Skessuhorn - 22.05.2019, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 22. MAí 2019 7
Mánudagur 27. maí
Knattspyrna
Vinavika Knattspyrnudeildar Skallagríms:
Allir velkomnir að koma á æfingar.
Íþrótta- og leikjadagur í frístund í Borgarnesi
og Seli á Hvanneyri.
Vinaæfing í frjálsum fyrir 1.-4. bekk kl. 15:55-16:45.
Þriðjudagur 28. maí
Crossfit braut (íþróttavöllurinn í Borgarnesi)
með Írisi Grönfeld kl. 12:10-13:00.
Ganga frá Íþróttahúsinu í Borgarnesi
með Guðmundu Ólöfu Jónasdóttur kl. 13:00.
Vinaæfing í frjálsum fyrir 5. bekk og eldri
kl. 16:20-18:00.
Fyrirlestraröð í Hjálmakletti kl. 20:00
Líkamsvitund: Leið að betri líðan
Rakel Guðjónsdóttir og Guðríður Hlíf Sigfúsdóttir
Sem heilbrigt barn alla ævi
Aldís Arna Tryggvadóttir
Gæfuspor lífsins elexír Björn Rúnar Lúðvíksson
Miðvikudagur 29. maí
Vinaæfing í frjálsum 5. bekkur og eldri
kl. 16:20 – 18:00.
Fjölskyldujóga í Skallagrímsgarði
með Guðlínu Erlu Kristjánsdóttur kl. 18:00.
Fimmtudagur 30. maí
Opin Vinyasa jógatími með
Stefaníu Nindel í Andabæ á Hvanneyri kl. 11:00.
Fjölskyldujóga í Skallagrímsgarði
með Guðlínu Erlu Kristjánsdóttur kl. 13:00.
Ganga út í Kistuhöfða á Hvanneyri
með Sigurði Guðmundssyni.
Hittumst við Landbúnaðarháskóla Íslands kl. 17:00.
Föstudagur 31. maí
Crossfit braut (íþróttavöllurinn í Borgarnesi)
með Írisi Grönfeld kl. 12:10-13:00.
Ganga upp á Eldborg frá Snorrastöðum
með Þórhildi Maríu Kristinsdóttur kl. 18:00.
Hreyfivika
27. maí–2. júní
2019
Laugardagur 1. júní
Línuvegurinn yfir Skarðsheiði
Komdu með línuveginn yfir Skarðsheiði
gangandi, hjólandi eða hlaupandi.
Göngufólk leggur af stað kl. 10:00,
hlauparar og hjólarar kl. 11:00.
Samflot í Hreppslaug kl. 14:00.
Sunnudagur 2. júní
Ringó í íþróttahúsinu í Borgarnesi kl. 10:00.
Fyrir fólk á öllum aldri.
Dansfjör í íþróttahúsinu í Borgarnesi (litla sal)
með Aldís Örnu og Thelmu Eyfjörð kl. 11:00.
Frjálsíþróttamót verður haldið á vellinum í Borgarnesi kl. 13:00.
Allir mega taka þátt.
UMSB hefur undafarin ár tekið þátt í hreyfiviku UMFÍ sem
haldin er árlega. Hreyfivikan er árleg lýðheilsuherferð og hefur
það að markmiði að kynna kosti þess að taka þátt í hreyfingu
og íþróttum.
Allt um hreyfiviku má finna inn á hreyfivika.is.
Hreyfivika UMSB er unnin í samstarfi við heilsueflandi samfé-
lag í Borgarbyggð.
Meginmarkmið með Heilsueflandi samfélagi er að heilsa og
líðan allra íbúa sé í fyrirrúmi. Því eiga þessi verkefni afar vel
saman.
Frekari upplýsingar á facebook síðum UMFÍ og UMSB.
Allir viðburðir í heilsuvikunni
eru ókeypis og opnir öllum!
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
9
Aðalskipulag Dalabyggðar
2004-2016
Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum þann
14. mars að auglýsa skipulags- og matslýsingu vegna
breytingu á Aðalskipulagi Dalabyggðar 2004 – 2016,
samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin er eftirfarandi:
Vindorkugarður við Hróðnýjarstaði
Með skipulags- og matslýsingu þessari er íbúum og öðrum hags-
munaaðilum gefinn kostur á að koma með ábendingar og athuga-
semdir sem snúa að málefnum aðalskipulagsins.
Ákveðið hefur verið að framlengja athugasemdafrest sem upphaflega
átti að vera frá 11. apríl til 24. maí. Framlengur athugasemdafrestur
verður til 18. júní.
Lýsingin liggur frammi á skrifstofu Dalabyggðar Miðbraut 11, 370
Búðardal og á heimasíðu sveitarfélagsins dalir.is.
Athugasemdum eða ábendingum skal skila til skrifstofu Skipulags-
fulltrúa, að Miðbraut 11 Búðardal eða netfang skipulag@dalir.is fyrir
18. júní 2019.Margir hafa fylgst með framgangi
svæðisins þar sem mannvirki Sem-
entsverksmiðjunnar stóðu áður við
Faxabraut á Akranesi. Verktaka-
fyrirtækið Work North ehf. hef-
ur annast niðurrif mannvirkjanna
og sér nú fyrir endann á því verk-
efni. Búið er að fjarlægja þau mann-
virki sem fólust í samningnum við
verktakann og langt komið með að
slétta svæðið. Þar er nú komin slétt
og falleg flöt, ígildi nokkurra fót-
boltavalla að flatarmáli. Nú verð-
ur sáð í flötina og má því búast við
að hún verði græn síðar í sumar.
Svæðið hefur verið deiliskipulagt.
Að sögn Sævars Freys Þráinsson-
ar bæjarstjóra er ekki gert ráð fyr-
ir að byggingaframkvæmdir hefjist
þar á þessu ári þótt ekki megi úti-
loka að fyrstu lóðum þar verði út-
hlutað. Hann segir binda vonir við
að framkvæmdir við grjótvörn og
endurbætur Faxabrautar geti hafist
á þessu ári. Ríkið lagði fjármagn í
það verkefni á síðustu fjárlögum og
undirbýr Vegagerðin útboð vegna
þeirra framkvæmda. Faxabraut
er eins og kunnugt er þjóðvegur í
þéttbýli.
mm
Ragnar Guðmundsson hefur ósk-
að eftir að láta af störfum sem for-
stjóri Norðuráls. Ragnar hóf störf
hjá fyrirtækinu árið 1997 sem
framkvæmdastjóri fjármálasviðs
en tók við starfi forstjóra árið
2007. Hann mun verða stjórn-
endum Norðuráls til ráðgjaf-
ar næstu mánuði, segir í tilkynn-
ingu. Norðurál er fjölmennasta
starfandi fyrirtæki á Vesturlandi í
dag. í stað Ragnars hefur Gunn-
ar Guðlaugsson verið ráðinn for-
stjóri Norðuráls. Gunnar hóf
störf hjá fyrirtækinu 2008 og hef-
ur verið framkvæmdastjóri Norð-
uráls á Grundartanga frá 2009 og
framkvæmdastjóri yfir starfsemi
Century Aluminum í Evrópu og
Asíu. Því hlutverki mun hann
sinna áfram.
Ragnar Guðmundsson segir
að þau ár sem hann hafi starfað
hjá Norðuráli hafi verið einkar
ánægjuleg, ekki síst vegna þess
góða fólks sem þar starfar. „Ég
er stoltur að hafa tekið þátt í að
byggja upp fyrirtæki þar sem
áherslan er á öryggis- og um-
hverfismál. Fyrirtæki sem á eft-
ir að skapa verðmæti fyrir sam-
félagið um ókomin ár. Framtíð
Norðuráls er björt.“
Mike Bless, forstjóri Century
Aluminum, sem er móðurfélag
Norðuráls, þakkar Ragnari fyr-
ir góð störf. „Ragnar var einn af
fyrstu starfsmönnum Norðuráls
og vann náið með stofnendum að
uppbyggingu fyrirtækisins. Þáttur
hans í uppbyggingu og stjórnun
Norðuráls hefur verið lykilþáttur
í velgengni þess. Fyrir mína hönd
og stjórnar Century Aluminum
þakka ég Ragnari fyrir hans fram-
lag til fyrirtækisins og óska hon-
um velfarnaðar.“ mm
Ragnar lætur af störfum sem for-
stjóri Norðuráls - Gunnar tekur við
Gunnar Guðlaugsson tekur við starfi
forstjóra Norðuráls.
Ragnar Guðmundsson lætur nú af
starfi forstjóra Norðuráls.
Fallegt svæði að verða
til við Faxabraut