætó bs. út af Vestfjarðavegi skammt frá af- leggjaranum að Stóra Skógi í Döl- um, sunnan við afleggjarann þar sem beygt er inn á Skógarstrand- arveg. Bíllinn hafnaði á hliðinni. Bílstjóri og fjórir farþegar voru í bílnum og sluppu allir án teljandi meiðsla. Áætlunarbíllinn var á leið frá Hólmavík áleiðis í Borgarnes. Mjög hált var á þessum slóðum og fékk bíllinn á sig vindhviðu. mm Strætó valt í Dölum Bíllinn á hliðinni utan vegar. Ljósm. sm. Sigurður Ingi Jóhannsson sam- gönguráðherra kynnti fyrir jól þá ákvörðun sína að stefna að flýt- Ríkisstjórnin stefnir að stórátaki í samgöngumálum ingu vegabóta víðsvegar um land- ið. „Til að fjármagna uppsafnað- an vanda í vegakerfinu er stefnt að því að valdar framkvæmdir verði fjármagnaðar með lánsfé og þær borgaðar með veggjöldum að loknum verktíma sem yrði í fyrsta lagi 2024,“ sagði ráðherra. Meðal þeirra framkvæmda sem ráðherra nefnir eru allir stofnvegir frá höf- uðborgarsvæðinu; Reykjanesbraut, Suðurlandsvegur austur fyrir Sel- foss og Vesturlandsvegur í Borg- arnes. „Starfshópur um fjármögnun samgöngukerfisins mun skila nið- urstöður sínum upp úr miðjum janúar. Umhverfis- og samgöngu- nefnd hefur fengið kynnningu á vinnu hópsins og fjallar nefnd- in nú um þær tillögur. Ég stefni að því að leggja fram lagafrum- varp í mars um flýtiframkvæmdir og gjaldtöku, en frumvarpið hefur verið á þingmálaskrá yfirstandandi löggjafarþings. Frumvarpið verð- ur sett í samráðsgátt stjórnvalda og óskað eftir áliti almennings og hagsmunaaðila á efni þess.“ Ráð- herra stefnir á að Alþingi afgreiði nýja samgönguáætlun eigi síðar en 1. febrúar næstkomandi og að frumvarp um flýtiframkvæmdir og gjaldtöku í vegakerfinu verði lagt fram í mars eins og fyrr segir. „Markmið með nýjum fjármögn- unarleiðum í samgöngum; veg- gjöldum eða flýtigjöldum, verður að stórauka öryggi í umferð á veg- um landsins, flýta framkvæmdum, stytta vegalengdir milli byggða, efla almenningssamgöngur og að styrkja atvinnusvæði í landinu,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson. mm Hér má sjá þær flýtileiðir sem ráðherra nefnir. Allir stofnvegir að og frá höfuðborgarsvæðinu, auk vegar við Hornafjörð og Öxi á Austurlandi.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.