Skessuhorn - 06.02.2019, Qupperneq 26
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 201926
MT: Stefán Gísli með verðlauna-
gripinn síðastliðinn sunnudag.
Hvaða sjónvarpsþáttur er
í mestu uppáhaldi hjá þér?
Spurni g
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Erlingur Birgir Magnússon
Í augnablikinu er það Ófærð.
Hannibal Hauksson
Wentworth.
Gunnar Bergmann Steingríms-
son
Star Trek: Discovery.
Auður Kristjánsdóttir
Þessir íslensku, eins og Landinn,
Ófærð og Paradísarheimt.
Guðmundur Þór Guðmundsson
NCIS.
Árið er 1997 og vinur minn er ný-
búinn að eignast Playstation tölvu.
Við setjumst niður í herberginu á
Einigrundinni og í er settur leik-
urinn Madden 97. Leikurinn snýst
um bandarískan fótbolta og einu
leikkerfin sem ég vel er Shotgun
og Slant route. Shotgun er kerfi
sem dreifir útherjunum út á völl-
inn og leikstjórnandinn stendur
5-7 yarda fyrir aftan sóknarlínuna,
til að kaupa sér meiri tíma á meðan
útherjarnir hlaupa á fullu gasi upp
völlinn. Uppáhaldskerfi margra því
það er svo hreint og beint sókn-
arkerfi, ef þú ert að leita að hlið-
stæðu kerfi í enskum fótbolta þá er
kannski hægt að nefna uppáhalds-
kerfi Sam „the mouth“ Allardyce
sem er „long ball“, no brains – all
guts.
Hitt kerfið sem ég valdi var Slant
route í ýmsum útgáfum. Slant kerf-
in byggjast að miklu leyti á því að
tveir útherjar taka 45° beygju inn á
völlinn í stað þess að hlaupa beint
upp völlinn, er þetta oftast gert
til að hrista upp í Cover 2 vörn-
inni sem Tampa Bay Buccaneers
undir stjórn Tony Dungy notuðu
með miklum árangri, svo miklum
að þeirra útgáfa af Cover 2 geng-
ur undir heitinu Tampa 2. Rosalegt
allt saman.
Eftir þessa fyrstu kynningu á
bandarískum fótbolta fékk ég svo-
lítinn áhuga á íþróttinni en sökum
lítils áhuga hér heima og Game
Pass var ekki til þá horfði ég lítið á
fótboltann, las þeim mun meira um
hann og það fyrsta sem ég vissi um
bandarískan fótbolta var að Brett
Favre var flottur gaur, enda nýbú-
inn að vinna Ofurskálina um árið
með Green Bay Packers. Sá leikur
skartaði hvorki meira né minna en
6 frægðarhallarmeðlimum sem eru
eftirtaldir: Ty Law, Curtis Mart-
in, Brett Favre, Reggie White,
Ron Wolf og síðast en ekki síst
minn maður Bill Parcells. Kynn-
arnir í leiknum árið 1997 voru Pat
Summerall (frægur kynnir) og mað-
urinn sem leikurinn sem ég spilaði
á Einigrundinni er nefndur eftir –
John Madden.
Afhverju er ég að tala um þetta?
Nú, bandarískur fótbolti er að
ryðja sér til rúms (loksins) hér
á Íslandi og æ fleiri eru að fylgj-
ast með. Fólk er byrjað að velja
sér lið til að styðja og sjónvarpið
er að bjóða upp á beinar útsend-
ingar. Ofurskálin (Super Bowl) er
að verða að skemmtilegum við-
burði í lífi margra sem nota tæki-
færið til að hittast og skemmta sér
til að horfa á leik ársins. Þessi leik-
ur var ekki mikið fyrir augað stiga-
lega séð, eiginlega algert þrátefli.
Varnarlega séð var þetta stórkost-
legur leikur. Þetta er svona mini-
HM kvöld á hverju ári, því Kan-
inn kann þetta. Ég meina, þeir eru
„World Champs“ - heimsmeist-
arar, sama á við um hafnarboltann
sem notast við „World Series“.
Það er reyndar eitt sem pirrar
mig óstjórnlega, ekki lítið reyndar.
Það komst nefnilega frétt eða um-
fjöllun um Ofurskálina í hringrás-
ina sem gefur svolítið skakka mynd
af þessu öllu saman að mínu mati
(þú mátt kalla mig Grinch eftir
þetta, mér er drullusama). Fréttin
fjallaði um hvar Íslendingar gerðu
á Ofurskálakvöldinu. Svo ég sjóði
þetta niður fyrir þig: Samkvæmt
fréttinni er meirihluti NFL áhorf-
enda á Íslandi túristar með sauma-
klúbbakomplexa. Þeir hugsa meira
um hvað þeir ætli að borða á meðan
á leiknum stendur og þeim er skít-
sama um hver vinnur. Leið liðanna
beggja í Ofurskálina er þeim hulin,
eina sem þeir vita er að svínarifin
þurfa að vera í stofuhita áður en
þau fara á grillið og veðbankarnir
segja að Patriots vinni, kannski So-
us-Vida þeir rifin líka, það á eftir að
koma í ljós.
Þá kemur sú spurning upp; túr-
isti? Hvað meinar hann með því?
Sko í þessu samhengi tala ég um
túrista sem einstakling sem klæð-
ist treyju með liðinu sem er að spila
hverju sinni, hann heldur ekki með
liðinu en gerir það þarna. Til dæm-
is sagðist einn halda með Atlanta
Falcons en ætlaði samt að klæð-
ast Brady treyjunni sinni, Tom
Brady er leikstjórnandi New Eng-
land Patriots. Þessi maður átti fleiri
búninga.
En hvað um það, Patriots unnu
og eru nú búnir að jafna mitt lið
(Pittsburgh Steelers) í Ofurskál-
artitlum (6) og það með einungis
einum leikstjórnanda og þjálfara
síðustu 18 árin: Tom Brady og Bill
Belichick, eins og Kaninn myndi
segja: „how about them apples“.
Allavega, ég vona að fleiri taki
það upp hjá sér að sitja og horfa á
heilt tímabil af bandarískum fót-
bolta og ef það þarf mat yfir Ofur-
skálinni (leiðin að hjarta mannsins/
konunnar er víst í gegnum magann)
þá er ég sáttur.
Kveðja,
Axel Freyr
Af bandarískum fótbolta og matargerð
PISTILL
Skallagrímskonur unnu góðan sig-
ur á Stjörnunni, 67-63, í fjörugum
leik í Domino‘s deild kvenna á mið-
vikudagskvöld. Leikið var í Borga-
nesi.
Skallagrímskonur komu ákveðn-
ar til leiks. Þær höfðu yfirhönd-
ina í fyrsta leikhluta og leiddu með
þremur stigum að honum loknum,
18-15. Stjarnan minnkaði muninn í
eitt stig í upphafi annars leikhluta.
Borgarnesliðið náði góðum leik-
kafla og fimmtán stiga forskoti, en
gestirnir minnkuðu muninn í sjö
stig áður en hálfleiksflautan gall,
38-31.
Eftir hléið voru Skallagríms-
konur sterkari. Þær skoruðu hverja
körfuna á fætur annarri og kom-
ust mest 17 stigum yfir. En Stjarn-
an átti lokaorðið í þriðja leikhluta
og náði að minnka muninn í tíu
stig fyrir lokafjórðunginn, 55-45.
Fjórði leikhluti var æsispennandi.
Með góðum leik náði Stjarnan að
gera forskot Skallagríms að engu
og komast yfir þegar leikhlutinn
var hálfnaður, 57-59. Liðin skipt-
ust á að skora og þegar þrjár mín-
útur lifðu leiks leiddi Stjarnan með
tveimur stigum. Skallagrímskonur
stáli hins vegar boltanum tvisvar
sinnum í röð og skoruðu auðveldar
körfur. Þær kláruðu síðan leikinn af
vítalínunni og sigruðu með fjórum
stigum, 67-63.
Ines Kerin var stigahæst í liði
Skallagríms með 18 stig og fimm
stoðsendingar að auki. Maja Mic-
halska skoraði 16 stig, Shequila Jo-
seph skoraði 14 stig og tók tólf frá-
köst og Brianna Banks var með ell-
efu stig og fimm stoðsendingar.
Ragna Margrét Brynjarsdóttir
skoraði 17 stig og tók níu fráköst í
liði Stjörnunnar. Danielle Rodrigu-
ez skoraði 13 stig, tók sjö fráköst og
gaf níu stoðsendingar.
Með sigrinum lyftu Skallagríms-
konur sér upp í sjötta sæti deildar-
innar með tólf stig, tveimur stigum
meira en Haukar í sætinu fyrir neð-
an en átta stigum á eftir Stjörnunni
í sætinu fyrir ofan.
Næsti leikur Skallagríms er
Vesturlandsslagur gegn Snæfelli í
Stykkishólmi í kvöld, miðvikudag-
inn 6. febrúar. kgk
Sigur eftir spennandi
lokamínútur
Ines Kerin var stigahæst þegar Skallagrímur sigraði Stjörnunar.
Ljósm. Skallagrímur. Árlegur áskorendadagur Mennta-
skóla Borgarfjarðar var haldinn 16.
janúar síðastliðinn. Þá etja nem-
endur og starfsfólk skólans kappi í
hinum ýmsu greinum. Fyrir hádegi
var keppt í íþróttahúsinu í Borgar-
nesi í fótbolta, körfubolta, kíló og
blaki. Nemendurnir sigruðu tvær
greinar og starfsfólkið tvær. Stað-
an var því hnífjöfn þegar hópurinn
hélt í skólann að nýju þar sem all-
ir snæddu saman pylsur og ís. Eftir
hádegið var keppt í borðtennis þar
sem starfsfólkið vann góðan sig-
ur. Næst var keppt í beerpong með
vatni þar sem nemendur fóru með
sigur af hólmi og staðan því 3-3
fyrir lokagreinina, sem var keppni
í Gettu betur. Þar voru nemendur
mun sterkari, sigruðu með 34 stig-
um gegn 17 og vörðu þar með titil-
inn frá því í fyrra.
kgk/ Ljósm. Menntaskóli
Borgarfjarðar.
Nemendur vörðu titilinn
á áskorendadegi MB
Nemendur MB hampa bikarnum að loknum sigri á starfsfólki MB á áskorendadegi
skólans, annað árið í röð.
Frá æsispennandi keppni í borðtennis þar sem starfsfólk skólans hafði betur.
Feðgar og bræður öttu kappi í íþróttahúsinu á áskorendadegi MB. F.v. Bræðurnir
Sölvi G Gylfason og Elís Dofri G Gylfason og feðgarnir Davíð Freyr Bjarnason og
Bjarni Þór Traustason.