Skessuhorn


Skessuhorn - 22.05.2019, Blaðsíða 18

Skessuhorn - 22.05.2019, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 22. MAí 201918 í Borgarbyggð starfa fimm leik- skólar, tveir grunnskólar, tónlistar- skóli, menntaskóli og tveir háskól- ar auk símenntunarmiðstöðvar og nýsköpunarseturs. „Einkunnarorð Borgarbyggðar eru menntun, saga og menning og er skólastarf einn af hornsteinum sveitarfélagsins,“ segir Magnús Smári Snorrason, formað- ur fræðslunefndar í Borgarbyggð í samtali við Skessuhorn. „Það eru ekki mörg sveitarfélög á landinu sem geta státað af svo fjölbreyttu skólastarfi,“ bætir hann við. Nýverið var Skóladagur hald- inn í Borgarbyggð að frumkvæði Menntaskóla Borgarfjarðar, þar sem íbúar og aðrir gestir gátu kynnst því fjölbreytta starfi sem fram fer í ofantöldum skólum. Var mæting framar vonum og almenn ánægja meðal gesta með framtakið. Þar mátti meðal annars sjá afrakstur samvinnu háskólanna við nemend- ur í bæði leik- og grunnskólum þar sem unnin voru raunhæf verkefni undir handleiðslu háskólanema. Skýr skólastefna í núgildandi skólastefnu Borgar- byggðar má finna framtíðarsýn um skólastarf í sveitarfélaginu og einkunnarorð stefnunnar þar sem hagaðilar skólastarfsins sameinuð- ust um gleði, metnað, samkennd og vináttu. „í skólastefnunni koma fram helstu markmið og áherslur ásamt hlutverki og ábyrgð þeirra aðila sem að skólastarfinu standa. Einnig má þar finna hvernig árang- ur starfsins er metinn. Skólunum er gert að móta sér sérstöðu með því að setja sér markmið og velja leið- ir að þeim í skólanámskrám sínum innan þess ramma sem aðalnám- skrá og skólastefnan setur þeim. Að auki hefur verið unnið að lestr- arstefnu Borgarbyggðar og mark- visst hefur verið farið í innleiðingu hennar með skýrum verkferlum,“ segir Magnús. Samstarf kennara og teymiskennsla Síðastliðin ár hefur Borgarbyggð styrkt um tuttugu kennara á ári til grunn- eða framhaldsnáms enda byggir gott skólastarf á vel mennt- uðum kennurum. Lögð er áhersla á að byggja upp lærdómssamfélag í skólunum með auknu samstarfi kennara og skóla. „Löng hefð er fyrir samvinnu leikskólakennara og annars starfs- fólks í leikskólum og byggir starf þeirra að stórum hluta á henni. Frá árinu 2016 hefur teymiskennsla verið innleidd í grunnskóla Borgar- byggðar undir styrkri leiðsögn Ing- vars Sigurgeirssonar prófessors við menntavísindasvið Háskóla íslands. Mikil samkennsla árganga er í öðr- um skólanum sem kallar á teymis- kennslu og í báðum skólunum hef- ur verið mikill vilji til að efla samtal og samvinnu,“ útskýrir Magnús. Innleiðingin felst í fræðslu og samtali til að byggja upp sameigin- legan skilning og sýn á gildi teym- iskennslu og hvað einkennir hana. „Kennurum er gefin vettvangur og tími til að tala við samkennara og deila með sér kennsluaðferðum. Sýna rannsóknir að þar sem teym- iskennsla er stunduð eru niðurstöð- ur PISA og samræmdra prófa betri. Nú er svo komið að báðir grunn- skólarnir skilgreina sig sem teymis- kennsluskólarog starfa flestir kenn- arar í teymum í dag.“ Fjölbreytt viðfangsefni og kennsla Auk mikillar samvinnu kennara og annars starfsfólks einkennist leik- skólastarf af fjölbreyttri vinnu á námssviðum leikskólans. „Stuðlað er að heilbrigði og vellíðan í dag- legu starfi og fá börnin tækifæri til að takast á við verkefni sem tengj- ast sjálfbærni og vísindum í könnun og athugunum. Velferðarkennsla hefur verið innleidd í grunnskólum og vel er hlúð að henni í leikskól- unum. Menningu móta þau með sköpun sinni og má m.a. reglulega sjá listaverk eftir leikskólabörn í verslunum og stofnunum í Borgar- byggð. Grunnskólastarfið einkenn- ist einnig af fjölbreyttum kennslu- háttum m.a. í les-, stærðfræði- og náttúrufræðiskilningi á öllum ald- ursstigum. Tónlistarskóli Borgar- fjarðar hefur verið að setja upp vin- sæla söngleiki og geta nemendur valið sér nám í söngleikjadeild auk hefðbundinnar söng- og hljóðfæra- kennslu.“ Góð samskipti og skólabragur í skólum Borgarbyggðar er lögð áhersla á jákvæð samskipti. „Skóla- bragur einkennist af gleði, jákvæðni og samhjálp og eru kennarar og annað starfsfólk fyrirmyndir barna og ungmenna í orðum og gjörð- um,“ segir Magnús. Hann segir að þetta hafi glöggt mátt sjá á síðasta Skólahreystimóti þar sem stuðn- ingslið Grunnskólans í Borgarnesi vakti athygli fyrir að hvetja öll lið áfram, ekki einungis sitt eigið. „í öllum skólum er gerður samskipta- sáttmáli í ýmsum útgáfum þar sem kveðið er á um framkomu í skólan- um. Með því móti eru allir meðvit- aðir um til hvers er ætlað af þeim. Byggja skólarnir samskiptasáttmála sína annars vegar á hugmyndafræði Leiðtogans í mér og hins vegar hugmyndafræði Uppbyggingar- stefnunnar. Unnið hefur verið í því á markvissan hátt að styrkja jákvæð samskipti innan skólanna á síðustu árum, m.a. með þróunarverkefni um betri bekkjarbrag.“ Margbreytileikinn Magnús segir að mismunandi skiln- ingur sé lagður í hugtakið menntun án aðgreiningar bæði innan hvers skólastigs og milli skólastiga. „Al- mennt þarf að skýra betur bæði hugtakið sjálft og hvernig standa ber að framkvæmd menntunar án aðgreiningar. Á næstu árum verð- ur unnið að því að finna sameigin- legan skilning um skóla án aðgrein- ingar og uppfæra kennsluaðferðir og áætlanir til samræmis við marg- breytilegan barnahóp. Stefnt verð- ur að markvissari samvinnu leik- skóla, grunnskóla, frístundar og félagsmiðstöðvar, skólaþjónustu, félagsþjónustu, heilsugæslu og frí- stundastarfs sem er lykilatriði í að vinna samkvæmt hugmyndafræði snemmtækrar íhlutunar og í anda forvarnagildis Heilsueflandi sam- félags. Sú samvinna skilar vænt- anlega betri stuðningi við öll börn og ungmenni og betri þekkingu á því hvernig þörfum margbreyti- legs hóps barna og ungmenna verði sem best mætt í skóla- og frístund- astarfi,“ útskýrir Magnús. Heilsueflandi skólar í heilsueflandi samfélagi Borgarbyggð er aðili að verkefninu Heilsueflandi samfélag og eru leik- skólar, grunnskólar og Menntaskól- inn heilsueflandi skólar. Heilsu- eflandi skólum er ætlað að vinna markvisst að heilsueflingu í starfi sínu. í því felst að skapa skólaum- hverfi sem stuðla að andlegri, lík- amlegri og félagslegri heilsu og vel- líðan nemenda og starfsfólks í sam- vinnu við heimili og nærsamfélag. Hafa skólar Borgarbyggðar gott aðgengi að íþróttamannvirkjum og sundlaugum og ekki síst fallegri náttúru til útikennslu. Bætandi starfsumhverfi „Á næstu árum verður framkvæmt fyrir um einn og hálfan milljarð í nýbyggingum og endurbætur gerð- ar á skólahúsnæði í sveitarfélaginu. Eru það viðamestu framkvæmdir sem farið hefur verið í til að bæta starfsumhverfi skóla Borgarbyggð- ar,“ segir Magnús. „Starfsumhverfi nemenda og kennara er stór áhrifa- valdur í námi, oft nefnt þriðji kenn- arinn ásamt barnahópnum og kenn- aranum,“ lýsir Magnús. „Skólar í Borgarbyggð eru skipulagðir fyr- ir fjölbreytt nám og kennslu sem fer fram bæði utandyra og innan- dyra. Nú er verið að ljúka við bygg- ingu mötuneytis og fjölnotasalar í Grunnskólanum í Borgarnesi ásamt Öflugt lærdómssamfélag í Borgarbyggð „Ekki mörg sveitarfélög sem geta státað af svo fjölbreyttu skólastarfi“ Magnús S. Snorrason, formaður fræðslunefndar í Borgarbyggð. Framkvæmdir eru nú á fullu við Grunnskólann í Borgarnesi. Hér má sjá það sem verður mötuneyti og fjölnotasalur með góðu útsýni yfir íþróttasvæðið.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.