Skessuhorn


Skessuhorn - 22.05.2019, Blaðsíða 17

Skessuhorn - 22.05.2019, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 22. MAí 2019 17 Vinnupeysa 3.990 kr,- Eiríkur Skagabraut 6, Akranesi sími: 431-5110/666-5110 smaprent@smaprent.isSmáprent Fríform ehf. Askalind , Kópavogur. 6 – Friform.is Glæsilegar danskar innréttingar í öll herbergi heimilisins Með litla frænku sína í fanginu. ir gæðastarfinu. „Nú erum við að glíma við það vandamál að það vantar ljósmæður til starfa á HVE á Akranesi. í vor hættu tvær ljós- mæður og það hefur ekki enn tekist að manna stöður þeirra. Fastráðn- ar ljósmæður á HVE eru nú ellefu í alls 6,1 stöðugildi, en við þurfum að fjölga um að minnsta kosti tvö stöðugildi hjá okkur,“ segir Hrafn- hildur. Að morgni föstudags, þeg- ar viðtalið var tekið, kom einmitt upp mönnunarvandi sem deildar- stjórinn þurfti að leysa. Ljósmóðir sem átti að standa næstu næturvakt var veik og þá þurfti að fylla í skarð- ið. „Þetta reddast náttúrlega alltaf með einhverjum hætti. í okkar hópi er samheldni mikil og ljósmæð- urnar hafa tekið aukavaktir þeg- ar þannig atvikast enda sýna þær mikinn skilning á ástandinu sem nú er. Hins vegar er þetta bagalegt til lengri tíma og leysist ekki til fram- búðar nema að takist að ráða í stöð- urnar. Þetta er ekki síst mikilvægt í ljósi þess að ljósmæður hafa verið einar á næturvöktum en stefna okk- ar er sú að þær verði tvær á hverri vakt, í því felst ákveðið öryggi. Mitt er síðan að sannfæra stjórnendur, og þá sem halda um budduna, um mikilvægi þess. Við megum held- ur ekki gleyma að fæðingum hér á Akranesi hefur verið að fjölga, sem er gleðilegt út af fyrir sig. Það á að mínu viti að vera markmið að ljós- mæður séu ávallt tvær á vakt, það eykur öryggið.“ Mikil ábyrgð á fámennari stöðum Það er skortur á ljósmæðrum í land- inu. Það er hins vegar mikil ásókn í námið en það eru einungis tíu ljós- mæðranemar teknar inn á ári í Há- skóla íslands. „Þessi kvóti er sett- ur vegna þess að það eru ekki verk- námspláss fyrri fleiri. Okkar mönn- unarvandi nú helgast af því að það er skortur á ljósmæðrum í landinu, við erum of fáar og meðalaldurinn er að hækka.“ Þá segir Hrafnhildur að harðar vinnudeildur ljósmæðra á síðasta ári hafi haft sín áhrif, jafnvel þótt flestar ljósmæður sem sögðu upp störfum hafi skilað sér til baka eftir að kjaradeilunni lauk. „Það er engu að síður of fáar ljósmæður starfandi í landinu. Það bitnar verst á jaðarsjúkrahúsum úti á landi. Þar verða ljósmæður að starfa mjög sjálfstætt, taka jafnvel meiri ábyrgð en þær sem starfa á stærri vinnu- stöðum, og sumar treysta sér ein- faldlega ekki í það.“ Fagfélagið 100 ára Ljósmæðrafélag íslands varð ný- verið 100 ára og hyggst það halda upp á tímamótin með ýmsum hætti allt afmælisárið. Nú þegar hefur verið haldin ein alþjóðleg ráðstefna í Hörpu og fleiri viðburðir eru í farvatninu. Þá var nýverið lagð- ur minningarsteinn í gangstéttina framan við Laugaveg 20 í Reykja- vík þar sem fyrsta fæðingarheimil- ið var til húsa. Ljósmæðrafélag ís- lands stofnuðu 20 ljósmæður 2. maí árið 1919. Markmið félags- ins var að bæta kjör ljósmæðra sem þá störfuðu flestar sem héraðsljós- mæður. Enn í dag eru sömu bar- áttumál á oddinum þótt aðferð- irnar hafi breyst. „í grunninn er hugmyndin að baki félaginu enn sú sama og í upphafi. Þær 20 ljós- mæður sem stofnuðu félagið gerðu það til að efla hag ljósmæðrastéttar- innar og standa vörð um kjör ljós- mæðra. Einnig til að glæða áhuga þeirra á faginu og efla þekkingu þeirra á öllu því er að starfi ljós- mæðra laut. Þessi markmið eru ennþá í fullu gildi þótt félagið beiti öðrum aðferðum nú en áður fyrr,“ skrifaði Áslaug íris Valsdóttir, for- maður Ljósmæðrafélags íslands, í tilefni afmælis félagsins í rit BHM. í dag eru félagsmenn í Ljósmæðra- félaginu 285 talsins. Hrein kvennastétt Það vekur athygli blaðamanns að fram til þessa hefur enginn karl- maður sóst eftir að komast í ljós- mæðranám á íslandi. „Ég veit ekki ástæðuna fyrir því að eng- inn karl hefur enn lært til ljósmóð- ur. Kannski er ástæðan sú að þeir karlmenn sem lært hafa hjúkrunar- fræði hafa fremur ákveðið að ná sér í aðra framhaldsmenntun. Allavega kann ég ekki skýringu á að grein- in er enn hrein kvennastétt,“ seg- ir Hrafnhildur. Hún lítur engu að síður björtum augum til framtíðar- innar á Akranesi. „Þetta er spenn- andi starf og sömuleiðis spennandi deild sem ég hlakka til að helga mína starfskrafta,“ segir Hrafnhild- ur Ólafsdóttir að endingu. mm Sumarlestur 3. júní – 9. ágúst fyrir börn á aldrinum 6 – 12 ára Skráning hefst 3. júní Húllum-hæ lokahátíð 14. ágúst kl. 14, happadrætti og leikir Vinnupeysa 3.990 kr,- Eiríkur Skagabraut 6, Akranesi sími: 431-5110/666-5110 smaprent@smaprent.isSmáprent Vinnupeysa 3.990 kr,- Eiríkur Skagabraut 6, Akranesi sími: 431-5110/666-5110 smaprent@smaprent.isSmáprent

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.