Skessuhorn - 06.02.2019, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2019 5
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Fundir til kynningar á verkefninu;
Bættur rekstur - Betri afkoma
Átaksverkefni SSV fyrir starfandi
fyrirtæki á Vesturlandi 2019
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi halda fundi til að kynna verkefnið
„Bættur rekstur – Betri afkoma til að örva nýsköpun í starfandi fyrirtækjum á
Vesturlandi 2019“ sem unnið verður í samvinnu við ráðgjafafyrirtækið Áttir ehf.
Verkefnið er áhersluverkefni í Sóknaráætlun Vesturlands.
Miðvikudagurinn 13. febrúar
Í Kaupfélaginu á Akranesi kl. 13
Í Símenntunarmiðstöðinni, Bjarnarbraut 8 í Borgarnesi kl. 16
Í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal kl. 20
Föstudagurinn 15. febrúar
Á bæjarskrifstofunni í Stykkishólmi kl. 10
Á bæjarskrifstofunni í Grundarfirði kl. 13
Í Átthagastofunni í Snæfellsbæ kl. 17
Á fundunum verður farið yfir verkefnið og tækifæri starfandi fyrirtækja til að bæta
rekstur sinn og afkomu með nýsköpun á öllum sviðum rekstrarins.
Vakin er athygli á því að verkefnið Bættur rekstur – Betri afkoma í starfandi fyrirtækjum
nær til starfandi fyirirtækja í öllum starfsgreinum og eru forsvarsmenn fyrirtækja hvattir til
að mæta og kynna sér hvort verkefnið geti falið í sér tækifæri fyrir viðkomandi fyrirtæki.
Atvinnuráðgjöf SSV og Áttir efh.
Safnahús Borgarfjarðar
Bjarnarbraut 4-6 Borgarnesi, 433 7200
Verði breytingar á dagskrá verður það kynnt á
www.safnahus.is
Þóra Elfa Björnsson
„Ég hefði fylgt þér “
Svarfhóll í Stafholtstungum á 19. og 20. öld
Fyrirlestur í Hallsteinssal fimmtudaginn 14. febrúar 2019, kl. 19.30.
Fyrirlestur Þóru Elfu er frásögn af samfélaginu séð gegnum líf hjónanna
Björns Ásmundssonar og Þuríðar Jónsdóttur á Svarfhóli sem voru miklir
frumkvöðlar á sínum tíma og börn þeirra einnig.
Fyrirlesturinn tekur um klukkutíma, svo verður spjallað og heitt á könnunni.
Er fólk hvatt til að mæta og hlýða á vandaða framsögu um þetta merka efni.
EEE
Vakin er athygli á að sama dag kl. 10.00 er
Myndamorgunn á vegum Héraðsskjala-
safnsins skv. fyrri auglýsingu. Þar greina
gestir ljósmyndir.
Rekstur tjaldsvæðis í Búðardal
Dalabyggð auglýsir eftir aðila til að reka tjaldsvæðið í Búðardal.
Mikilvægt er að viðkomandi hafi haldbæra þekkingu og/eða reynslu
sem nýtist vel til reksturs í ferðaþjónustu, s.s. tungumálakunnáttu,
reynslu af þjónustustörfum og ríka þjónustulund.
Með umsókn skal fylgja greinargerð varðandi rekstrarfyrirkomulag.
Skilmálar sem einkum verður litið til við val á rekstraraðila:
Tillaga að samningsákvæðum
Áform umsækjanda um þjónustu á svæðinu og starfsmannahald
Reynsla og þekking viðkomandi aðila af ferðaþjónustu
Gert er ráð fyrir opnun og þjónustu við tjaldsvæðið allt árið. Rekstra-
raðili tekur að sér allt utanumhald með rekstrinum, m.a. kynningar- og
markaðsmál, samskipti og þjónustu við gesti, þrif og umsjón með viðhaldi
aðstöðunnar. Rekstraraðili skilar gistináttaskýrslum til Hagstofunnar og
stendur skil á gistináttaskatti.
Stefnt er að því að semja við viðkomandi aðila til allt að þriggja ára, með
möguleika á framlengingu til tveggja ára.
Áhugasamir aðilar vinsamlegast skilið inn umsókn til Dalabyggðar að
Miðbraut 11, 370 Búðardal eða á netfangið dalir@dalir.is, eigi síðar en
kl. 12 á hádegi þann 28. febrúar 2019. Sveitarfélagið áskilur sér rétt til
að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Upplýsingar um rekstur tjaldsvæðis eru á heimasíðu Dalabyggðar dalir.is.
Einnig veitir ferðamálafulltrúi upplýsingar, ferdamal@dalir.is.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Ertu víkingur?
Dalabyggð óskar eftir aðila til að sjá um rekstur Eiríksstaða í Haukadal.
Mikilvægt er að viðkomandi sé vel mæltur á íslensku og ensku, hafi gaman
að mannlegum samskiptum og áhugasamur um að þjónusta ferðamenn.
Ekki spillir að hafa þekkingu á sögunni og áhuga á því að miðla henni.
Æskilegt er að viðkomandi hafi grunnþekkingu á markaðssetningu á
samfélagsmiðlum, sem er áhrifamesti kynningarmáti fyrir starfsemi
sem þessa. Búseta í Dalabyggð er kostur.
Árlegur opnunartími Eiríksstaða verður frá 1. maí til 30. september og gjar-
nan yfir veturinn eftir því sem eftirspurn gefur tilefni til. Salernisaðstaða er
opin allt árið og fólk kemur við á Eiríksstöðum, eftir því sem færð leyfir, árið
um kring. Bókanir hópa eru þegar hafnar en flestir af gestum Eiríksstaða
koma þó á eigin vegum, en ekki í skipulögðum hópum.
Á Eiríksstöðum hefur verið seld leiðsögn um tilgátuhús
Eiríks rauða, sagðar sögur af víkingum og seldir minjagripir.
Einnig má bæta við annarri þjónustu ef nýr rekstraraðili
hefur hug á. Veitingaleyfi er þó ekki fyrir hendi, né fyrirhugað.
Gert er ráð fyrir að samið verði um reksturinn til þriggja ára
með möguleika á framlengingu til tveggja ára til viðbótar.
Áhugasamir aðilar vinsamlegast skilið inn umsókn til Dalabyggðar að
Miðbraut 11, 370 Búðardal eða á netfangið dalir@dalir.is, eigi síðar en
kl. 12 á hádegi þann 28. febrúar 2019. Sveitarfélagið áskilur
sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Upplýsingar um rekstur Eiríksstaða eru á heimasíðu Dalabyggðar dalir.is.
Einnig veitir sveitarstjóri upplýsingar, sveitarstjori@dalir.is.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Árleg dansvika hefur staðið yfir í
Grunnskóla Grundarfjarðar. Líkt
og síðastliðin ár var kennslan í
höndum Erlu Haraldsdóttur. All-
ir nemendur skólans tóku þátt og
þar á meðal nemendur Eldhamra
sem er fimm ára deild innan skól-
ans. Glæsileg tilþrif sáust á dans-
gólfinu þegar nemendur sýndu af-
rakstur æfinganna á danssýningu
síðastliðinn föstudag. Þá var for-
eldrum og ættingjum boðið til að
sjá afraksturinn og óhætt er að
segja að enginn hafi verið svikinn
af þeirri sýningu.
tfk
Árleg danskennsla í
Grunnskóla Grundarfjarðar