Skessuhorn - 22.05.2019, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 22. MAí 20198
Til sjávar og
sveita
RKV: Síðdegis föstudaginn
24. maí næstkomandi verð-
ur fyrsti Uppskerudagur við-
skiptahraðalsins „Til sjávar og
sveita“ haldinn í Tjarnarbíói í
Reykjavík. Þar munu sprota-
fyrirtækin tíu sem tekið hafa
þátt í hraðlinum kynna við-
skiptahugmyndir sínar. Til
sjávar og sveita er sjö vikna
viðskiptahraðall sem ein-
blínir á nýjar lausnir og sjálf-
bæra verðmætasköpun á sviði
landbúnaðar og sjávarútvegs.
Meðal þeirra hugmynda sem
verða kynntar eru snyrtivöru-
lína unnin úr rófum og gul-
rótum sem annars væri farg-
að, drykkjarvatn unnið úr sjó
og ný DNA greiningartækni.
Markmiðið með hraðlinum
er að aðstoða frumkvöðla við
að byggja upp næstu kynslóð
fyrirtækja í þessum grunn-
atvinnugreinum íslendinga.
Verkefnið veitir þáttakendum
þannig faglega undirstöðu og
hraðar ferlinu frá því að hug-
mynd fæðist þar til viðskipti
taka að blómstra. Frítt er inn
á viðburðinn. -mm
Reiðhjólum
stolið
AKRANES: íbúi í Jörund-
arholti á Akranesi fann tvö
ókunnug reiðhjól í garðin-
um hjá sér í vikunni sem leið.
Gerði hann lögreglu viðvart
og sama dag kom íbúi við
Reynigrund á lögreglustöð-
ina á Akranesi og tilkynnti að
reiðhjólum hefði verið stolið.
Reyndust það vera hjólin sem
fundust í Jörundarholtinu.
Ekki er vitað hver eða hverjir
voru að verki. -kgk
Fjölmörg hrað-
akstursbrot
LANDIÐ: Lögreglan seg-
ir hraðakstur hafa verið mjög
áberandi undanfarnar vik-
ur á landinu öllu. Lögregl-
an á Vesturlandi hefur um-
sjón með úrvinnslu hraðakst-
ursmála sem koma inn í gegn-
um hraðamyndavélar um allt
land og heldur talningu yfir
þau mál. Frá 1.-19. maí höfðu
1996 hraðakstrar verið mynd-
aðir í myndavélum um allt
land, en sú tala tekur einn-
ig til myndavélabíla sem lög-
regla hefur í þjónustu sinni. í
apríl voru málin 3641. Á síð-
asta ári voru nálægt 15 þús-
und ökumenn kærðir fyrir of
hraðan akstur eftir að mynda-
vélar tóku mynd af þeim við
hraðaksturinn. Þá eru ótaldir
þeir sem lögregla stöðvar fyrir
of hraðan akstur við almennt
umferðareftirlit. -kgk
Dópaður dræver
VESTURLAND: Einn öku-
maður var stöðvaður í vikunni
sem leið grunaður um akst-
ur undir áhrifum ávana- og
fíkniefna. Var hann á ferð um
Vesturlandsveg þegar lögregla
hafði afskipti af honum. Strok-
próf sem lögregla framkvæmdi
á vettvangi gaf jákvæða svör-
un og maðurinn var í kjölfarið
handtekinn, látinn gefa þvag-
og blóðsýni og kærður fyrir
brotið. Að sögn aðstoðaryfir-
lögregluþjóns koma mál sem
þessi því miður reglulega upp
í umdæminu. -kgk
Ökumenn ekki
spenntir
VESTURLAND: Lögregla
stöðvaði ökumann í Borgar-
nesi um miðjan dag á föstu-
dag fyrir að aka án þess að
vera spenntur í bílbelti. Var
maðurinn sektaður um 40
þúsund krónur. Að sögn að-
stoðaryfirlögregluþjóns hef-
ur aðeins borið á því undan-
farið að ökumenn séu ekki
í bílbeltum. Við eftirlit í
Stykkishólmi fyrir skömmu
síðan voru til að mynda höfð
afskipti af fimm ökumönn-
um sem ekki voru spenntir
í bílbelti. Almennt vill lög-
regla minna ökumenn á að
hafa hugann við aksturinn
og gæta fyllsta öryggis. Eitt-
hvað hefur borið á því sömu-
leiðis að menn tali í farsíma
undir stýri. Viðurlög við því
eru 40 þús. króna fjársekt.
Einn ökumaður var til dæm-
is sektaður fyrir slíkt í Borg-
arnesi um kaffileytið á laug-
ardag. -kgk
Illa búnar
kerrur
VESTURLAND: Öku-
maður var sektaður um 20
þúsund krónur í vikunni sem
leið fyrir að aka með ljós-
lausa kerru í eftirdragi. Lög-
reglan á Vesturlandi segir of
mikið hafa borið á því und-
anfarið að ekið sé um þjóð-
vegina með illa búnar kerr-
ur, jafnvel ljóslausar og ólög-
legar. Vill lögregla því hvetja
fólk til að huga að kerrum
sínum áður en það ekur af
stað. -kgk
Réttindalaus og
ótryggður
AKRANES: Lögreglan á
Vesturlandi stöðvaði öku-
mann á Akranesvegi aðfara-
nótt sunnudags. Reyndist
maðurinn aldrei hafa öðlast
ökuréttindi og ók því rétt-
indalaus. Enn fremur kom í
ljós að bifreiðin sem hann ók
reyndist vera ótryggð. Mann-
inum var gert að greiða 40
þús. króna sekt fyrir athæfið.
-kgk
Slys í Reykholti
BORGARFJ: Ellefu ára
drengur slasaðist á kaffihúsi í
Reykholti í vikunni sem leið.
Drengurinn gerði sér það að
leik að renna sér niður hand-
rið, datt og lenti með hnakk-
ann á tröppunum. Hann
fékk skrámur á höfuðið við
fallið, blóðnasir og fann fyr-
ir ógleði. Læknir var á staðn-
um sem kom til aðstoðar.
Drengurinn var síðan fluttur
á bráðamóttöku Landspítal-
ans í Fossvogi með sjúkrabíl.
-kgk
Óku á hvorn
annan
SNÆFELLSNES: Tveir
ökumenn á mótorkrosshjól-
um keyrðu saman seinni
partinn á mánudaginn. Slys-
ið varð í fjöru skammt frá
Mararbakka og Barðastöð-
um á Snæfellsnesi. Annar
mannanna fann fyrir verkj-
um í höndum og baki. -kgk
Gjafavöruverslunin FOK í Borgar-
nesi er að færa sig um set. Eigendur
hennar, þau María Júlía Jónsdótt-
ir og Jónas Björgvin Ólafsson, leita
þó ekki langt yfir skammt og færa
sig yfir Borgarbrautina og eru nú
að koma sér fyrir í Hyrnutorgi þar
sem Handavinnubúðin var síðast
til húsa, gegnt Vínbúðinni. Versl-
unin var opnuð í lok síðasta árs að
Borgarbraut 57. “Við erum fyrst
og fremst að hugsa um viðskipta-
vini okkar. Með nýrri staðsetningu
erum við að auka þjónustuna við þá
og bæta aðgengi,” segir María Júlía
aðspurð um flutninginn. Verslunin
verður opnuð á nýjum stað í dag,
miðvikudaginn 22. maí klukkan 12.
Opnunarhátíð verður svo á morg-
un fimmtudag, lengri opnunartími
og tilboð í gangi. glh
Alþjóðaveðurfræðis tofnunin
WMO veitti nýlega ve ðurathugan-
arstöðvunum í Stykkishólmi og að
Teigarhorni í Berufirði viðurkenn-
ingu fyrir meira en 100 ára sam-
fellda mælisögu. Af því tilefni efndi
Norska húsið – Byggðasafn Snæ-
fellinga og Hnappdæla, til stuttrar
dagskrár á föstudaginn síðastliðinn
þar sem afhjúpaður var viðurkenn-
ingarskjöldurinn sem veðurathug-
unarstöðin í Stykkishólmi hlaut.
Það var í nóvember árið 1845,
fyrir ríflega 173 árum, sem Árni
Thorlacius í Norska húsinu hóf
skráningu veðurathuguna í Stykk-
ishólmi og hafa veðurathuganir þar
verið skráðar samviskusamlega all-
ar götur síðan. Þetta gerir stöðina í
Stykkishólmi að elstu veðurathug-
unarstöð á íslandi.
Dagskráin á föstudaginn hófst í
Eldfjallasafninu þar sem fróðleiks-
molar frá Veðurstofu íslands voru
sagðir. Kristín Björg Þorláksdóttir,
sérfræðingur á sviði veðurfarsrann-
sókna á Veðurstofu íslands, sagði
frá sögu veðurathugana í Stykk-
ishólmi og Óðinn Þórarinsson,
framkvæmdarstjóri athugana- og
tænisviðs, gaf innsýn í tækniheim
veðurathugana í dag og fór yfir þær
breytingar sem hafa átt sér stað á
sviði veðurathugana þau 173 ár
sem liðin eru frá því Árni Thorla-
cius hóf veðurathuganir í Stykkis-
hólmi. Að því loknu var farið yfir
í Norska húsið þar sem Trausti
Jónsson, sérfræðingur á sviði veð-
urfarsrannsókna, afhjúpaði viður-
kenningarskjöldinn sem nú hangir
á vegg á skrifstofu Árna í Norska
húsinu.
arg/ Ljósm. sá
FOK flytur yfir Borgarbraut í Borgarnesi
Eldsmíðasamkoma á
Akranesi 30. maí – 2. júní
Íslenskir eldsmi!ir halda
hina árlegu
eldsmí!asamkomu á
Bygg!arsafninu a! Gör!um á
Akranesi.
Bo!i! ver!ur upp á
örnámskei! í eldsmí!i
fimmtudaginn 30. maí og
laugardaginn 1. júní. Nánari
uppl"singar á Facebook sí!u
Íslenskra eldsmi!a: https://
www.facebook.com/
islenskireldsmidir/
Íslandsmóti! í eldsmí!i
ver!ur haldi! sunnudaginn 2.
júní kl. 10.
Viðurkenn-
ingarskjöldur
sem veðurat-
huganarstöðin
í Stykkishólmi
hlaut fyrir meira
en 100 ára sam-
fellda mælisögu
hangir nú á
vegg á skrif-
stofu Árna
Thorlacius í
Norska húsinu.
Viðurkenning fyrir veðurathuganir í
Stykkishólmi í meira en 100 ár
Óðinn Þórarinsson, framkvæmdastjóri athugana- og tæknisviðs Veðurstofu Íslands, Hjördís Pálsdóttir, safnastjóri í Norska
húsinu, Jakob Björgvin Jakobsson, bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar, Kristín Björg Ólafsdóttir, sérfræðingur í veðurfarsrann-
sónum á Veðurstofu Íslands og Wioletta Maszota, veðurathuganamaður í Stykkishólmi.