Skessuhorn - 03.01.2019, Blaðsíða 26
FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 201926
MT: Stefán Gísli með verðlauna-
gripinn síðastliðinn sunnudag.
Hvernig fannst þér
Áramótaskaupið?
Spurni g
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Þóra Gunnarsdóttir
Sumt var gott og annað ekki.
Sunneva Ólafsdóttir
Það var ágætt.
Ingvar Jón Sesil Viðarsson
Það voru nokkrir fyndnir brand-
arar en líka mikið af engu eig-
inlega.
Ingibjörg Eyja Erlingsdóttir
Það var allt í lagi.
Páll Skúlason
Það var bara gott miðað við þessi
sem hafa verið síðustu ár.
Hlaupahópur Snæfellsbæjar, með þau
Rán Kristinsdóttur og Fannar Bald-
ursson í fararbroddi, stóð fyrir Gaml-
ársdagshlaupi. Veður og færð voru
ekki alveg upp á það besta; hálka og
kalt. Hlauparar létu það þó ekki á
sig fá og mættu um 20 galvaskir við
Íþróttahús Snæfellsbæjar um hádegið
á Gamlársdag. Boðið var upp á tvær
vegalengdir og hlaupið til gamans og
þátttakendur hvattir til að mæta í bún-
ingum sem flestir gerðu og gaman að
sjá skemmtilega búninga. Að hlaupi
loknu buðu þau hjón Rán og Fann-
ar ásamt börnum sínum upp á heitt
súkkulaði til að halda upp á hlaupið
ásamt því að tekið var forskot á flug-
eldasýningar kvöldsins þegar kveikt
var í einni tertu. Voru hlauparar mjög
ánægðir með þennan viðburð. þa
Hlupu í Snæfellsbæ á Gamlársdag
Hið árlega gamlárshlaup Knatt-
spyrnufélags ÍA var haldið eft-
ir hádegi á gamlársdag. Hlaup-
ið var prýðilega vel sótt og góður
hópur sem hljóp út árið. Ræst var
af stað frá Akratorgi kl. 13:00. Sú
skemmtilega hefð hefur skapast í
tengslum við hlaupið að hlaupar-
ar klæðast margir skrautlegum og
skemmtilegum búningum. Undir-
strikar það að léttleikinn er í fyrir-
rúmi og allir kátir á síðasta degi árs-
ins. Ekki var fylgst sérstaklega með
tímum eða hverjir komu fyrstir í
mark, enda hlaupið fyrst og fremst
til skemmtunar.
Meistaraflokkur kvenna átti veg
og vanda að framkvæmd hlaupsins,
en það er liður í fjáröflun liðsins
fyrir æfingaferð sem farin verður í
vor.
kgk/ Ljósm. gbh.
Gamla árið kvatt
á hlaupum