Skessuhorn - 22.05.2019, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 22. MAí 20196
Ný heimasíða
sveitarfélagsins
HVALFJ.SV: Hvalfjarð-
arsveit hefur opnað nýja
heimasíðu fyrir sveitarfé-
lagið. „Á henni er m.a. hægt
að gerast áskrifandi að frétt-
um og senda inn tilkynningu
um viðburð. Jafnframt hafa
umsóknareyðublöð mörg
hver verið uppfærð og þeim
fjölgað og að lokum má geta
þess að nýja síðan virkar
mjög vel í farsímum,“ segir
Linda Björk Pálsdóttir sveit-
arstjóri.
Helga leysir
Maggý af
VESTURLAND: Helga
Guðjónsdóttir í Ólafsvík
hefur verið ráðin til starfa
hjá Samstökum sveitarfélaga
á Vesturlandi í tímabund-
ið starf í fjarveru Margrétar
Bjarkar Björnsdóttur sem er
farin í ársleyfi meðan hún
stýrir Markaðsstofu Vest-
urlands. Helga mun sinna
verkefnum hjá atvinnuráð-
gjöf SSV. Frá þessu er greint
á síðu samtakanna.
-mm
Segja upp
vátrygginga-
samningi
BORGARB: Á fundi byggð-
arráðs Borgarbyggðar síðast-
liðinn fimmtudag var sam-
þykkt að segja upp samningi
um vátryggingar sveitar-
félagsins. „Lagt fram minn-
isblað sviðsstjóra stjórn-
sýslu- og fjármálasviðs, dags.
8. maí 2019, þar sem lagt er
til að samningi við VíS um
tryggingar sveitarfélagsins sé
sagt upp,“ segir í fundargerð.
Eins og fram hefur komið
ákvað tryggingafélagið VíS
að hætta rekstri vátrygginga-
umboða á flestum stöðum á
landsbyggðinni á síðasta ári
og var skrifstofu VíS í Borg-
arnesi lokað í kjölfar þeirr-
ar ákvörðunar 1. október sl.
Óánægju hefur gætt um þá
ákvörðun tryggingafélagsins
er hún rót þeirrar ákvörðun-
ar að vátryggingasamningi
er nú sagt upp.
-mm
Auglýst eftir
Snæfellsbæingi
ársins
SNÆFELLSBÆR: Óskað er
eftir tillögum íbúa Snæfells-
bæjar að Snæfellsbæingi ársins
2019. Frestur til að skila inn til-
nefningum er til 10. júní næst-
komandi. Að þeim tíma liðn-
um fer menningarnefnd Snæ-
fellsbæjar yfir tilnefningarn-
ar og kynnir á hátíðarhöldum á
þjóðhátíðardaginn 17. júní hver
verður sæmdur heiðursnafn-
bótinni Snæfellsbæingur ársins
2019. Nánar á heimasíðu Snæ-
fellsbæjar, en þar má jafnframt
finna hlekk til að senda inn til-
nefningar.
-kgk
Barn brenndist
á fæti
BORGARFJ: Slys varð á
Varmalandi í Borgarfirði um
miðjan dag á sunnudag þeg-
ar þriggja ára gamall dreng-
ur var þar að leik undir eftir-
liti foreldris. Drengurinn hljóp
yfir læk, steig með öðrum fæti
ofan í hann og brenndist á fæti.
Hvorki drengurinn né for-
eldri gerðu sér grein fyrir því
að um hveravatn væri að ræða
og hversu heitt vatnið væri.
Barnið var flutt með sjúkrabíl á
Barnaspítalann við Hringbraut í
Reykjavík til aðhlynningar.
-kgk
Ekið á gangandi
vegfaranda
Slys varð á Dalbraut á Akranesi
fimmtudaginn 16. maí síðastlið-
inn, þegar lyftara var ekið yfir
fót gangandi vegfaranda. Við-
komandi hlaut einhverja áverka
á fæti við slysið. Þá var bakkað á
dráttarvél á Dalbraut þriðjudag-
inn 14. maí sl. Engin slys urðu á
fólki og málið telst upplýst.
-kgk
Ellefta landsþing Slysavarnafélags-
ins Landsbjargar var haldið um
liðna helgi á Egilsstöðum. Um
sexhundruð sjálfboðaliðar frá slysa-
varnadeildum og björgunarsveit-
um af öllu landinu sátu þingið og
tóku þátt í viðburðum því tengdu.
Á þinginu ræddu þingfulltrúar fjöl-
mörg mál varðandi starf félags-
ins og voru línur lagðar fyrir næstu
starfsár. Nýr formaður félagsins
var kjörinn Þór Þorsteinsson frá
Skálpastöðum í Borgarfirði en auk
hans voru átta félagar víða af land-
inu kjörnir í stjórn.
Forsvarsmenn Landsbjargar af-
hentu nokkrum fyrirtækjum og
einstaklingum Áttavitann, heiðurs-
viðurkenningu fyrir náið samstarf
og mikilvægan stuðning við SL.
Það voru Vodafone, Landsbankinn
og Landhelgisgæslan auk rithöf-
undanna Steinars J Lúðvíkssonar
og Óttars Sveinssonar.
í tengslum við þingið var blásið
til Björgunarleika þar sem björg-
unarsveitafólk keppti í björgunar-
tengdum þrautum víða um Egils-
staði. Þetta árið voru það 18 harð-
snúin lið frá björgunarsveitum
sem kepptu sín á milli í björgunar-
tengdum þrautum víða um Egils-
staði. Dagskrá landsþings lauk svo
með árshátíð á laugardagskvöldinu
í íþróttahúsinu á Egilsstöðum.
mm/ Ljósm. sós/sá
Nýr formaður SL að grilla í landsþings-
gesti. Ljósm. sá.
Þór kosinn formaður
Slysavarnafélagsins Landsbjargar
Ný stjórn Landsbjargar. Þór Þorsteinsson er annar frá hægri í efri röð. Ljósm. sós.
Á Björgunarleikunum tóku 18 harðsnúin lið þátt. Ljósm. sós. Svipmynd af þinghaldinu á Egilsstöðum. Ljósm. sós.