Skessuhorn - 06.02.2019, Qupperneq 10
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 201910
Á fundi stjórnar Brákarhlíðar í
Borgarnesi 24. janúar síðastliðinn
var á dagskrá svarbréf sem barst frá
Svandísi Svavarsdóttur heilbrigð-
isráðherra við erindi sem hjúkrun-
arheimilið sendi ráðherra í febrúar
fyrir tveimur árum. Erindið var tví-
þætt. Annars vegar ósk um að bæta
við fjórum nýjum rýmum í húsa-
kynnum Brákarhlíðar og hins vegar
að fjölga hjúkrunarrýmum og fækka
þá á móti dvalarrýmum, einu á móti
einu. Afgreiðsla ráðuneytisins nú
varðandi fyrri liðinn er sú að ráðu-
neytið hafnar því að útbúin verði ný
rými. Vísað er til fjárlaga og þess að
Vesturland sé skilgreint hjá ráðu-
neytinu eitt best setta heilbrigðis-
umdæmi landsins m.t.t. fjölda hjúkr-
unarrýma. Laus hjúkrunarrými er
þó einkum að finna í Búðardal og á
Reykhólum. Afgreiðsla ráðuneytis-
ins varðandi seinni lið erindis Brák-
arhlíðar er sú að ráðuneytið er til-
búið að skoða það að breyta þeim
dvalarrýmum sem heimilið hefur
rekstrarheimild fyrir í hjúkrunar-
rými, telji stjórnendur Brákarhlíð-
ar það þjóna betur þörfum íbúa, og
þá með því skilyrði að tvö dvalar-
rými verði sett á móti einu hjúkrun-
arrými.
Heimilisfólki
myndi fækka
Stjórn Brákarhlíðar lýsir í svar-
bréfi til ráðherra miklum vonbrigð-
um með svörin og telur þau í miklu
ósamræmi við þá orðræðu sem á sér
stað varðandi hrópandi þörf á fjölg-
un hjúkrunarrýma á landinu öllu.
„Sú hugmynd að fjölga rýmum í
Brákarhlíð myndi kosta samfélagið
aðeins um fjórðung þess sem talið er
að kosti að byggja hvert nýtt hjúkr-
unarrými frá grunni. Til er kostnað-
armat sem kynnt hefur verið því til
stuðnings. Það er einnig með öllu
óásættanlegt að boðið sé upp á þá
aðferðafræði sem felst í því að fórna
tveimur dvalarrýmum á móti einu
hjúkrunarrými, en með því myndi
heimilismönnum í Brákarhlíð fækka
og þar með standa ónotuð rými sem
standast allan samanburð hvað varð-
ar útfærslu og best gerist á landinu.“
Nú eru nítján manns á biðlista eftir
dvöl í Brákarhlíð í Borgarnesi. Þar
af eru tólf á biðlista eftir hjúkrun-
arrými og sjö á biðlista eftir dvalar-
rými. Allt er þetta fólk komið með
hjúkrunarrýmismat.
Óboðleg rök ráðuneytis
Eins og fram hefur komið er svip-
uð staða uppi á Hjúkrunar- og dval-
arheimilinu Höfða á Akranesi. Upp-
tökusvæði Höfða og Brákarhlíðar
eru langfjölmennust í umdæminu
sem ráðuneytið skilgreinir sem Vest-
urland, en auk sveitarfélaga á Vest-
urlandi eru einnig Reykhólahrepp-
ur, Strandabyggð, Kaldrananes-
hreppur, Árneshreppur og Húna-
þing vestra skilgreind innan Vest-
ursvæðis. Greinilegt er að þær regl-
ur sem heilbrigðisráðuneytið hefur
sett sér taki ekki tillit til landfræði-
legra aðstæðna og óska eldri borg-
ara. Heimafólk er sammála um að
óboðlegt sé að senda fólk milli hér-
aða og landshluta til búsetu á hjúkr-
unar- eða dvalarheimilinum, fjarri
ættingjum og þess stuðningsnets
sem eldra fólk vill geta treyst á í
sinni heimabyggð. Elsa Lára Arn-
ardóttir, formaður stjórnar Höfða á
Akranesi, segir að jafnvel þótt laus
hjúkrunarrými séu til annars staðar
á Vesturlandi þá sé það engin lausn
fyrir eldra fólk á Akranesi þar sem
það á sitt bakland og vill eðli málsins
samkvæmt dvelja. „Hreppaflutning-
ar með veikt fólk, gegn vilja þess, er
ekki lausn sem heilbrigðisráðuneyti
eða stjórnvöldum er sæmandi hverju
sinni,“ sagði Elsa Lára í samtali við
Skessuhorn.
Taka nú höndum saman
í baráttunni
Forsvarsmenn Höfða á Akranesi
og Brákahlíðar í Borgarnesi hafa
ákveðið að taka höndum saman við
að berjast fyrir bættri stöðu þess-
ara hjúkrunar- og dvalarheimila.
Var það ákveðið á fundi sem þau
héldu á mánudaginn. „Bæði heim-
ilin biðu í um tvö ár eftir svörum
ráðuneytisins sem er að mati okk-
ar allra í hópnum ólíðandi vinnu-
brögð í stjórnsýslunni. Þessi hópur
hefur óskað eftir fundi með þing-
mönnum Norðvesturkjördæmi og
verður hann haldinn á miðvikudag
[í dag, innsk. blm],“ segir Elsa Lára
í samtali við Skessuhorn.
Sjá nánar um málið í pennagrein
eftir Jón G Guðbjörnsson, formann
stjórnar Brákarhlíðar, í Skessuhorni
á bls. 28. mm
Ráðherra hafnaði beiðni Brákarhlíðar
eftir tveggja ára umhugsun
Forsvarsmenn Höfða og Brákarhlíðar taka höndum saman í hagsmunagæslu fyrir heimilin
Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri Höfða, Elsa Lára Arnardóttir, formaður stjórnar Höfða, Jón G Guðbjörnsson, for-
maður stjórnar Brákarhlíðar og Björn Bjarki Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Brákarhlíðar. Hópurinn hefur ákveðið að hitta
sameiginlega þingmenn kjördæmisins og taka nú höndum saman í hagsmunagæslu fyrir bæði hjúkrunar- og dvalarheimilin.
Framkvæmdir eru í þessi misser-
in í fullum gangi við endurbætur
og stækkun Grunnskólans í Borg-
arnesi. Núverandi skólabygging
samanstendur af nokkrum mis-
gömlum byggingum og víða var
kominn tími á viðhald. Með fram-
kvæmdunum er aðstaða fyrir nem-
endur og starfsfólk skólans bætt til
muna. Jafnframt verður skólabygg-
ingin mun aðgengilegri fyrir fatl-
aða. Nýr og glæsilegur matsalur,
sem einnig nýtist sem samkomu-
salur, er í bygginu ásamt nýrri eld-
hússaðstöðu og kennslurými fyrir
heimilisfræði. Aðalhönnuður við-
byggingar og endurbóta á skól-
anum er Zeppelin Arkitektar en
verkfræðihönnun er í höndum
Verkís. Verkfræðistofan Efla fram-
kvæmdi ástandsskoðun á húsnæð-
inu árið 2017 eftir að mygla hafði
verið greind í hluta þess.
Verktaki við framkvæmdirnar er
Eiríkur J Ingólfsson ehf og eftir-
lit með framkvæmdum hefur verk-
fræðistofan Víðsjá. Eins og fram
hefur komið í Skessuhorni er nú
stefnt að því að framkvæmdum
verði að mestu lokið árið 2020 og
að einungis frágangsvinna við lóð
verði eftir árið 2021. Fyrir áhuga-
sama má finna teikningar af breyt-
ingunum á Kortasjá Borgarbyggð-
ar.
mm/ Ljósm. og teikningar frá
Borgarbyggð.
Framkvæmdir ganga vel við stækkun Grunnskóla Borgarness
Hér má sjá norðvesturhlið skólans eftir stækkunina. Teikning af matsal skólans.
Svipmynd úr salnum á byggingarstigi.