Skessuhorn


Skessuhorn - 03.01.2019, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 03.01.2019, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 1. tbl. 22. árg. 3. janúar 2019 - kr. 750 í lausasölu arionbanki.is Það tekur aðeins örfáar mínútur að skrá sig í viðskipti hjá Arion banka. Af því að okkar lausnir snúast um tíma og þægindi. Þægilegri bankaþjónusta gefur þér tíma Nýtt! Fæst án lyfseðils Eru bólgur og verkir að hrjá þig? Gleðilegt nýtt ár sími 437-1600 Sýningar á Sögulofti hefjast að nýju nú í janúar Grettissaga Einars Kárasonar laugardaginn 12. janúar kl. 20:00 sunnudaginn 13. janúar kl. 16:00 „Farðu á þinn stað“ Frumsýning er laugardaginn 26. janúar kl. 20:00 Næsta sýning sunnudag 27. janúar kl. 16:00 Nánar um dagskrá og miðasala á landnam.is/vidburdir 20 ÁR Val á Vestlendingi ársins stóð yfir í desember en þetta er í tuttugasta skipti sem Skessuhorn - fréttaveita Vesturlands, stendur fyrir valinu. Auglýst var eftir tilnefningum frá almenningi auk þess leitaði ritstjórn álits fjölmargra valinkunnra íbúa í landshlutanum, því betur sjá augu en auga í þessu sem mörgu öðru. Þessum gögnum var síðan safn- að saman og niðurstaðan var sú að fjórir einstaklingar, hjón eða hópar sköruðu framúr og fengu langflest- ar tilnefningar. Þetta voru; eigend- ur Guðmundar Runólfssonar hf. í Grundarfirði, Bára Tómasdóttir og fjölskylda í Hvalfjarðarsveit, Eirík- ur J Ingólfsson byggingaverktaki í Borgarnesi og Hjónin Guðrún Ag- nes Sveinsdóttir og Ingólfur Árna- son eigendur Skagans 3X og Þor- geirs & Ellerts á Akranesi á Akra- nesi. Eigendur GRun hf. Vestlendingar ársins 2018 eru eig- endur útgerðar- og fiskvinnslufyrir- tækisins Guðmundur Runólfsson hf. í Grundarfirði. Eigendur fyrirtækis- ins eru sjö systkini Guðmundarbörn og makar, auk frænda þeirra Mós- esar Geirmundssonar. Þessi hópur stendur þétt saman að rekstri fyrir- tækisins og á liðnu ári var af mikl- um krafti ráðist í uppbyggingu full- komnustu bolfisksvinnslu í landinu. Fjárfesting upp á vel á annan millj- arð króna, áhersla lögð á íslenskt hugvit og mannafla og markmiðið að treysta til frambúðar stoðir fisk- vinnslu í heimabyggð. Nýja vinnsl- an verður opnuð síðar í þessum mánuði. Bára Tómasdóttir Bára Tómasdóttir í Hvalfjarðarsveit og fjölskylda henn- ar varð fyrir áfalli í maí síðastliðnum þegar 18 ára son- ur hennar, Einar Darri Óskarsson, lést í svefni. Kom þá í ljós að hann hafði verið að nota lyfseðilsskyld lyf og var dánaror- sökin lyfjaeitrun. Fjölskylda Einars Darra opnaði í kjölfar fráfalls hans umræðu í þjóðfélaginu sem leiddi til þjóðarátaks gegn fíkniefnum þar sem áherslan var á misnotkun lyfja meðal ungmenna á Íslandi. Átakið er undir myllumerkinu #Ég á bara eitt líf. Á síðasta ári voru til rann- sóknar yfir 50 dauðsföll hjá embætti landlæknis vegna gruns um lyfja- eitrun og hafa þau aldrei verið jafn mörg á einu ári. Árið 2017 voru þau 32 talsins. Eiríkur J Ingólfsson Eiríkur J Ingólfs- son bygginga- meistari í Borg- arnesi hlaut til- nefningar fyrir kröftugan rekstur byggingafyrirtæk- is í heimabyggð. Eiríkur hefur á liðnum árum og áratugum rekið EJI húsbyggingar, byggt fjölda húsa auk þess að sér- hæfa sig í glugga- og hurðasmíði í tæknilega vel búinni trésmiðju. Ei- ríkur hefur veitt mörgum tækifæri, skapað atvinnu í héraði og tekið á samning efnilegt fólk og stutt til að öðlast réttindi í húsbyggingum. Hjónin Guðrún Agnes og Ingólfur Hjónin Guðrún Agnes Sveinsdóttir og Ingólfur Árna- son á Akranesi hlutu tilnefningar. Þau hafa á síðustu árum byggt upp úr bílskúrsrekstri sín- um á Akranesi al- þjóðlegt hátækni- fyrirtæki með höf- uðstöðvar á Akra- nesi. Fyrirtækið Skaginn 3X er lei - andi á sínu sviði í hönnun og smíði ýmissa framleiðslu- og tæknilausna í matvælaframleiðslu. Starfsmönnum fyrirtækja þeirra hefur fjölgað mjög á liðnum árum og einkum hefur störfum háskólamenntaðra fjölgað á Akranesi. Er nú svo komið að rekstur þeirra á Skaganum 3X og Þorgeiri & Ellert hf. er orðinn einn helsti burð- arás atvinnulífs á Akranesi. Þau hafa frá upphafi verið vakin og sofin yfir rekstri fyrirtækjanna. Rætt er við Vestlendinga ársins 2018 í Skessuhorni í dag. mm Eigendur Guðmundar Runólfssonar hf. eru Vestlendingar ársins 2018 Systkinin Runólfur, Guðmundur Smári, Kristján, Páll, María og Unnsteinn Guðmundsbörn tóku við viðurkenningunni, fyrir hönd eigenda G.Run, sem Vestlendingar ársins úr hendi Kristjáns Gauta Karlssonar blaðamanns Skessuhorns. Þau eru eigendur fyrirtækisins ásamt Inga Þór bróður sínum og mökum þeirra auk Móses Geirmundssonar frænda þeirra. Ljósm. tfk. Bára Tómas- dóttir. Eiríkur J Ingólfs- son. Guðrún Agnes og Ingólfur með dóttursoninn Daníel Árna Ottesen. Ljósm. úr safni.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.