Skessuhorn - 03.01.2019, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2019 11
Safnahús Borgarfjarðar
Bjarnarbraut 4-6 Borgarnesi, 433 7200
Verði breytingar á dagskrá verður það kynnt á
www.safnahus.is
Marín Guðrún Hrafnsdóttir
„Kona á skjön“
Um ævi og störf Guðrúnar frá Lundi
Fyrirlestur í Hallsteinssal fimmtudaginn 10. janúar 2019, kl. 19.30.
Marín Guðrún er bókmenntafræðingur og langömmubarn Guðrúnar.
Í erindi sínu segir hún sögu hennar sem er um margt ævintýraleg.
Fyrirlesturinn tekur um klukkutíma, svo verður spjallað og heitt á könnunni.
Vakin er athygli á að sama dag kl. 10.00 er Myndamorgunn á vegum
Héraðsskjalasafnsins skv. fyrri auglýsingu. Þar greina gestir ljósmyndir.
Verið innilega velkomin!
EEE
Þrettándabrennan verður haldin sunnudaginn 6. janúar við þyrlupallinn á
Jaðarsbökkum. Blysför hefst kl. 17 við Þorpið, Þjóðbraut 13. Björgunarfélag
Akraness sér um brennuna og flugeldasýningu sem hefst um kl. 17:30.
Að því loknu býður ÍA gestum í íþróttahúsið á Jaðarsbökkum þar sem
val á Íþróttamanni Akraness 2018 verður tilkynnt.
Ef breyting verður á tímasetningu vegna
veðurs verður það tilkynnt á www.akranes.is.
Þrettándagleði og
Íþróttamaður Akraness
Hætt var að innheimta komugjöld
af öryrkjum og öldruðum í heilsu-
gæslu og hjá heimilislæknum frá
1. janúar síðastliðnum, samkvæmt
ákvörðun Svandísar Svavarsdótt-
ur heilbrigðisráðherra. Gildir það
jafnt hvort sem um er að ræða
komu á dagvinnutíma eða á öðr-
um tímum sólarhringsins. Gjald
fyrir vitjanir lækna til aldraðra og
öryrkja verður einnig fellt niður.
Líkt og áður eru ekki innheimt
komugjöld hjá börnum að 18 ára
aldri.
„Þetta er mikilvæg aðgerð og
liður í stefnu stjórnvalda um að
draga úr greiðsluþátttöku sjúk-
linga vegna heilbrigðisþjónustu
og auka á móti framlög hins opin-
bera. Þetta er einnig í samræmi við
þá áherslu að efla hlutverk heilsu-
gæslunnar sem fyrsta viðkomu-
staðar fólks í heilbrigðiskerfinu“
segir Svandís.
Þak var sett á heildarútgjöld
sjúklinga og ýmsar aðrar breyting-
ar gerðar varðandi greiðsluþátt-
töku fólks fyrir heilbrigðisþjón-
ustu með nýju greiðsluþátttöku-
kerfi árið 2017. Þessi breyting hef-
ur lækkað verulega útgjöld þeirra
sem mest þurfa á heilbrigðisþjón-
ustu að halda og stuðlað að aukn-
um jöfnuði meðal notenda heil-
brigðiskerfisins. Heildarútgjöld
sjúklinga í nýja greiðsluþátttöku-
kerfinu eru um 1,5 milljörðum
króna lægri á ársgrundvelli en þau
voru áður og lækka enn frekar með
niðurfellingu komugjalda öryrkja
og aldraðra um áramótin.
Komugjöld almennra notenda
í heilsugæslunni verða óbreytt að
krónutölu á nýju ári og taka því
ekki hækkunum í samræmi við
breyttar verðlagsforsendur.
Komur öryrkja í heilsugæsl-
una eru um 55.000 á ársgrundvelli
og komur aldraðra um 107.500,
miðað við tólf mánaða tímabil frá
miðju ári 2017 – 2018.
mm
Komugjöld í heilsu-
gæslu felld niður hjá
öryrkjum og öldruðum
Ástkær faðir okkar, afi og langafi, Ragnar
Sveinn Olgeirsson, lést á hjúkrunarheimilinu
Brákarhlíð aðfararnótt 29. desember
síðastliðins.
Útför hans fer fram frá Borgarneskirkju
laugardaginn 5. janúar nk. kl. 14.00.
Hann verður jarðsettur í Lundarkirkjugarði að aflokinni erfidrykkju.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á hjúkrunarheimilið Brákarhlíð í Borgarnesi.
Sigurður Oddur Ragnarsson Guðbjörg Ólafsdóttir
Olgeir Helgi Ragnarsson Theodóra Þorsteinsdóttir
barnabörn og langafasynir
Andlát:
Ragnar Sveinn Olgeirsson
áður bóndi á Oddsstöðum
Bændur í Reykhólahreppi, ásamt
bændum á Ströndum og í Ísafjarð-
ardjúpi, sendu samtals um tvö þús-
und heyrúllur til Noregs um jólin.
Flutningaskip lagðist að bryggju á
Hólmavík á aðfangadagsmorgun
og hafist var handa við að lesta það
rétt fyrir hádegið sama dag. Hald-
ið var áfram að lesta á öðrum degi
jóla, en sæfarar og sauðfjárbændur
tóku sér frí frá lestun á jóladag, 25.
desember.
Heyskapur var með versta móti
í Noregi á liðnu sumri vegna mik-
illa þurrka. Af þeim sökum óskuðu
Norðmenn þess að fá að flytja inn
hey frá Íslandi til að fóðra skepnur
sínar. Rúmlega þrjátíu þúsund hey-
rúllur hafa verið fluttar til Noregs
frá Íslandi það sem af er vetri, eink-
um frá norðanverðu landinu.
Fyrir hverja rúllu borga Norð-
mennirnir á bilinu 7.800 til 10 þús-
und krónur, eftir gæðum og raka-
stigi heysins. Útflutningurinn til
Noregs verður því að teljast kær-
komin búdrýgindi fyrir bændur
á svæðinu. Meira er til af heyi og
voru bændur að vonast eftir öðru
skipi seinna í vetur. kgk
Tvö þúsund rúllur
til Noregs
Heyrúllunum raðað um borð í flutningaskipið sem flutti þær áleiðis til Noregs.
Fluttar voru út um tvö þúsund rúllur. Hér má sjá stóran hluta þeirra í stæðum á
kæjanum á Hólmavík, þaðan sem skipað var út.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is