Skessuhorn - 22.05.2019, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 22. MAí 201922
Um nokkurt skeið hefur það tíðk-
ast að sveitarstjórnarfólk á Vestur-
landi fari í fræðsluferðir einu sinni
á kjörtímabili til að kynna sér mál-
efni sveitarfélaga og byggðaþró-
unaraðgerðir hjá nágrannaþjóð-
um. í tvígang hefur verið farið til
Noregs og einu sinni til Skotlands.
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi
(SSV) hafa séð um skipulag og
undirbúning ferðanna.
Að þessu sinni var ákveðið að
fara til Danmerkur og var lögð sér-
stök áhersla á að kynna sér aðkomu
sveitarfélaga að atvinnu- og bygg-
ðaþróunarverkefnum. Alls fóru í
ferðina 19 fulltrúar frá átta sveit-
arfélögum á Vesturlandi, auk þess
sem þrír starfsmenn frá Samtökum
sveitarfélaga voru með í ferðinni.
Hópurinn gisti í Kaupmannahöfn
og var gert út þaðan og farið víða
um Sjáland. Haldið var til Dan-
merkur þriðjudaginn 23. apríl og
komið heim föstudagskvöldið 26.
apríl.
Átaksverkefni í fjölgun
starfa á landsbyggðinni
Strax eftir komuna til Kaupmanna-
hafnar var haldið á fund Norrænu
ráðherranefndarinnar þar sem
starfsmaður hennar Torfi Jóhann-
esson, fyrrverandi atvinnuráðgjafi
hjá SSV og sveitarstjórnarfulltrúi í
Borgarbyggð, tók á móti hópnum.
Torfi fræddi okkur um norrænt
samstarf, starfsemi ráðherranefnd-
Frændur vorir Danir sóttir heim
Frásögn af ferð sveitarstjórnarfólks af Vesturlandi til Sjálands í lok apríl
Hópurinn fyrir utan Hús atvinnulífsins í Sorö.
Hópurinn framan við Regionshuset í Sorö. Á röltinu í átt að Nyhavn með íslenska sendiráðið í bakrunni.
Í heimsókninni í hús atvinnulífsins í Sorö.
Dýrindis hádegismatur beið ferðlanga á Det Vilde Kökken i Klint í sveitarfélaginu
Odsherred.