Skessuhorn


Skessuhorn - 22.05.2019, Blaðsíða 23

Skessuhorn - 22.05.2019, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 22. MAí 2019 23 arinnar og sérstakalega landbún- aðar- og skógræktarmálin en hann starfar við þá málaflokka. í kjölfar- ið varð töluverð umræða um kjöt- framleiðslu okkar íslendinga sem er aðeins örlítið brot af framleiðslu Dana, fiskeldi og umhverfismál. Lise Østby ráðgjafi í byggðmálum flutti síðan erindi um staðsetningu opinberra starfa og átaksverkefni sem Norðmenn og Danir hafa ráð- ist í við að staðsetja slík störf utan höfuðborgarsvæðis. Hún benti á að Norðmenn hafa flutt ýmsar opinbera eftirlitsstofnanir frá Osló eða valið að staðsetja umsjón með nýjum verkefnum utan Osló. Á síðustu árum hafa þeir staðsett um 630 störf sem mörg hver tengjast opinberu eftirliti, innheimtu eða opinberum innkaupum, á lands- byggðunum. Hún gerði einnig grein fyrir verkefni sem hefur ver- ið í gangi í Danmörku og felst í því að staðsetja 8.000 störf utan Kaup- mannahafnar, en þetta átaksverk- efni ríkisstjórnarinnar hófst 2015 og er áætlað að því ljúki í ár. Þetta verkefni Dana jafngildir því að á íslandi yrðu 400 eldri eða ný opin- ber störf staðsett á landsbyggðinni. Það kom fram í máli Lise að mark- miðin með því að staðsetja þessi störf utan höfuðborgar væru alla jafna, að skapa jafnvægi í byggða- þróun, hagræða í rekstri hins opin- bera og efla vinnumarkað um allt land. í kjölfar þessa varð mikil um- ræða um staðsetningu opinberra starfa á íslandi og starfa án stað- setningar. Haldið til Odsherreds Miðvikudaginn 24. apríl fór hóp- urinn í heimsókn til sveitarfélags- ins Odsherreds sem er 33 þúsund íbúa sveitarfélag á Norðvestur-Sjá- landi. í Odsherred eru tæplega 25 þúsund sumarhús og þar er ferða- þjónusta í miklum blóma. Dag- skrá hófst í gamla þinghúsinu í Ny- købing þar sem Hans Jörgen Ol- sen framkvæmdastjóri „Visit Ods- herred“, sem er n.k. markaðsstofa sveitarfélagsins og Odsherreds jarðsvangs, kynnti fyrir okkur starf- semina, en ferðaþjónustan og jarð- vangurinn vinna náið saman. Jarð- vangurinn í sveitarfélaginu er sá eini í Danmörku sem hefur vott- un frá UNESCO. Það sem gerir hann einstakan er hversu skýrt má sjá á svæðinu hvernig ísaldarjöklar hafa mótað landslagið. Jarðvang- urinn leggur áherslu á menningar- sögu svæðisins, listsköpun en svæð- ið hefur verið mjög vinsælt af list- málurum vegna einstakrar birtu og loks er mikil áhersla lögð á mat- væli sem ræktuð eru innan jarð- vangsins, en óvíða í Danmörku má finna jafn frjósaman jarðveg. Með þetta í huga fór hópurinn í hádeg- isverð á veitingastaðinn „Det vilde køkken“ sem eldar eingöngu mat úr hráefni úr héraði. Hádegisverð- urinn var einstök upplifun og frá- bært að sjá hvað hægt er að gera úr heimafengnu hráefni. Eftir góðan málverð var farið í ráðhús sveitar- félagsins þar sem Thomas Adelskov bæjarstjóri tók á móti hópnum og fræddi okkur um sameiningar sveit- arfélaga í Danmörku og hvernig til hefur tekist með sameiningu Ods- herreds sem varð til í stóra samein- ingarátakinu árið 2007. Hann kom m.a. inn á að samræming á þjónustu hefði verið þungt verkefni og tekið tíma að ná viðunandi þjónustustigi sem jafnframt var ekki of kostnað- arsamt fyrir sveitarfélagið. Hann nefndi að það væri tvímælalaust ávinningur að í dag væri mun ein- faldara að fá til starfa fólk með meiri fagþekkingu. Margt af því sem hann kom inn á hljómaði kunnuglega fyr- ir Vestlendinga sem hafa vissulega reynslu af sameiningarmálum. Í sól og hita fyrsta sumardag Á fimmtudegi viðraði vel enda Sumardagurinn fyrsti á íslandi og því gott að hitinn í Danmörku væri nálægt 20 gráðum. Haldið var til Sorø þar sem Region Sjælland hef- ur sínar höfuðstöðvar, en Dan- mörku er skipt upp í fimm svæði (regioner). Stærsta verkefni þeirra er rekstur sjúkrahúsa, en við vor- um fyrst og fremst komin til þess að fræðast um aðkomu þeirra að byggðaþróunarverkefnum. Þar kom fram að þau hafa unnið að því að efla almenningssamgöng- ur á milli sveitarfélaga, stuðla að aukinni tæknimenntun innan fyrir- tækja með samstarfi við tækniskóla og með því styðja við ýmis kon- ar endurmenntun innan fyrirtækja og margt fleira áhugavert var rætt. Hins vegar hafa ýmis atvinnuþró- unarverkefni verið færð til sveit- arfélaganna sem í samstarfi við at- vinnulífið reka það sem mætti kalla „Hús atvinnulífsins“ þar sem eru ráðgjafar starfa með fyrirtækjum á svæðinu að ýmsum verkefnum, svo sem markaðssetningu, endurskipu- lagningu á rekstri, bættri stjórnun o.fl. Því var farið í Hús atvinnu- lífsins þar sem ráðgjafar á staðnum ásamt fulltrúum frá sveitarfélögun- um fræddu okkur um verkefnin og hvernig sveitarfélögin og fyrirtækin vinna að því að efla atvinnulíf. Sömu áskoranir Síðasta degi ferðarinnar var varið í Kaupmannahöfn þar sem Sam- band danskra sveitarfélaga (KL) var heimsótt. Þar fengum við áhugaverða kynningu á rekstri og fjármálum sveitarfélaga, hagræð- ingu og samstarfi ríkis og sveitar- félaga um bættan rekstur. Auk þess sem við fengum kynningu á þeim áskorunum sem dönsk sveitarfé- lög standa frammi fyrir, en ljóst er að öldrun íbúa, ný tækni í sam- skiptum og aukið samráð við íbúa og atvinnulíf eru áskoranir sem sveitarfélögin hvar sem er í hinum vestræna heimi standa frammi fyr- ir. Eftir heimsóknina var haldið út í góða veðrið og spókuðu ferða- langar sig í Kaupmannahöfn það sem eftir lifði dags, áður en hald- ið var út á Kastrup og heim til ís- lands. Góður samhristingur Það var athyglisvert að sjá hversu margt er líkt með þessum löndum og það eru svipuð mál sem brenna á sveitarfélögunum. Nefna má sem dæmi að samgöngur og fjar- skipti voru mikið til umræðu þó svo að Danmörk sé mun minna og þéttbýlla land en ísland og með um margt öðruvísi atvinnulíf. Ferð- langar voru sammála um að það sé mikilvægt fyrir sveitarstjórnar- fulltrúa að kynna sér það sem efst er á baugi í málefnum sveitarfé- laga hjá nágrannaþjóðum og sækja í reynslubanka þeirra. Heimsóknir sem þessar víkka sjóndeildarhring- inn og það er oft hollt og gott að sjá hvernig aðrir gera hlutina. Það má heldur ekki gleyma því að í svona ferðum eru ferðalangar oft- ar en ekki að skiptast á upplýs- ingum og skoðunum um hvernig þeir gera hlutina heima fyrir. Þá er ljóst að í svona ferðum verða til tengsl sem auðvelda allt samráð og samstarf þegar heim er komið. Páll S Brynjarsson. Ljósm. Svala Svavarsdóttir. Jörgen Olsen fór með gestina á Det Vilde Kökken í Klint. Hér er hluti hópsins. Thomas Adelskow bæjarstjóri tók á móti hópnum í ráðhúsinu í Höjby. Hér er hlustað af athygli. Á heimferðardegi hafði hópurinn tíma eftir hádegið til að rölta um Nyhavn. Björg, Kristján, Steinunn, Magnús, Páll, Guðveig, Vífill, Eggert og Hrafnhildur.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.