Skessuhorn - 22.05.2019, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 22. MAí 20192
Það er margt áhugavert að ger-
ast í tónlistarlífinu á Vesturlandi á
næstu dögum. Á fimmtudaginn
verða Flamenco tónleikar á Hvann-
eyri. Á föstudaginn verður Soffía
Björg með tónleika í Landnáms-
setrinu. Karlakór frá Noregi verð-
ur með tónleika í Reykholtskirkju
á laugardaginn og hljómsveitin
GÓSS verður á Hvanneyri á sunnu-
daginn. Nánari upplýsingar um
ýmsa viðburði er hægt að finna á
bls. 29 hér í blaðinu.
Á morgun er spáð norðaustlægri
eða breytilegri átt 3-10 m/s. Skýj-
að á landinu og sumsstaðar dálít-
il væta. Hiti 5-14 stig, hlýjast á Suð-
vesturlandi. Á föstudag er útlit fyrir
breytilega átt, skýjað að mestu og
skúrir verða á víð og dreif, einkum
á Suður- og Vesturlandi. Kólnar að-
eins. Á laugardag er spáð austan-
og norðaustanátt 5-10 m/s. Allvíða
dálítil rigning, jafnvel slydda í inn-
sveitum á Norður- og Austurlandi.
Hiti frá tveimur stigum fyrir norðan
en upp í 12 stig á Suðvesturlandi. Á
sunnudag má gera ráð fyrir norð-
lægri átt 3-10 m/s og skýjað að
mestu og síðdegisskúrir suðvest-
anlands, en úrkomulítið í öðrum
landshlutum. Hiti 1-11 stig, svalast
á norðausturhorninu. Á mánudag
er útlit fyrir norðlæga átt og slyddu
á köflum um landið norðanvert.
Annars þurrt og kólnar heldur.
Í síðustu viku voru lesendur á vef
Skessuhorns spurðir hvenær þeir
fara að sofa. Flestir, eða 66% svar-
enda, fara að sofa á milli kl. 22 og
miðnættis. 18% segjast fara að sofa
frá miðnætti til tvö að nóttu. 8%
fara að sofa á milli kl. 20 og 22. 6%
segja það vera misjafnt hvenær
þeir fara að sofa og 3% segjast fara
að sofa eftir kl. tvö að nóttu.
Í næstu viku er spurt:
Borðar þú morgunmat?
Alexandrea Rán Guðnýjardótt-
ir vann á sunnudaginn til brons-
verðlauna á heimsmeistaramótinu
í bekkpressu og setti á sama tíma
nýtt Íslandsmet þegar hún lyfti 75
kílóum. Alexandrea er Vestlending-
ur vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Vítaverður
hraðakstur
BORGARFJ: Ekkert lát er á
hröðum akstri í umdæmi Lög-
reglunnar á Vesturlandi. Kem-
ur það bæði fram í myndavél-
um og við almennt umferð-
areftirlit. Að sögn lögreglu
var algengt að ökumenn væru
stöðvaðir á 105-120 km/klst.
þar sem leyfilegur hámarks-
hraði er 90 km/klst. Sá sem
hraðast ók í umdæmi lög-
reglunnar á Vesturlandi í síð-
ustu viku var mældur á hvorki
meira né minna en 141 km/
klst. skammt norðan við Dýr-
astaði í Norðurárdal. Segir
lögregla það vítaverðan hrað-
akstur. Eftir að vikmörk höfðu
verið dregin frá mælingunni
var ökumaðurinn kærður fyr-
ir að aka á 136 km/klst. Við
því liggur 150 þúsund króna
fjársekt auk þess sem ökumað-
ur fær þrjá punkta í ökuferils-
skrá sína.
-kgk
Af með
nagladekkin!
VESTURLAND: Lögregl-
an á Vesturlandi er ekki farin
að kæra ökumenn fyrir að vera
með nagladekk undir bifreið-
um sínum. Ekki er byrjað að
sekta fyrir slíkt á sama tíma í
umdæminu og í höfuðborg-
inni, enda aðrar aðstæður aðr-
ar. Lögregla minnir engu að
síður á að heimild til að hafa
nagla undir skv. umferðarlög-
um er liðin og hvetur fólk til
að taka nagladekkin undan, sé
það ekki búið að því nú þegar,
ekki síst þá sem búa í suður-
hluta umdæmisins. -kgk
Brotist inn
í bílskúra
AKRANES: Brotist var inn
í bílskúr við Reynigrund á
Akranesi laugardaginn 18.
maí. Lögreglu var tilkynnt
um málið kl. 8:00 að morgni
og talið að innbrotið hafi átt
sér stað um nóttina. Mikið af
verkfærum var stolið, s.s. sög-
um, borvélum og fleiri verk-
færum. Fingraför fundust á
vettvangi glæpsins. Daginn
eftir, sunnudaginn 19. maí,
var lögreglu tilkynnt um inn-
brot í bílskúr í Jörundarholti
á Akranesi. Þaðan var stolið
borvél, rafhlöðum og hleðslu-
tæki. Bílskúrinn var ólæst-
ur. Lögregla hvetur fólk til
að hafa heimili sín og bílskúra
læst. Bæði innbrotin eru til
rannsóknar hjá Lögreglunni á
Vesturlandi og lögregla hvetur
fólk til að hafa samband ef það
hefur orðið vart við óeðlilegar
mannaferðir á Reynigrund og
Jörundarholti á þeim tíma sem
innbrotin eru talin hafa átt sér
stað. -kgk
Eftirlit með
gististöðum
VESTURLAND: Lögregl-
an á Vesturlandi var við eftir-
lit með hótelum og gististöð-
um í umdæminu í liðinni viku,
ásamt starfsfólki ríkisskatt-
stjóra. Að sögn lögreglu felst
eftirlitið í því að kanna hvort
hótel og gististaðir hafi gild
leyfi til rekstrarins, séu með
þau sýnileg og fleyra í þeim
dúr. -kgk
Síðastliðinn miðvikudag var lok-
ið við að plægja í jörðu nýjan raf-
streng að Lambastöðum á Mýr-
um. Auk Lambastaða komast bæ-
irnir Leirulækur og Leirulækjarsel
í samband. Þetta var þetta fyrsti
áfangi að þriggja fasa rafvæðingu
Mýranna. Samhliða rafstrengnum
er lagt ídráttarröð fyrir ljósleiðara
en verkefnið er skipulagt þannig
að samlegðaráhrif verði sem mest
í þessum tveimur verkefnum. Við
þetta tækifæri mættu meðal ann-
ars fulltrúar Borgarbyggðar, Bún-
Þrír fasar komnir að Lambastöðum
aðarfélags Mýramanna og Rarik
og fylgdust með þegar strengur-
inn var plægður síðustu metrana
heim að tengivirki á bænum. Lilja
Björg Ágústsdóttir, forseti sveit-
arstjórnar Borgarbyggðar, fram-
kvæmdi þann táknræna gjörning
að klippa á kapalinn þegar búið
var að plægja strenginn alla leið.
Ríkisstjórnin samþykkti í vetur
að tillögu Þórdísar Kolbrú-
nar R Gylfadóttur, iðnaðar- og
nýsköpunarráðherra, að lagt yrði
til ákveðið flýtigjald og áhers-
la lögð á að ljúka þrífösun raf-
magns á Mýrum annars vegar og
í Skaftárhreppi hins vegar. Með
tilkomu flýtigjalds varð mögulegt
að nýta samlegðaráhrif með la-
gningu ljósleiðara í Borgarbyg-
gð og þriggja fasa rafmagns um
Mýrarnar á árunum 2019 – 2022.
Samkvæmt verkáætlun Rarik er
svæðinu skipt upp í þrjá aðskilda
verkhluta sem koma til framkvæm-
da á jafn mörgum árum. Nokkur
stór kúabú eru á Mýrum og hafa
heimamenn sótt það fast að þrífö-
sun rafmagns verði flýtt sem kos-
tur er. Tækjabúnaður í nútímafjó-
sum er hannaður með tilliti til að-
gangs að þriggja fasa rafmagni. Þá
er stýring búnaður og eftirlit jaf-
nframt mjög háð því að fjarskip-
tasamband sé tryggt og því er la-
gning ljósleiðara jafnframt mikil-
væg í ljósi þess að fjarskiptasam-
band er víða stopult á svæðinu.
„Þetta er frábær áfangi í samgön-
gubótum og flott fyrir samfélagið
okkar,“ segir Halldór Gunnlaugs-
son, bóndi á Hundastapa og stjór-
narmaður í Búnaðarfélagi Mýra-
manna. af þessu tilefni.
mm/ Ljósm. Óskar Þór Óskarsson.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar og
lóðarhafar við Borgarbraut 55 í
Borgarnesi hafa komist að sam-
komulagi um kaup sveitarfélagsins
á húseigninni. Þetta eru fyrirtæk-
in Grani ehf. þar sem verslun Líf-
lands er til húsa og Bifreiðaþjón-
ustu Harðar ehf. þar sem dekkja-
og smurverkstæði er. Fimmtíu ára
lóðarleigusamningur rann út 25.
apríl síðastliðinn og samkvæmt
fyrri ákvörðun sveitarstjórnar lá
fyrir að hann yrði ekki endurnýjað-
ur við núverandi lóðarhafa. Samn-
ingsaðilar hafa frá því á síðasta ári
deilt um hvort núverandi lóðarhaf-
ar hefðu lögvarinn rétt á framleng-
ingu lóðarleigusamninga. Nú hefur
náðst sátt um að tveir óháðir mats-
menn, löggiltir fasteignasalar, verði
fengnir til að verðmeta fasteign-
ina og að gengið verði frá kaup-
um Borgarbyggðar á húsinu sem
fyrst. Stefnt er að núverandi starf-
semi verði farin úr húsinu í síðasta
lagi 1. september 2021. „Matsverð
hvors eignarhluta um sig skal feng-
ið þannig að tveir óháðir matsmenn
(löggiltir fasteignasalar) framkvæmi
sitt hvort sjálfstæða matið á mark-
aðsvirði hvors hluta fasteignarinn-
ar að Borgarbraut 55, miðað við
forsendur í apríl 2019. Matsmenn
skulu meta eignarhlutana mið-
að við núverandi eða hliðstæð not
með forsendur á fasteignamarkaði
í Borgarnesi í dag að leiðarljósi og
þá horfa til þess búnaðar sem þeim
fylgir. Kaupandi greiðir kostnað af
mati,“ segir í samningnum.
Jafnframt greiðist úr
öðrum málum
Samkomulag Borgarbyggðar við
lóðarhafana greiðir fyrir því að
hægt sé að ganga frá innkeyrslu á
baklóð við Borgarbraut 57. í samn-
ingnum felst m.a. að lóðarhafar við
Borgarbraut 55 skuldbinda sig til
þess að standa á engan hátt í vegi
fyrir því að sveitarfélagið leggi
innkeyrslu á lóðarmörkum lóð-
anna Borgarbraut 55 og Borgar-
braut 57, í samræmi við núgildandi
deiliskipulag, þó að framkvæmdin
kunni að hafa í för með sér rask og/
eða óþægindi fyrir þá. Jafnframt
skapast við fyrrgreint samkomu-
lag forsendur til að undirbúa upp-
byggingu íbúðarhúsnæðis að Borg-
arbraut 55 í náinni framtíð, þannig
að miðbær Borgarness fari að taka
á sig endanlega mynd.
mm
Samkomulag hefur nú náðst um verðmat á fasteigninni á Borgarbraut 55 og
skapast um leið svigrúm til að leggja megi innkeyrslu að bílastæðum fjölbýlishúss
við Borgarbraut 57.
Samkomulag næst um að verðmat
verði gert á Borgarbraut 55